Víðförli - 01.03.1947, Blaðsíða 65

Víðförli - 01.03.1947, Blaðsíða 65
VIÐ MALELDA 63 ])ættir kristinnar játningar og boðskap- ar, sem reyndir, kristnir menn í nútíð og fortíð hafa síður viljað missa en lífið, slíkur prestur er drengur að meiri, ef hann segir af sér embætti. Gegnum líf og sögu kirkjunnar, kenningu henn- ar og játningu, gengur þrátt fyrir allt rauður þráður, sem ekki er ósýnilegur. Það er játningin og kenningin um Krist sem Guðs son og frelsara frá synd og glötun. I fjölradda kór kirkj- unnar frá öndverðu er þetta stefið, allt frá játningu Péturs: Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs, allt frá játn- ingu Tómasar við fætur hins krossfesta og upprisna: Drottinn minn og Guð minn, allt frá boðskap Páls: Svo er þá nú engin fyrirdæming fyrir þá, sem til- lieyra Kristi Jesú. Hafi einhver annað brýnna á hjarta í málflutningi sínum af prédikunarstóli en ])etta eða telji sig verða að varpa rýrð á og vefengja vitnisburði og lofgjörð aldanna um ]>etta, sá hefur hvorki sögulegan né sið- ferðilegan rétt til að tala í nafni krist- innar kirkju. Hann talar í nafni sjálfs sín. En í hans nafni var aldrei nein- um ætlað hólpnum að verða. Vér skul- um á síðan standa skil á því, hvernig' vér höfum vitnað um annað nafn, það, sem hverju nafni er æðra. Til þess vitn- isburðar ljær söfnuður Jesú Krists ræðustól og embætti. Hitt er „sjálfval- inn“ boðskapur (hairesis), sérvizka, sér- trúnaður. Hlutur guðfræðinnar Hirðuleysi um kenningu er sjúkdóms- einkenni, stafar annað hvort af vits- munalegum slappleika eða trúarlegu al- vöruleysi, nema hvort tveggja sé. Mað- ur, sem tekst á hendur að leiðbeina öðrum á grundvelli ákveðinnar lífsskoð- unar, hlýtur að vilja gera sér grein fyrir þeirri lífsskoðun svo sem kostur er. Það er guðfræðinnar að aðstoða kirkjuna, kennendur og aðra, í þessu. Ekki svo að skilja, að einhverjir út- valdir skuli liugsa fyrir alla aðra. En sé guðfræðin það, sem hún á að vera, þ. e. fræðileg, hleypidómalaus, alhliða rannsókn á kristinni trú, þá á að vera liægt að sækja talsvert til hennar, er horfi til skilningsauka á lífsviðhorfum kristindómsins. Guðfræði, sem ekki bregzt hlutverki sínu, ætti að öllu eðli- legu að geta komið í veg fyrir, að kirkja sundrist um meginatriði, að hver einstaklingur hennar verði að leggja út í tvísýna andlega landaleit án þess að hafa annan leiðarstein en hugboð sitt. Eitt af því, sem guðfræðinni er nauðsynlegt, til þess að von sé um slíka aðstoð hennar, er, að hún sé fersk. Verk hennar verður að framkvæmast að nokkru að nýju með hverri nýrri kynslóð. Á sviði allra húmaniskra fræða er það höfuðskilyrði, að menn vinni sig inn í viðfangsefnin æ að nýju. Sízt allra fræða má guðfræðin bregðast í þessu, svo mjög sem viðfangsefni henn- ar snertir hið lifandi líf hverrar nútíð- ar. Það er dauð guðfræði, sem ekki er annað en upptugga, dauði fyrir kirkju að hafa ekki annað en gamla guðfræði, þ. e. tileinkun og niðurstöður, skilning og túlkun horfinna manna og liðins tíma, sem mótaðist af allt öðrum að- stæðum, útsýn og hugsunarhætti en ]íð- andi stund. Sagan sýnir, að kirkjufélög, sem hættu að sinna guðfræði að marki, og töldu, að þar væri þegar allt gert, sem gera þarf, stirðnuðu upp og urðu steingerfingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.