Víðförli - 01.03.1947, Qupperneq 18

Víðförli - 01.03.1947, Qupperneq 18
10 VIÐFORLI umbun, þá myndu þeir samt þjóna Guði, vegna þess að þeir elska hann“. Þetta mætti verða til nokkurs skilningsauka á kenningu Lút- hers um trú og verk. Siðfræð'i rómversku kirkjunnar mótaðist af sjálfhverfu streði við að bjarga sjálfum sér inn í himininn. En höfundur kristinnar trúar sagði: Hver, sem vill bjarga lífi sínu, skal týna því. Fáir hafa betur skilið, hvað í þessum orðum felst, en Lúther. Og þetta bendir til þess, hve djúpt þeir sáu báðir, Páll og hann, þegar þeir héldu því fram, að lögmál og lögmálsverk geti engan mann frelsað. Hvað er lögmálið? Boð og bönn. Hvatning þess er annars vegar óttinn við hegningu, hins vegar von um laun. Hvort tveggja skýrskotar til sjálfselskunnar. Lögmálsbundin trú- rækni verður óhjákvæmilega sjálfhverf (egocentrísk). Sá vilji, sem er vakiun og hvattur af ótta við hegningu, er þrælslundaður, kúgaður, sá, sem lokkast af von um laun, er keyptur, hræsnin eintóm. Verk, sem sprottin eru af slíkum hvötum, eru ekki góð í þeim skilningi, að þau gildi fyrir Guði, þau eru ekki hjálpsam- leg fyrir sál þess manns, sem vinnur þau, þótt þau kunni að hafa sína þýðingu í samlífi mannanna. „Þú skalt ekki morð fremja“. Guð vill, að þessu boði sé hlýtt, vill heldur að menn séu neyddir til að hlýða því, en að menn fari um þetta að fýst sinni. Sama máli gegnir um hvert ákvæði Guðs laga. Það hefur sína stór- kostlegu þýðingu fyrir samlíf mannanna, hvort þau eru haldin í hefð og gildi eða ekki, og Guð er enganveginn hlutlaus um það. En hlýðni við þau, sem sprottin er af ótta við refsivönd, jarð- neskan eða himneskan, eða von um ávinning, borgaralegan eða guðdómlegan, er aðeins ábatavænleg verzlun, gjöf, sem sér til gjalda. Skyldi slíkt geta gert mann helgan í Guðs augum og honum þóknanlegan? 3. Rómverska kirkjan sagði: Þú verður að vinna góðverk til þess að geta orðið sæll og hólpinn. Lúther sneri þessu við og sagði: Þú verður að vera sæll og hólpinn til þess að geta unnið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.