Víðförli - 01.03.1947, Side 58
Bækur
r )
)______)
Regin Prenter: SPIRITUS
CREATOR. Studier i Lut-
hers Theologi. Köbenhavu
1944.
Þetta er doktorsritgerð, varin við
Hafnarháskóla í des. 1944. Eins og tit-
illinn ber með sér er viðfangsefnið guð-
fræði Lúthers og aðaláherzlan lögð á
að rannsaka kenningar lians um Heil-
iigan Anda. Höf. kannar þarna ný
lönd. Svo mjög sem guðfræðingar hafa
unnið að rannsóknum á ritum Lúthers
hina síðari áratugi, þá hafa þessu atr-
iði ekki verið gerð nein veruleg skil
fyrr. Bók R. Ottos ,,Die Anschauung v.
heil. Geiste bei Luther“, er orðin gömul
■og úrelt og mun auk þess ekki kryfja
málið til mergjar.
Það virðist ljóst, þegar þetta um-
fangsmikla og ýtarlega verk R. Prent-
ers Iiggur fyrir, að hér hefur hingað til
verið gengið fram hjá mikilvægu rann-
sóknarefni og meginþætti í guðfræði
Lúthers.
Þetta mikla vísindarit er í senn
söguleg rannsókn og samstæðileg. Evk-
ur það gildi bókarinnar stórum. Plöf.
lætur sér ekki nægja að rekja kenningar
Lúthers lið fyrir lið skv. heimildunum.
Hann ræðir þær frá dogmusögul. sjón-
armiðum og spyr ekki einungis: Hvað
kenndi Lúther? heldur: Plvers vegna
kenndi hann svo? Og höf. einskorðar sig
ekki við stefnur liðinna alda, liann ræð-
ir einnig sjónarmið Lúthers í saman-
burði við stefnur, sem gætir á vorum
dögum. Þannig er brugðið birtu yfir
viðfangsefni nútíma guðfræði, bent á
veilur hinna ýmsu viðhorfa frá lút-
hersku sjónarmiði séð.
Þess er enginn kostur að rekja efni
slíkrar bókar í fáum línum, svo að
gagni komi. Aðeins skal vikið örfáum
orðum að hugtakinu conformitas Christi,
sammyndun Krists, eins og höf. ræðir
það, og þó stildað á stóru.
Conformitas Christi er ekki árangur
af imitatio Christi (eftirlíkingu Krists),
heldur verk Guðs, sem umskapar
manninn fyrir Ileilagan Anda. Imitatio-
guðræknin lítur á Krist sem hugsjón,
er maðurinn skuli gera að veruleika.
Hitt er conformitas, þegar Kristur er
lifandi nærverandi raunveruleiki, sem
mótar manninn eftir líking sinni. Þessi
raunverulega nálægð hins lifandi Krists
er verk Heilags Anda, Guðs gjöf, ekki
verk mannsviljans. Svo náið og virki-
legt er sambandið milli Krists og þess,
er trúir á liann, að þeir eru orðnir eitt:
Réttlæti Krists er tileinkað þeim, sem
trúir, og synd hans aftur tileinkuð
Kristi. Sigur Krists er sigur vor, ef vér
erum honum „konform“, bæði í lífi og
dauða.
Ilugtakið conformitas Christi mótar