Víðförli - 01.03.1947, Side 66

Víðförli - 01.03.1947, Side 66
VÍÐFÖRLI 64 Vér heyrum oft nefnda nýguðfræði h'ér á landi. Með því er átt við það, sem á útlendum málum heitir „liberal“ guðfræði eða „liberahsmus“. Þar er nánast um að ræða trúarskilning og guðfræðiviðhorf, sem mest létu til sín taka kringum aldamótin síðustu. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og miklu verið afkastað í guðfræði. Bæði í biblíu-rannsóknum og á öðrum svið- um guðfræðinnar hafa viðhorf gjör- breytzt á liðnum árum. Þessir vindar hafa nær gjörsamlega farið fram hjá lslandi. Vér erum orðnir a. m. k. aldar- fjórðungi á eftir tímanum. Islenzk guð- fræði hefur staðnað í viðhorfum liðins tíma. Hér hefur lítið A erið gert til þess að kynna það, sem unnið hefur verið á sviði guðfræðilegra vísinda í umheim- inum. I þessu efni er mikill munur á næstliðnum árum og fyrri árum aldar- innar. Þarf ekki annað en bera saman t. d. ..Verði ljós“ fyrrum og „Kirkju- ritið“ nú. íslenzk kristni hefur ein- angrazt. Þess vegna er hægt að halda hér fram sem fræðilegum nýungum Stefnum, afstöðu og úrlausnum, sem bú- ið er að afgreiða á málþingi alþjóða- vísinda, strika út af dagskrá og vísa vfir í forðabúr lærdómssögunnar. I ])essu tilliti er verulegur munur á sam- tíðinni og þeim tímum, ])egar Haraldur Nielsson og Jón Helgason stóðu upp á sitt bezta. Þar var þó um að ræða kynningu, útsýn og viðhorf, sem voru tímabær í þeim skilningi, að þetta voru lifandi viðfangsefni samtíðarinnar. Því vantar oss nú nýja guðfræði, þ. e. nánari tengsl við lífræn sjónarmið á vettvangi guðfræðinnar, meiri kynni af því, hvernig mál standa í raun og veru með alkvæðamönnum þessara fræða, meiri og nytsamlegri umræður um guð- fræði í vorn hóp. Það er eitt af meg- inskilyrðum þess, að kirkjunni heilsisl sæmilega á komandi árum. Frumvarp er fram komið á Alþingi um veitingu prestakalla, þar sem gert er ráð fyrir, að ])restskosningar falli niður. Þær hafa ekki gefizt vel. En við endurskoðun laga ber ekki aðeins að líta á ágalla þeirra í framkvæmd, heldur og á tilgang þeirra Markmið gildandi laga um veitingu prestakalla er auðsýnilega sá að tryggja söfriuðum landsins mikilvæg réttindi, sem helgast af rótgróinni venju. Það er gamall og gróinn siður í landi hér að leita atkvæðis sóknarmanna, þegar veita skal prestakall, og skv. gildandi lögum hafa þeir það mál í hendi sér, ekki veitingarvaldið. Það getur ekki verið söfnuðum landsins kappsmál að láta þessi réttindi af hendi skilyrðislaust og Alþingi getur ekki farið fram á slíkt, ef það vill ráða bætur á gölluðu fyrirkomulagi, án þess það hafi í för með sér skerð- ingu hefðbundinna og mikilvægra réttinda. Ætla má, að þessi ágalli téðs frvs. fáist leiðréttur, því að áreiðanlega er það flutt af góðum hug í garð kirkjunnar. Urræðin til slíkrar leiðréttingar eru þau, að leita atkvæðis sóknarnefnda og héraðsprófasts, auk biskups. og láti þessir aðilar allir ráðherra í té rökstutt álit um það, hverjum veita skuli embættið, og skyldi ráðherra veita embættið skv. því áliti, ef í einn stað kemur, annars hafa úrskurðarvald. Með þessu fyrirkomu- lagi heldur kirkjan þeim réttindum gagnvart veitingarvaldinu, sem gildandi lög veita henni, en losnar jafnframt við ágalla hinna almennu kosninga.

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1982

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.