Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 4
2
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
Pétur S. Jóhannsson:
Kæru lesendur!
Á þessum Sjómannadegi fögnum
við því að frá síðasta Sjómannadegi
hefur enginn sjómaður farist í sjó-
slysi. Það er mikil ánægja og það er
vafalaust, að miklum hluta, því að
þakka hve margir sjómenn hafa sótt
þau góðu námskeið sem Slysavarna-
skóli Sjómanna býður uppá. Reynd-
ar eru þau orðin skylda fyrir sjó-
menn og ég hvet þá til að sækja þau.
Það er mikil nauðsyn á að vita
hvernig bregðast á við ef eitthvað
óvænt kemur uppá um borð og
þekkja þau tæki sem þar eru.
Mikill fjöldi sjómanna stundar
sjóinn á litlum bátum og mikillar
aðgæslu er þörf hjá þeim.
Þá er tilkynningaskyldan þýðing-
armikill þáttur í lífi aðstandenda
þeirra er sjó stunda. Ekki má gleyma
félögum í slysavarnadeildunum vítt
og breitt um landið fyrir þeirra fórn-
fúsu störf en þau verða seint þöklc-
uð.
Þetta blað sem nú kemur út er
það fimmta í röðinni sem Sjó-
mannadagsráðin í Ólafsvík og Hell-
issandi gefa út saman en það fyrsta
kom út 1996. Það er gaman að
standa að útgáfu svona blaðs. Maður
kynnist mörgu og góðu fólki við
efnisöflun og efnið er í reynd
óþrjótandi. Efni þessa blaðs er fjöl-
breytt að vanda en það byrjar á hug-
vekju eftir sr. Óskar H. Óskarsson.
Viðtal er við Jón Stein Halldórs-
son fyrrverandi skipstjóra í Ólafsvík
um líf hans og starf. Hann ólst upp í
stórum systkinahópi og hefur alla
tíð búið og starfað í Ólafsvík. Þá er
skemmtileg grein eftir Svanhildi Eg-
ilsdóttur og Jón Sólmundsson um
kajak ferð þeirra á s.l. sumri en það
er óvenjulegur ferðamáti.
Þá er viðtal við Kristinn Jón Frið-
þjófsson um hið kraftmikla fjöl-
skyldufyrirtæki Sjávariðjuna á Rifi
sem hann rekur ásamt eiginkonu
sinni og börnum. Ásgeir Jóhannes-
son segir frá mikilli spennutalningu
í sveitarstjórnarkosningum í Ólafs-
vík árið 1954 en Ásgeir er hafsjór af
fróðleik um menn og málefni á
Snæfellsnesi.
Þá er grein eftir sr. Eðvarð Ingólfs-
son um þann sómamann Leopold
H. Sigurðsson á Hellissandi. Viðtal
er við þá fimm dugmiklu bræður
sem gera út Steinunni SH 167 um
lífið og tilveruna. Grein er um Sig-
ríði Hansdóttur en hún tók snemma
að sér að sjá mörgum þeim fyrir fæði
sem þurftu á að halda í Ólafsvík.
Sigríður matreiddi fyrir háa og lága
og eru margir sem eiga góðar minn-
ingar frá þessum árum sínum hjá
henni og Jóni manni hennar á
Ólafsbrautinni.
Rætt er við Einar Kristjónsson
skipstjóra og útgerðarmann á Garð-
ari 11, sem hann gerði út lengi ásamt
Birni bróður sínum og á hann 50
ára sjómannsafmæli á þessu ári.
Grein er eftir Inga Dóra Einarsson
um vörubílaútgerð á Hellissandi og
Rifi. Það er skemmtileg lesning um
það þegar allt var í fullum gangi við
fiskkeyrslu og fl. í þá góðu og gömlu
daga.
Einnig eru margar fleiri greinar og
viðtöl um menn og málefni.
Margar myndir prýða blaðið frá
ýmsum tímum og vil ég þakka þeim
sem hafa gefið mér kost á að fá þær
til birtingar. Greinarhöfundum vil
ég færa bestu þakkir fyrir þeirra
framlag til þessa blaðs og þá ekki
síður þeim sem hafa styrkt það.
Einnig öllum þeim sem hafa gert út-
gáfu þessa mögulega.
Að síðustu viljum við sem að
þessu blaði stöndum óska öllum sjó-
mönnum og fjölskyldum þeirra
gleðilegrar hátíðar á Sjómannadag-
inn.
4
8
11
15
17
21
26
29
32
35
40
41
48
50
53
55
59
61
63
66
67
68
69
71
72
73
79
83
LFNISYFIRLIT
Hugvekja
Sr. Óskar H. Óskarsson
Viðtal við Jón Stein Halldórsson, skipstjóra
Pétur S. Jóhannsson
A kajökum við Snæfellsnes
Svanhildur Egilsdóttir og Jón Sólmundsson
Viðtal við Kristinn Jón Friðþjófsson,
útgerðarmann
Óskar H. Óskarsson
Á Sjómannahófi 1999
Árný Bára Friðriksdóttir
Mín fyrsta sjóferð
Kristinn Jónasson
Fjörug kosninganótt í Ólafsvík 1954
Ásgeir Jóhannesson
Ræða flutt á Sjómannadegi í Ólafsvík 1999
Magnús Stefánsson
Leopold H. Sigurðsson, minning
Sr. Eðvarð Ingólfsson
Jaen Pouli Joensen frá Vogi heiðraður
Pétur S. Jóhannsson
Viðtal við eigendur Steinunnar SH
Pétur S. Jóhannsson
Hugleiðing á Sjómannadag
Hrefna Kristjánsdóttir
Viðtal við Einar Kristjónsson, skipstjóra
Pétur S. Jóhannsson
Ræða flutt á Sjómannadegi
á Hellissandi 1999
Hugrún Ragnarsdóttir
Stóri róðurinn á Snæfellinu SH 197
Kristófer Jónasson
Viðtal við Pétur Pétursson, útgerðarmann
Pétur S. Jóhannsson
Hugleiðing um heiðurshjónin
Sigríði Hansdóttur og Jón Skúlason
Jenný Guðmundsdóttir
Gamlar myndir
Teknar af Guðna Sumarliðasyni
Mitt bernskuheimili
Eygló Egilsdóttir
Björgin heim
Guðjón Petersen
Gamlar myndir frá Stylddshólmi
Formannavísur fluttar á Sjómannadag
í Ólafsvík 1960
Valdimar Kristófersson
Myndir frá Unnari Leifssyni á Tjaldi SH
Minningar frá Ólafsvík
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, ljósmóðir
Gamlar myndir frá Ólafsvík
Teknar af Ólafi Bjarnas. og Trausta Magg.
Sjómannadagurinn í Ólafsvík 1999
Pétur S. Jóhannsson
Vörubílaárin á Hellissandi
Ingi Dóri Einarsson
Sjómannadagurinn Hellissandi og Rifi 1999
Halldór Kristinsson
Myndir: Þeir sem vinna verkin
Myndir frá Sjómannadeginu 1999 eru á bls.
16, 25, 46, 60 og 81