Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 5

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 5
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson: Hann er með í för 3 Á Sjómannadegi samgleðjumst við sjömönnum, fögnum sigrum þeirra og áföngum. Þökkum fyrir dýrmæt störf þeirra í þágu lands og þjóðar. Með virðingu minn- umst við látinna sjómanna og horfum til þess að sjórinn hefur bæði gefið og tekið. Við lítum með sjómönnum með bjartsýni til framtíðar, sameinumst í bæn og von. Á dögunum greip ég niður í bókina Sjósókn og sjávarföng eftir Þórð Tómasson í Skógum og rakst þar á skemmtilega lýsingu frá því snemma á öldinni sem sýnir vel þátt trúarinnar í sjósókn- inni: Hver róður var hafinn með því að hafa yfir sjóferðamannsbæn. Ytt var á flot, búið var að draga inn attrafbandið og formaður „búinn að hjara“ (þ.e. krækja stýri við skut, (stafn)). Gat verið að hann þyrfti einnig að segja til um róður, láta taka meira í öðrum megin borðs. Formaður tók þá ofan og sagði: „Biðjum nú allir al- máttugan guð að vera með oss, í Jesú nafni“. Hásetar tóku þá allir ofan, lutu höfði og reru rólega út. Formaður las þá venjubundna sjó- ferðamannsbæn í hljóði. Að lestri loknum signdi hann fram yfir skipshöfn, sneri sér síðan við og signdi yfir leiðina til lands. Að því búnu signdi hann sig og sagði: „Guð gefi okkur góðan dag, í Jesú nafni“. þá signdi hver og einn há- seta sig og allir settu upp höfuð- föt. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta var. Byltingar- kenndar breytingar hafa orðið á bátum og veiðarfærum. Oryggi sjómanna hefur aukist ár frá ári, sem betur fer. Og sú þróun á eft- ir að halda áfram. Þjóðin þarf að sameinast um að tryggja sem best öryggi sjómanna og að þar séu ávallt þau tæki notuð sem best eru hverju sinni. En öryggi sjómanna verður aldrei tryggt til fullnustu, sjórinn er og verður alltaf ákveðin ógn. Eins og hann hefur gefið okltur ríkulega af sér þá getur hann lílta hrifsað til sín líf, það höfum við mátt reyna. Sú ógn er alltaf fyrir hendi. Bæn sjómanns- ins verður því áfram sú sama, breyttir tímar breyta engu þar um, bæn um að Guð sé með í för. Bæn formannsins forðum fyrir áhöfninni er enn í fullu gildi „Biðjum nú allir almáttugan Guð að vera með oss, í Jesú nafni". Þegar neyðin er stærst og ör- vænting mest þá er hann alltaf næstur. Hann er ávallt með í för. Megi Sjómannadagurinn minna okkur á þessa nálægð hans og um- hyggju — minna á „að aldrei mun granda brim né sjór því skipi sem Drottinn má verja“. Sjómönnum öllum og fjölskyldum þeirra bið ég Guðs blessunar. Látum bæn sjómannsins úr gömlu sálmabókinni verða bæn okltar allra fyrir og með sjómönn- unum: AJmáttugi Guð. Hafdjúpin eru í hendi þinni, veð- ur og öldur á valdi þínu. ... Eg fel þér sltipið og alla, sem á því eru. Gjör þú ferðina góða og farsæla. Ég fel þér öll mín áform og fyrir- tæki. Eg fel þér heimili mitt og ástvini. Vak yfir oss öllum allar stundir og varðveit oss hjá þér, í þeirri trú sem tengir oss þér í lífi * og dauða. Amen. Útgefendur : Forsíðumynd: Textayinnsla og próförk: Sjómannadagsráðin Ólafsvík og 1 [ellissandi Pétur S. Jóhannsson Aðs Syanhvít Sigurðardóttir m. .. mf .toð: Ritsjórn og auglýsingar: Ritnefnd: Kjartan Lggertsson Pétur S. Jóhannsson Björn F.. Jonasson 11 _ 1 f - _ Jónas Gunnarsson Umbrot, prentun, bókband: Ábyrgðarmenn: Pétur S. Jóhannsson Pétur S. Jóhannsson Páll Stefánsson Steinprent ehf. Snæfellsbæ Páll Stefánsson Jóhann Rúnar Kristinsson

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.