Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 16
14
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
Anna Bára og Ella Kata gáfu sér ekki tíma til að líta upp frá snyrtingunni. Mynd: PSJ
bátum útgerðarinnar. Hinn helm-
ingurinn er keyptur á mörkuðum.
Kristinn segir að rekstur Sjávar-
iðjunnar hafi gengið erfiðlega
fyrstu árin en síðan hafi gengið
verið ágætt. Hann telur þó reynd-
ar ýmsar blikur vera á lofti nú
einkum vegna þess að gengi
ákveðinna gjaldmiðla hefur verið
óhagstætt fyrir vinnsluna, einkum
vegna hinnar nýju Evrópumyntar,
evrunnar.
Horfi með bjartsýni
til framtíðar
Kristinn segist alla tíð hafa
kunnað vel við sig á Rifi, hann fór
ekki langt frá bænum þar sem
hann ólst upp. „Eg fór rétt hinum
megin við lækinn”, eins og hann
orðar það sjálfur. Þar reisti hann
fjölskyldunni hús og þaðan hefur
hann gott útsýni til hafnarinnar
og sér vel út á Breiðafjörðinn.
„Hér hefur mér liðið vel og er afar
hamingjusamur maður. Ég hef
eignast góða fjölskyldu sem hefur
verið virkur þátttakandi í útgerð-
inni og líklega hefði hún aldrei
gengið jafn vel ef við hefðum ekki
staðið svona vel saman eins og
raun bar vitni.”
Asamt útgerðinni hefur Krist-
inn verið í ýmis konar félagsmál-
um, hann sat í sveitarstjórn á
tímabili og hefur verið virkur í
ýmis konar félagastarfi. Þá gekk
hann til liðs við kirkjukórinn eftir
að hann hætti á sjó og starfið og
söngurinn þar segir hann að veiti
sér mikla ánægju. „Það má eigin-
lega segja að fyrirtækið og þetta
félagsmálavafstur séu mín aðalá-
hugamál,” segir Kristinn og er
ákveðinn í að halda áfram þessum
atvinnurekstri af fullum krafti
„meðan maður hefur heilsu til en
svo verður tíminn að leiða það í
ljós hvort afkomendurnir vilja
halda áfram”.
Kristinn er bjartsýnn þegar
hann horfir til framtíðar síns
heimabæjar: „Það er mikill styrk-
ur fyrir lítið sjávarþorp að þar séu
aðilar að baki útgerðinni sem
skapa festu. Fengsæl fiskimið eru
hér rétt fyrir utan þannig að ná-
lægðin við auðlindina er ótvíræð.
Og það hefur verið gæfa bæjarins
að hér hafa frá upphafi verið ein-
staklingar sem vilja standa að at-
vinnurekstri með talsvert mikilli
reisn - og ég hef fulla trú á því að
svo verði áfram.
óhó
J SAMSKIP
ös/uim s/ó/nöft/uim (Hj^J/ö/s/: (//(/(un
tí/ /lamíngýii/ i/)C(f < yóiii(í(i( f (r(/(((j(i)(t /
Símar:
Afgreiðsla
GSM
Bílasímar
436 1262
892 1388
852 1388, 852 7877
& 852 3292
Vörumóttaka Reykjavík:
Landflutningar hf. Skútuvogi 8 Sími 568 5400
Opið mánudaga tiljimmtudagafrá 8 tiL 17 og föstudagafrá 8 til 16.