Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 20

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 20
18 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 í trollinu. Mitt hlutskipti var eins og svo margra sem eru að stíga sín fyrstu skref til sjós að vera settur í nálakörfuna, sem var hálf niður- lægjandi að mér fannst. Svona leið vaktin og 1-d. 18.30 lauk henni, en til upplýsinga fyrir þá sem ekki vita þá ganga vaktirnar rannig fyrir sig að morgunvaktin ryrjar kl. 6.30 til 12.30, dagvakt- in er frá kl. 12.30 til 18.30, kvöldvaktin er frá 18.30 til 00.30 og næturvaktin er frá 00.30 til 6.30 og annað hvort stendur maður dag- og næturvakt eða morgun- og kvöldvakt. Þegar ég var búinn að borða fór ég upp í brú því mig langaði að fylgjast með þegar trollið var látið fara. Trollið var síðan látið fara með miklum látum að mér fannst og allir á hlaupum á dekkinu. Því næst fór ég að sofa og gekk mér í fyrstu illa að sofna því spenna og eftirvænting var í mér, en mér tókst að sofna og hafði ekki sofið lengi þegar ég vaknaði við ógurleg læti að mér fannst og vissi ég ekki hvað gekk á, mér fannst eins og væri verið að skera skipið í tvennt eða við að lenda í árekstri við ann- að skip. En það sem í raun var að gerast var að það var verið að taka trollið og bobbingalengjan var að skúrra eftir dekkinu, en þess skal gedð að dekkið fyrir ofan íbúðirn- ar var klætt með timbri, þannig að reyndum sjómönnum fannst þetta léttvægt hljóð miðað við þau skip sem ekki voru með tréklæðningu. Hljóði þessu vandist ég fljótt og vaknaði ekki aftur þegar trollið var tekið. Ég var síðan ræstur kl. 24.00 og fékk ég mér kvöldkaffi ásamt hinum á vaktinni. Óargadýr um borð Kl. 00.30 fórum við út á milli- dekk til að leysa stýrimannsvakt- ina af og var vinnulagið þannig að sú vakt sem var við vinnu kom ekki inn fyrr en hin var mætt á svæðið. Mér var réttur hnífur til að blóðga fiskinn og gekk það ágætlega, fiskurinn rann niður móttökuna til okkar og settur var sjór í móttökuna til að fleyta fisknum niður. Þar sem ég í sak- leysi mínu stóð þarna og blóðgaði þá fiska sem þar voru, sá ég allt í einu risastóra skepnu með galop- inn kjaftinn koma á móti mér. Mér brá mikið og beið ekki boð- anna og gerði mig líklegan til að taka þessa ljótu skepnu og henda henni út um slóglúguna, en félaga mínir stoppuðu mig og spurðu hvort ég væri alveg vitlaus, að ætla að henda þessum fislci. Eg svaraði því til að ég skildi ekki hvað þeir ætluðu að gera við þennan risa stóra marhnút og þá hlógu þeir að mér og sögðu að þetta væri einn inn á milli 5 og 6 á morgnana og skipt yfir á flottrollið og varð að vanda vel að láta flottrollið fara m.a. passa að ekki myndi snúast upp á það og einnig var mikilvægt að lása hlerunum rétt í. Flottroll- ið var yfirleitt dregið í um 6 tíma eða lengur en það fór eftir hvernig „gekle” inn í trollið. Þetta var besti og dýrasti fiskur sem hægt væri að fá, þ.e. skötuselur. Ekki réðust fleiri óargadýr á mig í þetta sinn og gekk vel að blóðga. Því næst var farið í það að slægja fisk- inn og koma honum niður í lest. Ekki þótti eftirsóknarvert að vera niður í lest því það var mikið púl að taka á móti fiskinum og skipt- ust því menn á að fara í lestina, allir nema bátsmaðurinn og var skiptingin þannig að maður var aðra hverja vakt í lestinni. Nú var komið að því að taka trollið, því oftast var trollið dregið í 3 til 4 tíma ef ekkert kom upp á. Þvílík læti sem gekk á að taka blessaða trollið, það var eins og heimurinn væri að farast að mér fannst, allt varð að ganga mjög hratt, þ.e. að lása hlerana úr og hífa keðjurnar svo eitthvað sé talið upp en allt gekk þetta þokkalega vel þótt óvanur væri, keppni var um að vera á undan þeim sem voru á móti hinumegin að lása úr. Trollið var tekið leyst frá pokan- um og bundið aftur fyrir og troll- ið látið aftur fara, allt þetta tók oftast um 20 mínútur. Svona gekk þetta fyrir sig allan túrinn þegar botntrollið var undir. Trollið fiskar ekki um borð Annað veiðarfæri var einnig notað en það var flottroll og fannst mér það mjög spennandi veiðarfæri. Botntrollið var tekið mjög spennandi því í raun vissi enginn hve mikið var í trollinu ef á annað borð eitthvað var í því. En síðar er ég var um borð feng- um við einu sinni 70- 80 tonna hal og var það tignarleg sjón að sjá þegar það var komið um borð, pulsurnar voru kjaftfullar frá skut upp að flottrollstromlu, en þá þurfti líka að vaka í 54 tíma sem var í raun ekkert vit í. Það sem kom mér mest á óvart var allur þessi asi í öllu, allt varð að gerast svo hratt og þegar ég hafði orð á því af hverju allt væri gert með svo miklum hraða var mér t.d. bent á að troll sem væri upp á dekki fiskaði ekki mjög mikið. Annað sem kom mér skemmtilega á óvart var að ég fann ekkert fyrir sjóveiki og taldi ég það vera vegna þess hve veðrið var gott en þau sumur er ég var til sjós þá fann ég aldrei fyrir sjó- veiki. Netafeitin og togklukkan Þeir sem reyndari voru um borð reyndu margt til að koma okkur hinum óvönu úr jafnvægi með ýmsum hætti og var fyrst mikið öskrað á okkur um hvernig við ættum að gera hitt og þetta og það einungis gert til að stríða okk- ur. Ég var fljótur að sjá það að ef maður svaraði ekki strax fyrir sig þá ætti maður á brattann að sækja. Þannig að ég svaraði full-

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.