Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Síða 24

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Síða 24
22 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 kjörna og B-listi framsóknar fékk 68 atkvæði og einn mann kjörinn - vantaði 2 atkvæði til að fá tvo menn kjörna. Síðustu 4 atkvæðin höfðu því algjörlega ráðið úrslit- um. - 137 atkvæði se-m voru sam- tals atkvæði A og B lista voru því í minnihluta fyrir 105 atkvæðum C -listans. En nú lá líka fyrir að kjörstjórn hafði úrskurðað 5 seðla ógilda vegna þess að krossinn á þeim náði yfir lóðrétt strik á kjör- seðlinum sem greindi listana að. Er þetta var ljóst áskildi ég A- listanum rétt til að áfrýja úrskurði kjörstjórnar til yfirkjörstjórnar hvað varðaði þessi 5 atkvæði. Þessu mótmælti umboðsmaður lista sjálfstæðismanna með óskap- legum hávaða en hann var maður raddsterkur og mikill fyrir sér og sagði að umboðsmenn hefðu verið búnir að samþykkja úrskurði kjör- stjórnar. Eg henti honum á að að- ferðin hefði verið santþyldtt en eldti úrskurðirnir sjálfir. Hrópaði hann þá að þetta væri samnings- Guðbrandur Guðbjartsson, hreppstjóri var formaður kjörnefndar. rof og barði svo fast í borðið að það næstum brotnaði. „ þetta eru helv — hundar” Hófust nú hróp og köll frammi í sal, enda nokkrir með flöskur í rassvasanum að dreypa á, og varð af mikil ókyrrð. En þá kom eins og olía á eld að umboðsmaður B- listans sagðist líka ætla að kæra úr- skurði kjörstjórnar og að hann væri algjörlega sammála því sem ég hefði sagt um stöðu mála. Sneri þá Markús sér að Stefáni með mikilli háreysti og varð þarna hörku rifrildi og hávaði eins og þegar Olsurum tókst best upp á þessum árum. Ókyrrðin í salnum magnaðist og í öllum hávaðanum og látunum heyrðust köll eins og „þetta eru he...... hundar“ og aðrir sögðu að snúa ætti suma menn úr hálsliðnum. Geta má nærri að nú var allt komið í upp- nám fram í sal, pústrar og ýfingar byrjaðar,- engir lögreglumenn þá starfandi í Ólafsvík, en kjörstjórn sat ráðalaus og gat ekki lokið frá- gangi nauðsynlegra kjörgagna vegna ófriðar og óróa í salnum. Eldti hefði þurft annað til en að einhverjum úr salnum væri hrint á borð kjörstjórnar þá hefðu at- kvæðaseðlarnir sem þar lágu dreifst um allt gólf og kosningin sennilega orðið ógild. Hrópaði þá Alexander Stefánsson á sr. Magn- ús, sem var efsti maður á lista sjálfstæðismanna, og bað hann að reyna að stilla „þessa kolóðu stuðningsmenn sína“. Reyndi sr. Magnús þetta og tókst að fá nokkra erfiðustu stuðningsmenn- ina út úr kennslustofunni með sér en hiti var orðinn svo mikill í mönnum að lætin minnkuðu nánast ekkert við það. Seinast tóku nokkrir góðir menn sig saman um að hver og einn fengi sína flokksmenn til að yfirgefa kjörstaðinn , ryðja skóla- stofuna og skella í lás svo kjör- stjórn gæti lokið hlutverki sínu. Eftir að það tókst voru aðeins kjörstjórnarmenn og umboðs- menn listanna eftir í stofunni. Hins vegar heyrðum við er þar sátum að stöðugt rifrildi, pústrar og stympingar héldu áfram frammi á gangi skólans í all nokkurn tíma eftir þetta. Allir í róður að morgni Það var svo ckki fyrr en um klukkan 4 um nóttina sem kjör- stjórn hafði loks lokið ritun gjörðabókar, innsiglað kjörseðla og gengið frá öðrum kjörgögnum en um svipað leyti héldu flestir bátar til hafs í róður frá Ólafsvík . Jónas Þorvaldsson, skólastjóri, var í kjörnefnd. Viku síðar var úrskurði undir- kjörstjórnar á 5 ógildum seðlum vísað til yfirkjörstjórnar í Snæfells- nes- og Hnappadalssýslu, en þar var fyrri úrskurður undirkjör- stjórnar staðfestur. Að lokum skal þess getið að hvergi í fjölmiðlum þess tíma er minnst á þessa spennuþrungnu talningu atkvæða í gamla barna- skólahúsinu í Ólafsvík aðfaranótt 1. febrúar 1954 og mun lýsing af þessum atburði eldci hafa verið skráð áður svo vitað sé og nú margir fallnir frá sem upplifðu jessa sérstæðu og minnisstæðu cosninganótt. ■1 Sími: 435 6690 ■ Fax: 435 6790 Verslun - veitingar - bensín - olíuvörur Smur- dekkja- og vélaviðgerðir Opið frá 900-2300 - Verið velkomin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.