Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 28

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 28
26 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 Magnús Stefánsson fyrrv. alþingismaður: Ræða flutt á Sjómannadaginn í Ólafsvík 1999 Ég óska sjómönnum og f)öl- skyldum þeirra til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn er jafnan einn helsti hátíðardagurinn í sjáv- arbyggðum landsins, enda byggir tilvera okkar sem í sjávarbyggðum báum að mestu á sjávarútvegi. Ég vil leyfa mér að nota þetta tæki- færi til þess að þakka þeim og hrósa í senn sem í gegnum tíðina hafa borið hitann og þungann af hátíðarhöldum sjómannadagsins hér í þessu byggðarlagi og hafa með áhuga sínum viðhaldið þeirri sterku hefð sem felst í sjómanna- dagshátíðinni. Ekki er síður vert að minnast útgáfu sjómannadags- blaðsins, ekki aðeins vegna þess hve ánægjulegt er jafnan að lesa það fróðlega efni sem í þvf er,heldur eldti síður vegna hinnar mikilvægu heimildasömunar um fólk, líf þess og störf fyrr á tímum sem felst í þessari útgáfu. Það er í senn fræðandi og hollt fyrir okkur sem búum í samfélagi nútímans að kynnast því við hvaða aðstæður fólk lifði og starfaði hér áður fyrr. Þannig getum við betur metið ?að hve miklar framfarir og upp- jygging hefur átt sér stað í okkar þjóðfélagi á ótrúlega stuttum tima. Ég lít á það sem forréttindi að hafa fengið að alast upp hér í Ólafsvík, einni umsvifamestu sjáv- arbyggð landsins, á þeim tíma þegar mest uppbygging var hér, meðal annars vegna mikilla um- svifa í útgerð og fiskvinnslu. Þannig hef ég fengið að taka þátt í lífi og starfi þess fólks sem hér hefur búið, það hefur í senn verið lærdómsríkt og ánægjulegt. I þeim störfum sem ég hef gegnt síðustu árin hefur það reynst mér mikils virði að hafa verið til sjós og upplifað tilveru sjómannanna og þeirra sem þeim tengjast. Það hlýtur að vera mikil- vægt fyrir þá sem fjalla um sjávar- útveg og önnur mál sem snerta þessa mikilvægu atvinnugrein og fjalla um þá fjölmörgu sem við sjávarútveg starfa og tengjast hon- um á einhvern hátt, að hafa kynnst því af eigin raun hvernig hlutirnir eru í reynd. Fiskveiðar og nýting auðlind- anna í hafinu er einn grundvallar þáttur í tilveru okkar þjóðar. Það skiptir afar miklu máli til framtíð- ar litið að nýting og umgengni um auðlindir hareins í nútíman- um sé með þeim hætti að ekki sé um ofnýtingu að ræða þannig að við völdum ekki varanlegu tjóni á lífríkinu. Við höfum upplifað slíkt ástand ofnýtingar helstu nytja- stofna, við höfum lagt í erfiðar að- gerðir til þess að byggja fiskistofna upp á nýjan leik, við höfum reynslu í þessum efnum og eigum að læra af þeirri dýrkeyptu reynslu. I raun og veru segir þetta okkur það að við getum ekki og munum ekki geta sótt óheft í fiskistofnana eins og gert var fyrir ekki svo löngu síðan, það er sú blákalda staðreynd sem við stönd- um frammi fyrir. Vegna þeirra miklu og ólíku hagsmuna sem tengjast sjávarútvegi er eðlilegt að þjóðfélagsumræðan snúist öðru fremur um það hvernig skuli stjórna veiðum úr fiskistofnunum. Það hefur komið upp missætti um málið, að sumu leyti byggt á van- jekkingu og rætnum hugsunar- íætti en að sumu leyti á réttum og skiljanlegum forsendum. Allir íslendingar hljóta að vera sammála um mikilvægi þess að samræma sem mest sjónarmiðin þannig að sem minnst missætti verði meðal þjóðarinnar um fiskveiðistjórnina og þessa höfuð atvinnugrein sem skiptir okkur svo miklu máli. Það er ljóst að ýmsar leiðir eru til að stjórna fiskveiðum en við hljótum að ganga út frá því að sú leið sem farin er skili samfélaginu í heild mestum ávinningi og að útgangs- punkturinn sé sjálfbær nýting fiskistofnanna. Þannig getur auð- lindin í hafinu skilað okkur mest- um arði í víðustum skilningi, bæði í nútímanum sem í framtíð- inni. Við skulum hins vegar gera okkur það ljóst að meðan þarf að takmarka sókn í fiskistofnanna og halda veiðum í skefjum, þá verður fiskveiðistjórnun umdeild — hvaða leið sem farin er í þeim efn- um. Sjávarútvegurinn, útgerðin og fiskiðnaðurinn hefur á liðnum áratugum skapað flest störf í sjáv- arbyggðunum í landinu. Sú þró- un hefur orðið á síðustu árum að kröfur um aukna hagræðingu og bætta afkomu atvinnufyrirtækj- anna hefur markað grunninn að því að þörf fyrir mannafla í sjávar- útvegi hefur minnkað mikið, tæknin og vélvæðingin hefur á mörgum sviðum gert manns- höndina óþarfa. Það er ljóst að þessi þróun stendur ennþá yfir og gera má ráð fyrir því að á allra næstu árum muni störfum í sjáv- arútvegi, sérstaklega í fiskiðnaði, fækka enn frekar. Þetta er ákveðið áhyggjuefni ef litið er til atvinnu- og búsetuþróunar í landinu, því atvinnulífið á landsbyggðinni byggir að miklu leyti á útgerð og fiskiðnaði og fækkun starfa í þeim greinum getur valdið frekari bú- seturöskun í landinu. Af þessum sökum verða byggðarlögin að leita nýrra leiða til þess að halda uppi öflugu atvinnulífi og viðhalda byggðinni. Mikil samkeppni er milli byggðarlaga, bæði á landsbyggð- inni og höfuðborgarsvæðinu um

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.