Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 37
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
35
)æja nú getið þið keypt
Viðtal við 5 dugmikla bræður í Ólafsvík
Það var nóg að gera hjá bræðr-
unum fimm sem eiga Steinunni
SH 167 frá Ólafsvík þegar ég
skrapp um borð til þeirra einn
morgun í maí s.l. til að spjalla við
þá. Þeir voru þá að skipta um að-
alvél í bátnum, sem var af gerð-
inni Caterpillar í stað þeirrar er
fyrir var sem einnig var af sömu
gerð, aðeins minni, en hún var
sett niður árið 1990. Reyndar
voru þeir að skipta um þrjár vélar
því að Ijósavélarnar tvær voru
látnar víkja líka sem einnig eru af
Caterpillar gerð.
Samtalið við þá bræður fór fram
í glæsilegu húsnæði Steinunnar
ehf. niður við höfn sem þeir eru
nýbúnir að láta innrétta. Uppi eru
þeir með flotta skrifstofu. Einnig
er þar góður eldhúskrókur þar
sem bæði eigendur og gestir þeirra
geta fengið sér kaffi og útsýnið er
gott yfir höfnina. Arný Bára Frið-
riksdóttir eiginkona Ægis starfar á
skrifstofunni og sér um bókhald-
ið. Þetta húsnæði hýsti áður fisk-
verkunina Stakkholt hf. Ægir gaf
sér ekki tíma þennan morgun til
að spjaila þar sem hann hafði nóg
Kristmundur Halldórsson ásamt sonum sínum: F.v. Sumarliði, Þór, Halldór, Ægir,
Brynjar og Óðinn. Með þeim á myndinni, lengst til hægri, er Ómar sonur Laufeyjar.
Allir voru þeir að vinna við
þetta verk en greinilegt var að
Ægir vélstjóri stjórnaði verkinu.
Þá starfa einnig menn frá Vél-
smiðju Árna Jóns við niðursetn-
inguna. Þessir bræður sem ætlun-
in var að tala við eru þeir Brynjar
sem er þeirra elstur, þá Sumarliði,
Ægir, Þór og Óðinn. Þeir eru
synir þeirra hjóna Kristmundar
Halldórssonar sem var lengi skip-
stjóri í Ólafsvík en hann lést árið
1997 og Laufeyjar Eyvindsdóttur
en hún lést á s.L.ári. Alls áttu þau
hjón níu börn og búa þau öll í
Ólafsvík að undanskilinni Krist-
ínu sem býr í Þýskalandi. Fyrir
átti Laufey einn son er býr í Hafn-
arfirði.
að gera við niðursetningu vélar-
innar. Nýlega keyptu þeir bræður
hluta af þessu húsnæði af Fisk-
markaði Snæfellsness hf undir
starfsemi sína.
Hjá þeim bræðrum ríkir mikil
snyrtimennska því allt var þar
pússað og fágað. Þarna inni eru
geymd allskonar veiðarfæri.
„Jæja nú getið þið keypt“
„Upphafið að þessari útgerð hjá
okkur bræðrum var sú“ segir
Brynjar, „að við stóðum uppi
einn daginn atvinnulausir. Þetta
var árið 1990. Astæðan var að
tekin var ákvörðun hjá stjórn
Stakkholts að selja skyldi alla bát-
ana þrjá þ.e.a.s. Steinunni sem ég
var með, Matthildi sem Þór var
skipstjóri á og Haukafellið sem
Óðinn var með. Ægir vann í
rækjuvinnslunni í landi hjá Stakk-
holti og Summi var með mér á
Steinunni. Eftir að þessi ákvörð-
un var tekin hitti ég pabba þenn-
an sama dag og hann segir við
mig. „Jæja nú getið þið keypt“.
Ég kom alveg af fjöllum og
hann sagði mér þá hvað væri í
gangi. Ég segi þá við hann að við
gerum þetta allir bræðurnir saman
ásamt honum Bræðurnir eru allir
sammála um að ef þetta hefði ekki
orðið þá hefðu þeir flutt úr bæn-
um.
„Þá fórum við allir að ræða sam-
an og niðurstaðan varð sú að við
gerðum tilboð í Steinunni SH í
nafni Steinunnar ehf, félags sem
við stofnuðum bræðurnir, pabbi
og mamma, en áður var komið
tilboð í hana að sunnan. Við feng-
um að ganga inn í hæsta tilboðið
sem var 109 millj. A þessum tíma
var þorskígildið selt á 123 kr kíló-
ið og kvótinn á bátnum var 450
tonna þorskígildið. Þetta var heil-
mikið, átak því við áttum ekki
neitt nema bjartsýnina“ segja þeir
bræður.
Dæmið gekk upp
„Þegar við fengum bátinn af-
hentari fórum við strax á rækju og
lönduðum á Isafirði. Við vorum
fjórir um borð í byrjun. Ég“ segir
Óðinn „ Brynjar var skipstjóri,
Summi kökkur og annar vélstjóri
ogÆgir vélstjóri en'Þór var áfram
með Matthildi um tíma en Bakki
hf var þá búinn að kaupa bátinn".
Þegar þeir hættu á rækjunni
fóru þeir á dragnót og lönduðu
aflanum á markað..
Það var ljóst hjá þeim bræðrum
að til að þetta dæmi gengi upp
yrðu þeir að herða sultarólina
verulega og gerðu þeir það strax.
„Við byrjuðum á að skammta
oklvur kaup og upphæðin sem við
var miðuð var 100 þúsund kall á