Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 39

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 39
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 37 „Við seldum síðan úreldingar- réttin á Gunnari Bjarnasyni til Gunnu Lár hjá Stálskipum og gát- um selt skrokkinn á honum til Noregs og við sigldum honum sjálfir þangað sumarið 1994 og kaupverðið var 5 millj“ segir Þór, „ en við fengum aldrei nema rúm- ar fjórar“. Bankinn vildi ekki ganga að okkur Eins og áður sagði gerðu þeir bræður þetta allt í samráði við Landsbankann og þegar fór að harðna á dalnum kom ósk frá bankanum um að selja Garðar líka. „ Bankinn vildi ekkert ganga að okkur en hann fór fram á að við seldum Garðar 11 líka til að grynnka á skuldunum“ segir Brynjar. „Við sögðum alltaf nei við því og við sáum það líka á eftir að ef við hefðum gert það hefðum við stórtapað á því. Astæðan var sú að þegar við tókum ákvörðup um að selja hann 1995 að þá hafði síldar- og rækjukvótinn hækkað verulega í verði ásamt þorskkvótanum líka. Við seldum hann með rækju- kvóta til Snæfellings sem þá var nýstofnað hér í Olafsvík í húsa- kynnum HÓ. Við tókum þorsk- kvótann af honum og seldum ýsu- kvótann og fengum einnig hlut í Snæfelling ásamt einhverjum pen- ingum líka. Á þessum tíma vorum við komnir með fast að 700 tonna kvóta sem var nokkuð gott á svona bát“. Núna gera þeir bræður út Stein- unni og hafa þeir verið á dragnót frá árinu 1994 og segja þeir að það komi vel út þar sem ódýrast er að gera út á aðeins eitt veiðar- færi. Ekki mátti miklu muna Það hefur oft verið um það rætt hverjar afleiðingarnar gætu orðið ef margir ættingjar væru á sama bátnum hvað þá sex bræður eins og nú eru um borð í Steinunni ef slys myndi henda. En það varð einmitt slys um borð hjá þeim bræðrum fyrsta árið sem þeir áttu Steinunni. Þá voru þeir í septem- ber á rækjuveiðum úti í Kolluál og voru þá fjórir um borð en Þór var þá með Matthildi. „Við vorum þá að ganga frá til að fara í land ög það var kominn bölvaður SV kaldaskítur“ segir Óðinn. „Ég var framá“ heldur hann áfram, ,,og var að ganga frá bómunni í sæti en þá slteður það að ég ætla að fara að slá henni að- eins til og ég stend við hliðina á henni. Vélin var á miklum snún- ingi og ég svinga henni óvart í öf- uga átt og hún lendir á mér og við það slær hún mig í sjóinn út um gat sem var á rekkverkinu og ég var ekki í flotgalla“. „Ég sé hvað er á seyði“ segir Sumarliði „og flýti mér að sækja flotbúning sem var í bátnum en þeir voru til taks þar sem við vor- um nýbúnir að vera að skrúbba bátinn í fjörunni. Þegar ég kem upp aftur hendi ég mér í sjóinn en í fátinu gleymi ég að binda við mig línu. Ég næ ekki til Óðins þar sem ég flýt bara frá bátnum í rok- inu en ég sé alltaf hvað er að ger- ast um borð í bátnum“. Þegar Óðinn fellur fyrir borð þá heyrir Brynjar sem var afturá ásamt Ægi að Sumarliði kallar hvað hefði gerst Hann stekkur þá inn í brú og getur þá snúið bátnum þannig að þá nær Óðinn taki á trollinu sem hangir útaf að aftan. „Ég var í sjó- galla“ segir Brynjar „og tek „rússa“ sem var á delddnu og stekk út fyr- ir og næ að hnýta hann utan um Óðinn. Það var svo mikill velting- ur að ég átti erfitt þar sem sjórinn var í gallanum og ég hékk í netinu og komst ekki upp. Þá gat ég hnýtt í ntig spottanum líka og ég sagði Ægi að hífa mig um borð. Þá var eitthvað ólag á spilinu og það hífði ekki alltaf og hann gat ekki dregið mig upp þar sem ég var svo þungur. En að lokum tókst honum það þó og síðan Óðinn á eftir og þannig bjargaði hann okkur báðum" sagði Brynj- ar. Þegar þetta var allt afstaðið var farið að dimma mikið. Brynjar fer þá inn í stýrishús lcúplar að vélinni og þeir keyra í átt- ina að Sumarliða sem rak sífellt lengra í burtu. Hann getur svo lagt að honum eft- ir tvö til þrjú- hundruð metra keyrslu. Þar sem sífellt brældi meira og meira og bátur- inn valt dýpra náði Sumarliði talú á rekkverkinu í einni veltunni og gat híft sig sjálf- ur um borð. „Ég var alveg skrauf- þurr og heitur í búningnum“ sagði Sumarliði. Allir voru bræð- urnir sammála um það að ekki hefði mátt miklu muna og að þarna hefði getað orðið stórslys en fyrir guðsmildi var því afstýrt. Framtíðin er björt Aðspurðir hvers vegna þeir hefðu ekki verkað fisk segja þeir bræður að ekki hefði verið áhugi fyrir því hjá þeim. Þeir vilja bara róa og landa sínum afla á fisk- markað. Um framtíðina segja þeir að þeir muni halda áfram að gera út og stunda sína vinnu um borð í sínum bát. Það er ekki annað hægt en að dást að þessum dug- miklu og fjörugu útgerðar mönn- um og bræðrum. Samheldnin er mikil og þeir gera meira en að róa því oft fara Brynjar og Sumarliði að athuga staðsetningu á GPS tæki á Langjökli um páska s.l. vetur.

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.