Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Qupperneq 51
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
eftir einu atviki þegar hann kom
heim, en þá þekkti ég hann ekki.
Hann hafði þá látið sér vaxa
myndarlegt yfirvaraskegg og var
heldur ófrýnilegur. Eg tók hann
nú samt fljótlega í sátt aftur, en þó
ekki fyrr en hann hafði rakað af
sér ósköpin. En síldina hef ég
aldrei tekið í sátt. Allar sjó-
mannafjölskyldur, sem búa við
langar fjarvistir, eiga í fórum sín-
um sögur í þessum dúr og einmitt
þess vegna er sjómannadagurinn
mikilvægur, því að þá sameinast
fjölsleyldur og gera sér glaðan dag.
Sjómannadagurinn hefur alltaf
átt mikil ítök í mér. Fyrst man
ég eftir leikjunum á Drimbunum
og seinna hér í Sjómannagarðin-
um. Þegar ég eltist fór ég að taka
þátt í kappróðrum og á meira að
segja fáeina verðlaunapeninga frá
þeim árum. Loks kom að því að
ég fékk að fara á sjómannaböllin
og var þá oft hýru auga rennt til
einhvers aðkomusjómannsins.
Þetta á ég allt sameiginlegt með
jafnöldrum mínum héðan af
Sandi, en það sem færri vita er að
ég á líka minn sjómannsferil að
baki, þótt ekki sé hann frækinn.
Mín sjómennska hófst um miðja
nótt í fremur slæmu veðri. Við
Sigrún Baldursdóttir höfðum tek-
ið þá ákvöðrun að nú skyldum við
gerast sjómenn og eftir að hafa
nauðað lengi í Ragnari Olsen og
Palla Stefáns, sem þá var skipstjóri
á Hamrasvani, var ákveðið að
leyfa okkur með í netaróður. Við
mættum nokkuð brattar um borð,
með sjóveikiplástur vel falinn
undir hárinu og bárum okkur vel,
svona framan af. Þegar leið á
morguninn fór mesti glansinn að
fara af. Morgunmaturinn endaði
í hafinu og við í koju. Því er
skemmst frá að segja, að þegar
Hamrasvanur lagðist að br.yggju
________________________________49_
seinni part dags, lauk sem sé,
mínum sjómannsferli, en virðing
mín fyrir sjómönnum jókst að
sama skapi til muna.
Að lokum vil ég minnast á
markmið sjómannadagsins, en
þau hafa frá upphafi verið; að efla
samhug sjómanna, kynna þjóð-
inni starf þeirra og minnast
drulcknaðra sjómanna. En sjó-
mannadagurinn hefur alla tíð gert
meira, en að efla samhug sjó-
manna. Eins og við finnum best
hér í dag, eflir svona hátíð samhug
allra þeirra, sem við sjávarsíðuna
búa.
Ég óska sjómönnum og okkur
öllum, hamingju og gleði á þess-
um hátíðisdegi og bið Guð að
gefa ykkur góðar stundir.
ÖRN ARNARSON ehf.
VÖRUFLUTNINGAR
Lindarholt 2 • 355 Ólafsvík, Snæfellsbær
Símar: 436 1260 • 892 1880 • 852 1880
Óska öllum
Sendum öllum sjómönnum sveitungum mínum
og fjölskyldum þeirra bestu og sjomönnum
óskir í tilefní til hamingju
Sjómannadagsins! með daginn!
ICEDAN H/F ÚTGERÐARVÖRUR FISKBÚÐIN HAFRÚN
Óseyrarbraut 4 • Hafnarfirði Slcipholt 70, Reykjavík
Sími: 565 3950 • fax: 565 3952 Sími: 553 0003 Magnús Sigurðsson
HÉÐINSGÖTU 2-105 Rvk
5. 581 3030 • fax. 581 3036