Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 65

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Side 65
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 63 Guðjón Petersen: Það var óblandin hátíðar- stemming í hjörtum okkar allra sexmenninganna sem sigldum Björginni heim þegar við rennd- um inn í Rifshöfn nákvæmlega kl. 15:00 hinn 30. ágúst 1997. Þrátt fyrir norðaustan hvassviðri og kulda í lofti voru hafnarbakk- arnir krökkir af fólki sem komið var til að taka á móti hinu nýja björgunarskipi og fagna því. Ferðinni var lokið og Björgin komin heiin. Það var snemma sumars 1997 sem endanlega var ákveðið af hálfu SVFI, í samráði við björg- unarsveitirnar á Snæfellsnesi að næsta björgunarskip, í röð björg- unarskipa sem komið hefur verið fyrir á nokkrum stöðum á land- inu, verði á Rifi.Varð bæjarstjóra það á að anda því út úr sér við sr. Björgin heim Olaf Jens Sigurðsson, formann Slysavarnadeildarinnar Bjargar, að hann hefði verið skipherra á einu af varðskipum ríkisins og varð það til þess að undirrituðum var falið að taka að sér skipstjórnina á heimsiglingunni. Auk undirritaðs voru í áhöfninni þeir Páll Stefáns- son og Magnús Emanúelsson sfyrimenn og Davíð Óli Axelsson vélstjóri. I hópinn bættust svo við tveir Hollendingar, báðir vélstjór- ar og náði þessi hópur að mynda strax eina samstiga heild með góð- um og glaðværum starfsanda. Við fjórmenningarnir flugum frá Keflavík til Amsterdam kl. 07:20 þann 21. ágúst og aðeins tveim og hálfri klukkustund eftir að við lentum í Amsterdam vor- um við komnir út á Norðursjó í reynslusiglingu á bátnum, en heimahöfn hans var í Shevin- ingen. Til marks um hve öll mál gengu með ólíkindum hratt fyrir sig er að búið var að ákveða brott- för daginn eftir kl. 18:00 til Sto- nehaven í Skotlandi sem var fyrsti áningarstaður á leiðinni heim til Islands. Var því þessi fyrsti dagur vel nýttur til að kynnast skipinu í heild og tæknibúnaði þess. Um kvöldið leyfðum við okkur svo að slappa af yfir góðum kvöldverði, eftir vel heppnaðan dag. Áhöfnin fyrir framan Björgina í slipp í Shevingen. Magnús, Páll, Páll Ægir, Guðjón og Davíð Óli. Eftir æfingaferð á bátnum dag- inn effir, ásamt fráfarandi skip- stjóra, þar sem æfð voru hin ýmsu stjórntök við beitingu skipsins innan og utan hafna, og marg- háttaðan undirbúning sem stóð allan daginn var lagt úr höfn úr Sheveningen og stefnan tekin á Stonehaven í Skotlandi. Var skip- ið lcvatt með virktum og voru slökkvi-og sjúkrabílar á hafnar- garðinum með blikkandi ljósum og sírenur gaulandi þegar við sigldum út í fylgd annarra björg- unarskipa fyrsta spölinn. Vorum við brátt komnir á fulla ferð út á Norðursjó inn í hriúgiðu af um- ferð stórskipa sem gerðu okkar skip að örverpi í því samfélagi. Höfðum við gaman af því að ná- lægð okkar litla skips olli veruleg- um taugatitringi meðal olíubor- manna og stórskipaskipstjóra og fengum við uppkall í talstöðinni og mikla ljóskastarasýningu ef far- ið var of nærri. Siglingin til Sto- nehaven var að öðru leyti tíðanda- laus og var komið þangað kl. 06:00 að morgni 24. ágúst í logni og sólskini. Var þar teltinn björg- unarbúnaður og fleira smálegt í eigu SVFÍ, til að afhenda Fær- eyska björgunarfélaginu að gjöf. I Stonehaven er sjóbjörgunar- miðstöð og stórmerkileg þjálfun- armiðstöð fyrir björgunarmenn, sem margir Slysavarnarfélagsmenn hafa sótt, en þar ræður ríkjum góður vinur Ásbjörns Óttarssonar á Rifi, Hamish McDonald. Sto- nehaven er lítill og vinalegur bær skammt sunnan við Aberdeen og var notalegt að koma þar í land eftir 36 tíma siglingu, en aðbún- aður um borð í Björg er ekki fyrir langsiglingar. Tvær káetur eru í bátnum og er önnur í stafni með þrem kojum. Þar urðum við að koma okkur fyrir “kem klósett- inu” og öllum farangri þannig að við sváfum allir í aftari káetunni sem er fyrir aftan neðsta stjórn- pall. Deildu tveir af sitt hvorri

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.