Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Síða 66

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Síða 66
64 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 vakt með sér koju. I þeirri káetu var einnig matreitt einu sinni á dag og sá annar Hollendinganna um það en matseðillinn til sjós var pylsur, sem allir borðuðu beint úr sama potti og dýfðu í sinnep- skrukkuna. Til tilbreytingar var stundum niðursoðinn hermanna- matur sem hitaður var í sósunum og borðaður beint upp úr þeim. Gos var til drykkjar en vatns- birgðir litlar og eingöngu til að skola hendur og andlit. Voru staðnar skútuvaktir á leiðinni, þrír á vakt í einu, en þær eru frá kl. 00:00-04:00, 04:00-08:00, 08:00- 12:30, 12:30-20:00 og 20:00- 24:00. Færast vaktir hvers og eins alltaf til með því fyrirkomulagi þannig að menn festast ekki á sömu tímum en fá hver fyrir sig sinn skammt af dag- og nætur- vöktum. Það var tekið vel á móti okkur í Stonehaven af Hamish McDonald og var fyrsta verkið að fara í sturtu og skoða björgunarmiðstöðina og skólann. Var síðan farið með okk- ur í ferð inn í landið til skoðunar. Var ekið upp til Banchory sem er um 38 km. inn í landið en þar er Balmoral Castle, Sumardvalar- staður bresku konungsfjölskyld- unnar í Skotlandi. Var Karl Breta- prins þar með sonum sinum að- eins sex dögum síðar þegar Díana prinsessa af Wales lést í París. Eftir góðan hádegisverð og bjór á veit- ingahúsi niðri við höfnina var far- ið í stórverslun til að bæta á kost- inn og síðan lagt úr höfn kl. 15:00. Var stefnan tekin fyrir Shetlandseyjar og áfram til Þórs- hafnar í Færeyjum. Enn var siglt í góðu veðri alla leiðina og komið til þórshafnar kl. 05:00 að morgni 26. ágúst í Suð- austan golu og skúraveðri. Var ákveðið að taka eins og hálfs sólarhrings frí í þórs- höfn og hvílast fyrir lokaáfanga siglingarinnar heim til Islands. A móti okkur átti að taka Þórhallur Símonarsen formaður Færeyska björgunarfélagsins en skilaboð bárust frá honum um að hann væri á kafi í grindardrápi og ætti því ekki heimangengt. Var því far- ið beint upp á Hótel Hafnía, eftir að við höfðum gengið frá bátn- um, þar sem okkur var vænst. Björgunarskipið vakti mikla at- hygli í Færeyjum og urðum við að fjölmiðlamat þann stutta tíma sem við stoppuðum þar auk þess sem umferð gangandi og akandi fólks var nokkur allan tímann til að skoða bátinn. Var m.a. rætt við áhöfnina af dagskrárgerðarmönn- um frá Bylgjunni og Færeyska út- varpið átti viðtal við undirritaðan um björgunarskip Slysavarnafé- lagsins. Kl. 15:00 þann 27. ágúst var svo lagt af stað aftur í lokaáfang- ann heim og reiknuðum við með 70 klst. siglingu inn Breiðafjörð. Fyrir utan höfnina í Þórshöfn var sægur af Rússneskum verksmiðju- togurum sem við þurftum að fita oklcur á milli. Fórum við síðan í gegnum Vestmannasund og sett- um stefnuna áfram á Vestmanna- eyjar. Komum við að Vestmanna- eyjum snemma morguns þann 29. ágúst og var farið aðeins inn undir hafnarmynnið þar og grunnt fyrir Heimaklett, til að sýna Hollend- ingunum, sem með okkur voru, hina stórbrotnu náttúru eyjanna, og reyndi undirritaður að leiða þá í allan sannleikann um Vest- mannaeyjagosið fyrir 25 árum. Það var leiðinda bræla á loltaá- fanganum heim og vorum við svo “heppnir” að fara Reylcja- nesröstina í því leiðindasjólagi sem fylgir straumi jmót báru og reyndum því að beita bátnum með fullri vélarorku mót nokkrum brotum sem mynduðust í þessu krappa sjólagi til að fá til- fmningu fyrir því hvernig skipið færi í þannig sjó. Var búið að vera vart við lítilsháttar gangtruflanir í annarri vélinni á heimleiðinni og drap hún á sér eftir að báturinn stakkst í ágætisbrot og var þá dregið úr hraða eftir að húm lcomst aftur í gang. Um kvöldið þann 29. ágúst sigldum við svo inn Breiðafjörð og var notalegt að sjá ljósin heima í byggðum Snæ- fellsbæjar þegar við sigldum inn fjörðinn, en farið var inn undir Elliðaey og látið reka þar meðan beðið var birtingar. Komudagurinn var tekinn snemma, hátíðarflöggin sett upp og skipið skúrað hátt og lágt áður en haldið var inn undir Styklcis- hólm til tollafgreiðslu. Eftir að henni lauk var siglt inn á höfnina í Stylckishólmi og fólki sem safn- ast hafði saman á bryggjunni heilsað. Síðan var stefna sett á Grundarfjörð og komið þangað um hádegisbilið þar sem fólki var einnig heilsað, en nokkur fjöldi báta lcom út á móti oklcur og var það hátíðleg stund meðan við tók- um hring um höfnina. í Ólafsvík var svo leikurinn endurtekinn með sama hátíðarbragnum, en þar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.