Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 69

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Page 69
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 67 Formannavísur fluttar á Sjómannadaginn í Ólafsvík í 960 I bréfi Valdimars Kristófersson- ar í Skjaldartröð til Asgeirs Jó- hannessonar dags. 3. júlí 1960 segir m.a: „Svo fór ég með formannavísur á Sjómannadaginn í Olafsvík. Kristján Jensson bað mig, og ég gerði það án getu, því það er ekki hægt að gera svoleiðis um menn sem maður þekkir ekkert per- sónulega. En ég sendi þér samt vísurnar, því það er sem sagt er að oft ratast kjöftugum satt á munn. ...Ég sendi þér þær til gamans.“ Hér býr drótt af dáðum rík, það dylst ei hópi vina. Nú upp skal telja í Ólafsvík aðal formennina. Lætur skríða landi frá Leifur fríðan knörinn „Bjarna“ tíðum aflar á ötull skíðabörinn. Þegninn skýri þróttharður á „Þórði“ snýr til fanga. Steindór tíðum starfsamur Straums-um-mýri langa. Heppinn bæði og harðfengur helst við sjóinn iðinn, keyrir „Glað“ hann Kristmundur með krafti fram á miðinn. Gvendur Jens, með happa hramm hraustur stjórnað getur. „Sæfellinu“ um síladamnr og sækja fáir betur. Jónas Guðmunds gumar tjá, garp á hnísumýri, veiðiheppinn víst er sá „Valafelli“ stýrir. Sagður efnis sjómaður sá með hæfni góða. Á karfaengi kappsamur Konráð stjórnar „Fróða“. Gvend frá Bug oft garpar sjá geysast fram af móði. Á „Víking“ keppir vaskur sá við hann Sigga bróðir. Á „Bárði“ Ríkharð buslar nóg á Breiðafjarðarsundum, get ég fram á Grímsmið þó að garpurinn sæki stundum. Ut á græði ef sá fer afla glæðist fengur, því Jón Steinn skæður jafnan er „Jóni“ ræður drengur. Með aflakóng sinn alhæstann ég Ólafsvík tel rílca. Strákinn Tryggva stórfrægann og „Stapafellið“ líka. Jón með fara „Jökul“ kann jafnan snar á græði. „Bretar“ varast vilja hann sem við þá sparar næði. Heldur Rafn með hetjulund „Hrönn“ á drafnarengi. í minjasafni menn og sprund muna nafn hans lengi. Hér fleira af mengi sækir sjó þótt suma um enginn skrifi. I auðnu lengi allir þó afreks drengir lifi. Sjómannadagsblaðið þakkar Ás- geiri Jóhannessyni kærlega fyrir að halda þessum skemmtilegu vís- unt eftir Valdimar til haga og eft- irláta blaðinu þær. Á þessum Sjó- mannadegi árið 2000 eru rétt 40 ár frá því að þær voru fluttar og allir muna eftir þessum formönn- um okkar Ólsara. Rafmagns- stjórntæki Nákvæm • Einföld • Þægileg Viðurkennd af helstu flokkunarfélögum m.a. Lloyd og DNV i Orugg þjónusta við sjávarútveginn V Skútuvogi 12a • Sími 568 1044

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.