Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Qupperneq 72

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Qupperneq 72
70 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000 að koma í heiminn og lítill tími til undirbúnings, kannski hef ég þvegið mér um hendurnar, ég man það ekki, en þarna fæddist lítil stúlka, 11 merkur, ég man að hún var dálítið dösuð en jafnaði sig fljótt. Þegar ég sagði móður- inni að þetta væri stúlka sagði hún„ aumingja pabbi”. Þá var nú mikið hlegið enda mikið tilefni til að gleðjast eins og alltaf við fæð- ingu heilbrigðs barns, þó prinsinn vantaði í íjölskylduna. Eg veit varla hvar gleðin og þakklætið er mest við fæðingu barns. Enn í dag finnst mér þetta vera þvílíkt undur, og ég fyllist alltaf þakklæti fyrir að mega taka þátt í atburðinum með foreldrun- um. Næsta ferð til fæðandi konu var á Hellissandi og enn var ég sótt um nótt. Ég fékk skilaboð um að hann Guðbrandur , hrepp- stjórinn á staðnum, ætlaði að aka mér áleiðis, en síðan komu menn á móti mér, enginn tími til spurn- inga, bara hraða sér af stað. Ég vissi að enginn vegur var á milli Ólafsvíkur og Hellissands, en fært á bíl í fjöruborðinu ef lágsjávað var. En nú var ekki bílfært og ekki um annað að gera en að ganga. Ut úr myrkrinu birtust tveir menn, yfirvegaðir og rólegir, en gengu greitt. Voru allir svona rólegir á Nesinu, var allt stressið í Reyltja- vík? Þarna kom Forvaðinn í ljós og annar mannanna bauð mér hönd til aðstoðar. Mér var litið uppí bergið sem gnæfði yfir höfð- um okkar, klögukt og ógnandi, og hinsvegar sjávaröldurnar sem teygðu sig kaldar og ógnandi að fótum okkar, svo betra var að vara sig ef maður átti ekki að blotna. Ég hefði ekki viljað vera hér ein á ferð. Bíll stóð á bakkanum og þá komst ég að því að annar maður- inn var sá sem átti von á barninu sínu, hinn var að aðstoða með bílnum sínum. Þegar komið var á áfangastað og gengið inn á heimil- ið var friður og ró yfir öllum, barnið fætt, drengur sem kúrði fyrir ofan móður sína, en hann hafði vakið hana systur sína með háværum gráti þegar hann kom í heiminn. Annað hafði nú ekki farið úr skorðum á þessu heimili. Konan á símstöðinni hafði komið til hjálpar og tekið á móti barn- inu. Ég skildi sannarlega gleði hennar. Þeir karlmennirnir hefðu getað sparað sér ferðalagið, en þá hefði ég misst af ógleymanlegri næturgöngu undir Ólafsvík- urenni. Jólin voru að koma, heimilið barnmargt, en allt var tilbúið fyrir hátíðina, heimilisfaðirinn skreytti húsið með drengjunum sínum, amma tók litlu stúlkuna til sín, og einhver sótti þvottinn sem þurfti að þvo, ung stúlka kom á að- fangadag og undirbjó kvöldmat- inn af miklum röskleika, engin óþarfa störf lögð á ljósmóðurina sem fór glöð í hjarta heim til Ólafsvíkur. Ég hafði tækifæri til að kíkja inn til þessarar fjölskyldu á jóladag, allt var í góðu gengi og jólahald eins og best gerist, börnin glöð í sparifötunum með gjafirnar sínar, ljós og gleði í hverju horni, og sá litli svaf rótt í armi móður sinnar sem hafði fært sig inn í stofuna svo allir gætu verið sam- an. Ég átti enn eftir að taka á móti tveimur börnum sem bæði voru fyrstu börn móður sinnar, þau voru heilbrigð að mínu áliti, en engan barnalækni hafði ég til að staðfesta það. Ég var einnig til aðstoðar Arn- grími við aðrar uppákomur og í því sambandi mun ég seint gleyma Halldóru, húsfreyju í Rifi, sem kom til aðstoðar þegar Ijós- móðurina skorti færni til að svæfa konu með klóriformi, slíku hafði ég aldrei komið nálægt. Halldóra lcorn og huggaði og hughreysti ungu konuna af þvílíkri elsku að ég seint gleymi, gekk síðan að verki með lækninum sem sjálf- sögðum hlut. Það var auðséð að það var ekki í fyrsta sinn sem sú kona mætti á erfiðleika stund. Ég reyndi svo að aðstoða þau eftir bestu getu og hlaut í staðinn góða kennslustund. Halldóra lést fyrir nokkrum árum en hugurinn hef- ur oft hvarflað til hennar gegnum árin. Veru minni í Ólafsvík Iauk nokltru fyrr en áætlað var þegar ég fylgdi fæðandi konu til Reykjavík- ur. Fæðingin fór ekki vel af stað og okkur Arngrími kom saman um að öruggara væri að hún fæddi á sjúkrahúsi. Björn Pálsson kom á flugvél sinni „Vorinu” og flaug með okkur fjórar konur til Reykjavíkur í fögru vetrarveðri. Með í ferðinni var kona sem var að leggjast inn á sjúkrahúsið á Akranesi og ltona sem átti von á barni á næstu dögum og nú var ljósmóðirin að stinga af. Konun- um farnaðist vel. Ég kom heim reynslunni ríkari ekki búin að vinna úr undrun minni á rósemi og æðruleysi hjá þessu ágæta fólki á landsbyggð- inni, sem treysti sínum lækni til að sjá fram úr hverjum vanda. Ég hefði gjarnan viljað vinna með honum lengur. Hann hafði orð á ýmsum hlutum sem honum fannst betur mega fara í fæðingar- hjálp hlutir sem þykja sjálfsagðir í dag. Það var ekki tæknilega hliðin heldur sú mannlega. Nú tók starfið á Akureyri við og aftur á Landsspítalanum á vordög- um 1962. En 7. Október 1963 hóf ég störf á Fæðingarheimili Reykjavíkur. Þar var ég til 7. Október 1992 en þá vantaði eitt ár í þrjá áratugi. Heimilinu var þá lokað en opnað aftur 1994 en sú opnun stóð aðeins í sex mánuði.,, Það er önnur saga”. Ég vann þessa mánuði á heimilinu en fór síðan aftur á Landsspítalann. Störfum hætti ég svo endanlega í árslok 1998 eftir rúmlega 38 ár. Margs er að minnast frá starfsæfinni en ef ég ætti að taka eitt fram yfir annað koma sex vikurnar sem ég dvaldi í Ölafsvík forðum daga helst upp í hugann. Þær voru mér dýrmætur skóli og ljúfar minningunni. Óskum sjómönnum og fjöCskyCdum pcirra tiC hamingju með daqinn. Rafboði I ReyKjavík ehf SKIPAÞJÓNUSTA S: 552 3500
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.