Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2000, Blaðsíða 75
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2000
73
Vörubílaárin á Hellissandi
Fáir sem eklci til þefckja, geta
ímyndað sér þann neista sem
hljóp í mannlífið í Neslireppi
utan Ennis á örstuttu tímabili eft-
ir 1955. Fyrir þann tíma var
mannlífið líka gott og í nokkuð
föstum skorðum en við gætum
líkt því við eld í eldavél sem hald-
ið var við með mó og hann logaði
svo sem ágætlega, en neistinn sem
varð að þeim góða eldi sem nú lif-
ir hófst með tilkomu Landshafn-
arinnar í Rifi 1956, Utnesvegar
1957, byggingaframkvæmdum
lóranstöðvarinnar á Gufuskálum
sem hófust 1959 og lagningar
vegar í Olafsvíkurenni 1963. Var
eins og skipt væri yfir í olíu á
eldavélinni og eldurinn varð stærri
og bjartari en áður. Með tilkomu
þessara framkvæmda og ekki síst
hafnarinnar í Rifi hófst nýtt tíma-
bil. Útgerðamenn, sjómenn og
fiskverkendur voru fljótir að taka
Eftir Inga Dóra Einarsson
við sér enda örstutt á ein bestu
fiskimið landsins. Þetta kallaði á
meiri þjónustu og tóku menn líka
fljótt við sér þar. Það var ekki nóg
að koma með fiskinn að landi, þó
mest væri um vert, það þurfti að
koma fiskinum í hús til vinnslu
og síðan áfram til neytenda og þar
lögðust allir á eitt til að vel mætti
takast.
Vörubílastöð Heilissands
stofnuð
Sú stétt manna sem meðal ann-
arra átti sinn blómatíma á árun-
um 1957-1980 voru vörubílstjór-
ar. Svo nátengdir voru þeir þjón-
ustu við sjómannastéttina, að sjó-
mönnum þykir ástæða að geta
þeirra í blaði sínu, Sjómannadags-
blaði Snæfellsbæjar og þá sérstak-
lega þátt þeirra og samvinnu við
sjómenn.
Störfin gátu verið ansi fjöl-
breytt. Yfirleitt var það þannig að
hver bátur hafði sína föstu bíla og
þannig mynduðust mjög sterk
tengsl á milii vörubílstjóra og sjó-
manna. Þessir föstu bílstjórar sáu
einnig um flutninga veiðafæra
o.fl. Sumir bílstjórar beittu á línu-
vertíðinni við ákveðinn bát og í
staðinn fengu þeir að aka bjóðun-
um og fiskinum. En eftir því sem
bátunum fjölgaði kom babb í bát-
inn. Við biðum kannski eftir oklc-
ar bát með netin og kostinn á
pallinum, þá kom annar bátur að
sem þurfti bíla í löndun en ekki
var hægt að afgreiða hann strax
vegna þess að við þurftum að bíða
eftir okkar eigin bát. Af þessu
sköpuðust nokkur vandræði og
vildu vörubílstjórar leysa það mál.
Þess vegna var Vörubílastöð Hell-
issands stofnuð þann 6. mars
1965 og Jóhannes kaupmaður í
Rifi fenginn til að stýra henni. I
stuttu máli áttu allir bílstjórar að
setja númer sem þeir fengu á
prjón og sá sem var neðstur á
prjóninum átti að fara í þann bát
sem fyrstur kom inn til löndunar
og þannig koll af kolli. Þannig var
hægt að afgreiða bátana^á styttri
tíma. Þetta gekk svona fyrir sig í
nokkrar vikur en við hugsuðum
bara elcki nógu langt. Það voru
alltaf einhverjir óánægðir, sérstak-
lega fiskverkendur og það voru jú
Kristófer Snæbjörnsson.
Skipaþjónusta Skeljungs
CXs/:(f/n sijó/nöri/ii(/n o(£j/ö/'S'/:ijr/(/if/n /)c(/'/*((
ti//ia/ni/Hj/i/ /neo (/(ayi/t/i /
Umboösmaður Skeljungs á Hellissandi, Rifi og í Olafsvík er Svanur Aðalsíeinsson
Símar hjá Svani eru h.s. 436 6769 og farsími 852 4369. fax: 436 6950