Skógræktarritið - 15.10.2005, Side 85
St. )ohn's
Höfuðborg Nýfundnalands var gefið nafn sitt af Giovanni Caboto, sem
sigldi undir ensku flaggi og er því betur þekktur sem lohn Cabot. Hann
tók land í St. lohn's þann 24. júní árið 1497 (sem er Jónsmessa, er á
ensku kallast Feast of St. lohn the Baptist og af því dregur borgin
nafnið) og er St. John's oft talin elsta borg Nýja heimsins (eru byggðir
frumbyggja greinilega ekki taldar með!). Staðurinn var ákjósanlegur
hafnarstaður, fengsæl og óspillt fiskimið skammt undan og hvergi í
hinum Nýja heimi var styttra til Evrópu. Staðurinn varð því fljótt
tímabundin verstöð evrópskra fiskimanna. Bretar, Frakkar og Hollend-
ingar börðust um yfirráðin en svo fór að lokum um 1620 að Bretar náðu
að mestu yfirráðum, þótt Frakkar og Hollendingar gerðu nokkrar
atlögur á bæinn fram á 18. öld. í kjölfarið voru varnir um bæinn efldar
og samfélagið fór að vaxa og dafna. Gamlar áhugaverðar byggingar eru
fáar, því fyrir utan atlögur Frakka og Hollendinga hefur bærinn ítrekað
lent f brunum. Á hæðinni Signal Hill rétt austan hafnarinnar er Cabot
Tower sem vfgður var 1897 til minningar um að 400 ár voru þá liðin frá
komu John Cabot til staðarins og er þaðan gott útsýni yfir borgina og
nánasta umhverfi hennar. Miðbærinn, með verslunargötum og veit-
ingahúsum, er á afmörkuðu svæði ofan hafnarinnar en hefðbundnir
stórmarkaðir eru dreifðir um borgina f úthverfum. íbúar borgarinnar
eru nú um 100 þúsund en allt höfuðborgarsvæðið telur um 170 þúsund
íbúa.
Sí. }ohris séS frá toppi Signal Hill. Mynd: Alexander Robertson.
byggt fyrir komu Evrópumanna. Á
eyjunni bjuggu tveir indfána-
þjóðflokkar-Mi’kmaq (Micmac)
og Beothuk. Mi’kmaq-indíánar
komu af meginlandinu og settust
líklega að á eyjunni rétt fyrir eða
um svipað leyti og fyrstu Evrópu-
mennirnir komu. Þeir búa nú um
alla eyjuna, en stærstu byggðir
þeirra eru á suðurströndinni, þar
sem er opinbert verndarsvæði
þeirra. Beothuk-indíánar höfðu
hins vegar verið á eyjunni tölu-
vert lengur, þótt þeir hafi líkast til
aldrei verið mjög fjölmennir, en
talið er að fjöldi þeirra hafi verið
um 1000-2000 manns þegar
Evrópumenn komu til Nýfundna-
lands (það gæti þó verið, eins og
með aðra frumbyggja Ameríku,
frekar vanmat en ofmat).
Beothuk-indíánar dóu út á 19.
öldinni, en „lifa’’ þó áfram í
skjaldarmerki Nýfundnalands og
Labrador.
Ágrip af sögu Nýfundnalands
Frakkar og Bretar deildu lengi um
Nýfundnaland, en það varð á
endanum bresk nýlenda. Það fékk
kjörna stjórn árið 1832 og heima-
stjórn árið 1855. Um 1880 voru
hefðbundnar fiskveiðar í hámarki
en tóku ekki lengur við vaxandi
fjölda vinnandi fólks. í kjölfarið
hóf ríkisstjórnin að reyna að auka
aðra nýtingu og iðnað, sérstak-
lega á landi, og hefur sú stefna
staðið fram á okkar daga, þótt
ekki hafi það alltaf tekist sem
skyldi. Upp úraldamótum 1900
fóru tekjur af fiskveiðum að
minnka töluvert, sem Ieiddi til
verulegra efnahagsvandræða og
heimskreppan á 3,- 4. áratug 20.
aldar jók enn á þau, en talið er að
sjöundi hver Nýfundlendingur
hafi flust burt í leit að vinnu á
kreppuárunum. Ein afleiðing af
bágu efnahagsástandi var að árið
1934 gaf Nýfundnaland eftir
heimastjórnina. Seinni heims-
styrjöldin hafði hins vegar, eins
og hjá okkur íslendingum, jákvæð
efnahagsleg áhrif þar. Árið 1941
gerðu Bandaríkjamenn samning
við Breta um herstöðvar á Ný-
fundnalandi og koma hersins
leiddi, eins og á íslandi, til inn-
streymis fjármagns og aukinnar
atvinnu. Það voru svo loforð um
betri tekjur og þjónustu sem
leiddu til þess að árið 1949 var
ákveðið, með naumum meiri-
hluta í almennri kosningu á
Nýfundnalandi, að ganga inn í
Kanada. Kanadamenn sóttust
nokkuð eftir innlimun Nýfundna-
lands, þar sem þeir óttuðust að
það myndi ganga inn í Banda-
ríkin ella, en vegna veru banda-
rískra herstöðva höfðu Banda-
ríkjamenn töluverð áhrif þar. Á 8.
áratug 20. aldar hófst svo um-
ræða um réttmæti þessarar
ákvörðunar og hefur sú umræða
haldið áfram fram á þennan dag.
Upp úr 1990 var orðið ljóst að
þorskstofninn, sem hafði verið
grundvöllur stórs hluta efnahags-
lífs Nýfundnalands síðan á 16.
öld, var að hruni kominn, sem
SKÓGRÆKTARRITIÐ 2005
83