Helgarpósturinn - 07.05.1982, Blaðsíða 10
10
Kristur kemur um
leið og krían ...
I mai, þessum mánuði sem hlýtur að mega kallast timi til-
hlökkunar og sátta milli okkar grasbitanna og náttúrunnar, er i
flestra hugum, amk. þeirra sem i skólum hafa numið og starfað,
þreytandi tið. Mai er mánuður prófanna.
Ég ætti að vita það.
Um þessar mundir verð ég að þola tvær manneskjur undir minu
þaki, sem báðar lesa fyrir próf.
Próf — eða réttar sagt það hugarfar, sem veldur þvi að þúsundir
námsmanna eru reknir i þennan upprifjunarlestur og siðan vegnir
og metnir eins og sauðfé eða hross, hlýtur að vera afskaplega
brenglað.
Hugsið um það.
Ekkert i náttúrunni byggist á skyndikönnun á hæfni eða getu.
Ekkert i náttúrunni er útskriíaö meö látum og slegið á það máli i
leiðinni. 1 náttúrunni, sem viö og hugsunarháttur okkar hlýtur að
mótast af, gerist alltaö undangenginni þróun. Og hver einstakling-
ur verður að fá sinn tima lil að þróa með sér hugmyndir, fróðleik og
svo framvegis.
bað hljóta að hafa verið einhverjir verkfræðingar eða iliviljaðir,
guðhræddir barnakennarar, sem fundu upp hina andlausu aðferð
prófdómaranna til aðkomast hjá þvi aðkenna og uppfræða.
Að kenna og fræöa er list sem fáum lætur.
En það er enginn vandi að prói'a.
Albert Einstein, einhver merkasti nemandi okkar aldar, stóð sig
oft illa á prófum. Og hann var mikill andstæðingur prófa og þess
hugsunarháttar sem mótast'af skólum og skólamönnum sem segir i
raun, að enginn veröi maður með mönnum, nema hægt sé að mæla
árangur hans i tölum.
Einhvern lima báöu menn Albert Einstein að fara i gáfnapróf og
sálkönnun hjá Ereud. Honum varð vitanlega ekki ekiö þangað og
sagði: ,,Ég vil gjarna fá að vera áfram i þvi myrkrisem umlykur þá
manneskju sem ekki er búiö aö sálgreina”.
Próf, sagði Einstein, eru iyrir vélar og ekki fólk.
En sennilega eru þau próí, sem barnakennarar þessa lands skýla
sér á bak við á þessu vori barnaleikur, amk. ef við miðum við prófið
sem mannkynið allt verður sett i þann f jórtánda mai.
Vonandi hafa menn verið boöaðir til þess.
bann fjórtánda mai á aö tilkynna um gervitungl og sjónvarpa
þannig beint útsendingu þar sem Kristur okkar tima birtist.
Undanfarna daga hefir söfnuður einn, fjármagnaður með frjáls-
um íramlögum i Bandarikjunum og stjórnað af Bretanum Benja-
min Creme, auglýst i stærstu dagblöðum sextán þjóðlanda um
endurkomu Krists: KRISTUK HÉR, segir i auglýsingunni og siðan
hefur Benjamin Creme sagt, að þessi nýi Kristur muni gefa sig i ljós
þann 14. mai n.k. Það fyigir og boðskapnum, að það skipti engu þótt
menn eigi ekki sjónvarp til að ná beinni útsendingu um gervitungl,
þviKristurmunitalaáalheimstungusemnái öllum eftir telepatisk-
um leiðum.
Skyldum við standast þetta próf?
Vikcpóstur frá Gunnari Gunnarssyni
Föstudagur 7. maí 1982
Jie/garpásturinru
Aö fara rökrétt í svínurnar
Eftirfarandi spil sýnir hve
fara verður með mikilli gát,
þegar nauðsynlegt er að svina
og möguleikarnir fleiri en einn.
S G985
H AD7
T AD108
L 84
S K62 S 3
H 8 H 1096432
T K743 T 652
L AKG52 L D93
S AD1074
H KG5
T G9
L 1076
of seint, þvi nú trompar suður
og heldur áfram með tromp.
Hefði austur átt spaða kóng
annan eða þriðja, þá gat vestur
ekki átt neinn spaða til þess að
trompa hjartað. En nú átti
vestur spaða kóng þriöja og fær
á kónginn. Alit sem suður þarf
nú að gera er að hirða siðasta
tromp vesturs og þvi tapaði
hann aðeins þrem slögum.
Nú séröu lesandi góður, hve
nauðsynlegt er að fara rökrétt i
svinuna.
Vissulega erhægt að hnekkja
spilinu, en þá verður vestur að
byrja á því að spila út hjarta
áttunni. En laufa útspil hans er
afar eðlilegt.
Spil
eftir Friðrik Dungal
Vestur gaf og opnaði á einu
laufi. Norður doblaði. Austur
sagði eitt hjarta, sem reyndar
er vafasöm sögn er merkir veik-
leika. Suður sagði spaða og
vesturtvölauf. Norður hækkaði
sögnina i tvo spaða og suður
skellti sér i fjóra.
Vestur lét út laufa kónginn.
Siðan hjarta áttuna. Og nú erum
við á vegamótum. Hvernig
eigum við að spila spilið?
Suður á tvo tapslagi i laufi.
Ennfremur vantar hann bæði
spaða- og tigulkóng. Þess utan
getur vestur jafnvel trompað
eitt hjarta. Við byrjum á að taka
á hjarta drottninguna. Spilum
spaða gosanum til þess að reyna
að veiða kónginn frá austur.
Þaðan kemur þristurinn. Nú má
alls ekki svina. Ef við hleypum
vestur inn þá spilar hann lágu
laufi og setur austur inn. Hann
spilar hjarta sem vestur
trompar og þarmeð er spilið
tapað. Þvi tökum við á ásinn.
Samkvæmt sögnum er ekkert
sennilegra en aö vestur eigi
bæði spaða og tigul kóng. Sitji
báðir kóngarnir rangt, þá er
spilið hvort sem er tapað Nú er
eina vonin að svina fyrir tigul
kónginn. Gosinn látinn og hann
heldur. Þá tigul nían og tekið á
tiuna. Siðan er ásinn látinn og
laufa sjöinu hent. Þá tigul
drottning og laufa tiunni hent i
hana (tapslagur á tapslag).
Vestur fær slaginn og spilar
lágu laufi t'il þess aö koma
makker sinum inn. En nú er það
„Ég varaðfrétta aðdóttirþi'n
hafi verið að gifta sig. Égóska
þér til hamingju. Er þetta ekki
ágætis maður sem hún giftist?”
„Þakka þér fyrir. Jú, tengda-
sonur minn er besti náungi, en
einn galla hefur hann samt.
Hann kann ekki að spila
bridge”.
„Það kalla ég nú ekki beint
galla”.
„Og þó, hann spilar nefnilega
ósköpin öll”.
Heyrt að lokinni spilakeppni:
„Spilamennska þin var
óvenju góð i kvöld. Nærri þvi
eins og afsakanirnar”.
1 Morgunblaðinu 4. þ.m. segir
kollega minn Guömundur Páll
frá kurr sem kom upp i spila-
keppni nýlega. Orsökin var sú
að einn spilarinn hugsaði sig um
i hálfa minútu áður en hann
passaði fjögur hjörtu. Ekki ætla
ég að skipta mér á einn eða
annan hátt af þessu. Það er
fjarri mér. En i sambandi við
þetta rifjaðist upp fyrir mér
eftiríarandi saga:
Það var spilakeppni i Ame-
riku. Sagnir gengu þannig:
1 hjarta +
2,hjörtu + +
3: hjörtu+ + +
Pass+ + + +
Skýringar:
+ 30 sekúndur
+ + ein minúta
.+ + + tvær minútur
+ + + + tvær minútur
Þeir unnu fimm hjörtu og aö
spili loknu ásökuðu þeir hvor
annan fyrir að hafa ekki farið i
úttektina. Þá sagði annar and-
stæðinganna að það væri ekki
von, það hefði alls ekki verið
hægt að melda úttektina. Þá
spurði annar spilaranna:
„Hversvegna?” „Ykkur gafst
enginn timi til umhugsunar”.
Skákþraut helgarínnar
A.
E. Holm
B.
Úr einni af skákum Morphys,
hann hefur gefið hrók i forgjöf.
-r-
Hvítur á að vinna.
Hvítur á leikinn.
Lausn á bls. 23
Á grunn- og djúpmiöum 22
mikla velgengni áriö 1980, þegar
litlu plöturnar Going Under-
ground og Start vermdu báðar
efsta sæti vinsældarlistans um
skeið og stóra platan Sound Aff-
ects gekk einnig mjög vel. Þær
tvær litlu plötur sem komu út á
siöasta ári vöktu svo ekki neina
hrifningu,, en hins vegar fór
litla platan með lögunum
Precious og Town Called
Malice, sem kom út fyrr á þessu
ári, ifyrsta sæti.
Lagið Precious er i fönkstil
með góðum „wah-wah”
rythmagitar og kraftmiklum
lúðrablæstri. Town Called Mal-
ice er hins vegar undir sterkum
áhrifum motown-soul tónlistar-
innar, sem var svo mjög vinsæl
milli 1960 og 70. Bæði eru þessi
lög hinágætustu danslög.
Þau eru bæði að finna á nýrri
stórri plötu, sem ber yfirskrift-
ina The Gift. Þar er og margt
annaö góðgæti að finna og
greinilegt er að hljómsveitin er
enn jafn fersk og hún var á
fyrstu plötunni. Rætur tónlistar
The Jam er fyrst og fremst aö
finna i ýmsum tónlistarstefnum
sjöunda áratugsins. Áhrifavald-
ar eru hljómsveitir svo sem The
Who.TheKinks, Bitlarniro.fi. A
The Gift eru þó mikið áberandi
þau áhrif sem Paul Weller, git-
arleikari, söngvari og aðallaga-
smiður hljómsveitarinnar, hef-
ur orðiðfyriraf soultónlist fyrr-
nefnds áratugar. Mest eru áhrif
hins svokallaða motownhljóms
en einnig verður maður var viö
áhrif frá „Stax souli”. Þó að
greinilegt sé á tónlist The Jam
hvaðan áhrifin og sumar hug-
myndir eru fengnar, er samt
sem áður ekki hægt að segja
annað en Weller hafi þróaö með
sérsinn eigin stil.
Weller er oft á tiðum mjög
pólitiskur og adeilinn i textum
sinum. 1 Just Who Is Thí 5
O’Clock Hero segir m.a. My
hard earned dough goes in biils
and the larder/It seems a con-
stant struggle just to ex-
ist/Scrimping and saving and
crossing of lists,- Og i Running
On The Spot segir svo:
í was hoping we’d make real
progress-/But it seems we have
lost the power/Any tiny step of
advancement/Is like a raindrop
falling into the ocean/We’re
running on the spot-always
have-always will?/We’re just
the next generation of the emot-
ionally crippled. En mikilvæg-
astur allra texta á plötunni,
a.m.k. eftir þvi er Paul Weller
segir, er Trans-Global Express.
Þar er meðal annars kastað
fram eftirfarandi spurningu:
Imagine if tomorrow the work-
ers went on strike/not just the
British Leylands but the whole
world/who would earn their
profits?/Who would make their
bombs?
Það sem er þó nær óskiljan-
legt, fyrst þessi boðskapur er
þeim svona mikilvægur, er að
söngurinn i laginu skuli vera
hljóðbandaöur svo aftarlega að
ekki er nokur von til að textinn
komist til skila öþruvisi en eð
lesa hann um leið af blaði. Þetta
er stór galli á annars ágætu og
forvitnilegu lagi.
En Weller semur fleira en
góða ádeilutexta, þvl ástartext-
ar hans eru margir hverjir ekk-
ert siöri, og um margt óvenju-
legir. Nægir i þvi tilfelli aö
benda á lögin Happy Together
og Precious.
Sem lagasmiður er Weller óð-
um að skapa sér nafn, sem einn
sá fremsti er fram hefur komið
á undanförnum árum. Og erfitt
er að hugsa sér pottþéttari
hljómsveit en The Jam.
Trommuleikur Rick Bucklers er
þéttur og litrikur og það sama
má segja um bassaleik Bruce
Foxton, sem er ákaflega, lipur
og lýriskur. Paul Weller fer svo
sifelltframsem gitarleikara, en
hann er fyrst og fremst mjög
rythmiskur. Auk þess spilar
hann svo K'tilsháttar á hljóm-
borð og ekki sakar að geta þess
að hann hefur sjaldan sungið
betur. Þess ber að geta að á
plötu þessari njóta The Jam aö-
stoðar blásara i allmörgum lög-
um og eru útsetningar blásturs-
hljóðfæranna allar hinar
smekklegustu og falla vel að
tónlistinni.
Fyrir utan mixið á söngnum i
Trans-Global Express er aðeins
eitt atriði sem ég get ekki fellt
mig viöáTheGift og þaö er suð-
ur-ameriski fi'lingurinn i laginu
The Planners Dreams Goes
Wrong sem á illa viö.
I heildina er The Gift þó þræl-
góð plata. Hún er einhver sú
besta sem The Jam hefur sent
frá sér, og þá er nú sterkt til
orða tekið, og áreiöanlega ein
besta plata sem komið hefur út
það sem af er árinu.