Helgarpósturinn - 07.05.1982, Page 13
he/garpósturinn Föstudagur 7. maí 1982
13
Jæja. Það þýðir víst ekkert annað en reyna að vera
hress þrátt fyrir þennan napra vormánuð og byggja
sig upp, ekki síst þar sem kosninaabapát&ftf^^ú að
harðna... Því hljóðar
góðan morgunverð.
)ur, i hádeg-
ÍTgi á kvöldin," sagði eitt
er nú einu sinni eldsneyti
fágsins og því er t.d. miður skynsamlegt
þungan kvöldverð að loknum vinnudegi, en
láta sér nægja snarl í morgun- og hádegismat.
Morgunverðurinn er að dómi
heilsufræðinga mikilvægasta
máltið dagsins. Hann ætti að
innihalda eggjahvituefni ogkol-
vetni, a.m.k. þriðjung þess sem
likaminn þarfnast yfir daginn.
En þvi er nú þannig farið með
mörg okkar, að nývöknuð höf-
um við tæpast lyst á ööru en svo
sem einum kaffibolla og ristaðri
brauðsneið. (Sumir láta jafnvel
kaffibollann nægja og slikt get-
ur haft fremur óskemmtilegar
afleiðingar fyrir maga og
taugakerfi, þegar til lengdar
lætur...)
En til að geta notið þess að
boröa verulega staðgóðan
morgunverð, þurfa menn helst
að hafa verið á fótum i a.m.k.
hálftima áður en þeir setjast að
snæðingi. 1 kulda og skammdegi
getur reyndar verið erfitt að
drifa sig fram úr rúminu. Allir
kannast sjálfsagt viö freisting-
una að „lúra aðeins lengur”
sem gjarna endar meö þvi að
menn stökkva fram úr á siðustu
stundu, tina á sig spjarirnar á
leiðinni fram i eldhús þar sem
kaffivélin er sett i gang. Hún
vinnur sitt verk á meðan að
morgunsnyrtingin fer fram.
Siðan er svolgrað i sig kaffinu á
meðan rennt er yfir miður upp-
lifgandi blaðafyrirsagnir.
Það getur vel veriö að billinn
ykkar fari i gang þrátt fyrir
þetta sleifarlag og komist jafn-
vel i þriðja gir, en það er bókað
að þiðverðið i fyrsta gir fram að
hádegi. Einhverjir eiga þá til
með að afsaka sig i grini með
þvi að segjast hafa farið með
vitlausan fót fram úr rúminu
um morguninn. 1 þessum orðum
felst reyndar hálfgildings viður-
kenning á þeirri staðreynd, að
dagurinn ákvarðast af þvi
hvernig þú byrjar hann.
Lýsingin hér að ofan átti vist
bara við barnlaust fólk. Eða það
ætla ég að vona. Foreldrar
skyldu hins vegar hafa hugfast
að blessuð börnin hafa ólikt
betri matarlyst á morgnana, ef
maður gefur sér tima til að
borða með þeim i rólegheitum, i
stað þess að þeytast argur og úf-
inn á milli isskáps, brauðristar
og kaffivélar meðan á morgun-
verðinum stendur.
Brjótið klafa vanans niður
með svart kaffi og ristað frans-
brauð fyrir fullorðna, „coco-
puffs” fyrir börn, upp með
hafragraut og heilhveitipönnu-
kökur fyrir alla! Þótt það kunni
að kosta ykkur ögn lengri tima,
þá endurgreiðist það margfalt i
léttari lund og betri vinnuaf-
köstum.
Samsetning morgun-
veröar
Æskilegast er að morgun-
verðurinn innihaldi eftirfar-
andi:
— kornmat (t.d. gróft brauð eða
musl);
— dýraeggjahvitu (mjólk, ost,
jógúrt eða egg), i hófi þó;
— ávexti og/eða ávaxtasafa;
— örlitla fitu og sykur.
Tökum nú nokkur dæmi:
— mjólkurglas, linsoöið egg, 2
heilhveitibrauðsneiðar, önn-
ur með hunangi, hin með osti,
epli;
— sitrónute, súrmjólk með
heimatilbúnu musli og
bananasneiðum, heilhveiti-
brauðsneið með ávaxta-
mauki;
— svo verður maður fjári
sprækur af kúfuðum diski af
ávaxtastyrktum hafragraut,
hrökkbrauðsneiö með osti og
eigum við kannski að bæta
kaffibolla við upptalninguna
i þetta skipti?
— á tyllidögum er ekki úr vegi
að breyta til og framreiða
heilsupönnukökur með
ávaxtamauki...
Plássins vegna verður heima-
tilbúið musl að biða betri tima,
en variö ykkur á pakkamusli
kjörbúðanna þau eru oft óhemju
sæt og auk þess nokkuð dýr.
Styrktur hafragrautur
Mig langar rétt til að minna á
gamla góöa hafragrautinn sem
þvi miður sést hér æ sjaldnar á
borðum. Það er þó fjandakornið
ekki mikið seinlegra að laga
hafragraut en kaffi: skutla i
pottinn 1 litra af vatni, 125 gr. af
hafragrjónum og ögn af salti:
að visu þarf að hræra aðeins i
pottinum meðan suðan er að
koma upp, en siðan er grautur-
inn látinn sjóða við vægan hita i
nokkrar minútur.
Hafragrautur er óhemjuholl-
ur þvi við suðu minnkar ekkert
næringargildi kornsins (sum
B-vitamin i kornmat rýrna hins
vegar um 15-30% t.d. við
ristun). Og nýlagaður hafra-
grautur er sannkallað lostæti,
bæti maður út i hann banana-
sneiðum, rúsinum eða döðlubit-
um, þurrkuöum aprikósum eða
hnetum. Að ég tali nú ekki um
blessaða kotasæluna. Hver fúls-
ar t.d. við bananastyrktum og
kotasæluprýddum hafragraut?
Heilsupönnukökur
Aður en aö uppskriftinni kem-
ur skulu helstu eiginleikar korn-
metis rifjaðir upp.
— Kornmatur inniheldur kol-
vetni, eggjahvituefni, örlitla
fitu, vitamin, einkum ýmis
B-vitamin, trefjar og vatn.
— Trefjarnar eru ómeltanlegar,
en þær auka þarmahreyfing-
arnar og eru þvi mjög gagn-
legar.
— Gróft mjöl, s.s. heilhveiti og
rúgmjöl,er rikara af eggja-
hvituefni,söltum, vitaminum
og trefjum en fint mjöl, þ.e
hvittað hveiti.
Hér kemur svo pönnuköku-
uppskrift sem ætti aö duga i 18
kökur.
1/2 bolli hveitikim
2 bollar heilhveiti
2 tsk. lyftiduft
1 msk. púðursykur
1 tsk. salt
2 stór egg
2 1/2 bollar mjólk
2 msk. matarolia.
Blandið saman öllum þurr-
efnunum með gaffli.
Þeytið eggin og hrærið siðan
mjólkinni saman viö. Samlagið
blönduna þurrefnunum og
hrærið að lokum oliunni saman
við með nokkrum sleifarstrok-
um.
Hitiðpönnuna en setjið ekki
feiti á hana fyrr en hún er orðin
svo heit að vatnsdropar dansi,sé
þeim stökkt á hana. Bakið
pönnukökurnar við miðlungs
hita, snúið þeim þegar loftbólur
myndast á yfirborðinu og
jaðrarnir eru orðnir þurrir.
Og að lokum koma uppskriftir
af tvenns konar ávaxtamauki
sem gera þessar pönnukökur
hreint ómótstæðilegar. Epla-
maukið geymist vel i kæliskáp,
en bananamaukið verður að
hesthúsa strax.
Ferskt ávaxtamauk
Þessi uppskrift gerir 1 1/2-2
bolla af mauki. Sist er það
áhyggjuefni að maukiö geymist
ekki þvi það er svo ljúffengt að
það hverfur óðar en þaö er kom-
ið á borðið.
4 bananar
1 appelsina, afhýdd og skorin i
smátt
safi úr einni sitrónu
1/4 bolli rúsinur
1/4 bolli sjóðandi vatn.
Hellið sjóðandi vatni yfir
rúsinurnar og látið standa þar
til þær eru orðnar meyrar.
Hrærið vel saman með einhvers
konar þeytara.
Eplamauk
6 epli
handfylli af rúsinum
1/2 bolli vatn eða eplasafi
sitrónusafi (má sleppa).
Afhýðið eplin, fjarlægið
kjarnana og rifið þau niður eða
skerið i smáa bita. Setjið i pott
ásamt rúsinum og eplasafa,
hleypið upp suðunni og látið
malla þar til maukið hefursam-
lagast vel. Bragðbætiö með
sitrónusafa ef verkast vill.
Uppskriftin gerir 3-4 bolla af
mauki.
Vonandi hefur ykkur ekki þótt
hanagalið láta of hvellt i eyrum.
Þetta var nú allt vel meint... Og
hvers vegna skyldu svo margir
Islendingar þjást af magasjúk-
dómum?!
^matkrAkanc^
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
Qomjnn
HJOLBARDAHUSID h>
SKEIFAN 11 — við hliðina á Bflasölunni Braut — SIMI 31550
Sérlega góð inniaðstaða
nPin kl. 8-21 virka daga
kl. 9—5 laugardagaogsunnudaga
Ef einhvers staðar er opið þá
U* er opið hjá okkur —
og alltaf kaffi á könnunni
RADIAL DIAGONAL SÓLUÐ JEPPADEKK
MICHELIN
KANADADEKK
DUNLOP
BRIDGES TONE
GOOD YEAR
Tmr 09 s^'“Ur
hringir í urvali-
GOOD YEAR
BRIDGESTONE
GENERAL
ISLENZK
AMERÍSK
OG ÞÝZK
MARGAR GERÐIR
Á GÓDU VERÐI
GERIÐ VERÐ- OG GÆÐASAMANBURÐ.
Mikið úrval af krómfelgum
og jeppafelgum
mOKOKOKOKOKOKOKOKOyTOXOTOO