Helgarpósturinn - 07.05.1982, Síða 17
17
_ h(=>ltJF=irnn^tl irinn Föstudag ur 7. ma í 1982
illa sansast, eins og segir i álits-
gerö geðlæknisins. „Viröast þessi
reiðiköst fljótt hafa oröið móður-
inni ofurefli og vakið andúð henn-
ar á drengnum, sem hún hefur
óafvitandi dulið fyrir sjálfri sér...
Um heimilislif K meö móður hans
er naumast hægt að tala, þar sem
samvistir þeirra hafa veriö
margslitnar... Um þetta leyti
mun móöir K hafa kynnst öðru
mannsefni sinu... Bæði móður-
inni, K og öðrum heimildum ber
saman um, að þetta hjónaband
hafi veriö i alla staði misheppnað.
Eiginmaðurinn drakk, eyddi
kaupi sinu i ráðleysi. Konan
neytti einnig áfengis. Rifrildi og
barsmiðar áttu sér oft staö milli
hjónanna. K féll illa við stjúpa
sinn, segir hann hafa bariö sig og
veriö öllum börnum slæmur... í
seinna skiptið er hann strauk (frá
barnaheimilinu i R) dvaldi hann 3
daga hjá móður sinni... Þá stóö
brúökaup móöur hans fyrir dyr-
um, brúöguminn þá nýhorfinn að
heiman af óskýrðum ástæðum, en
móöirin komin að falli. K var
mjög þungur i skapi eftir þessa
dvöl heima, talaöi um sjálfsvig
(suicidum) og gerði sig liklegan
til að drekka „lýsól” samkvæmt
skýrslu heimilisins. Auösætt er,
að hagur og ástand móöurinnar
ásamt tilfinningalegu undanhaldi
hennar hefur lagst mjög þungt á
piltinn um þetta leyti en móður-
þörf hans hins vegar mikil... Geö-
læknir telur, að fram þurfi að
koma sem gleggst, hversu tilfinn-
ingaleg og félagsleg aöbúð pilts-
ins allt frá frumbernsku hefur
verið með eindæmum óheppileg
og staðið persónuleikaþroska
hans mjög fyrir þrifum...”
K var dæmdur i átta ára
fangelsi og afplánar nú dóm sinn.
Rótleysi og aðhaldsleysi i
bernsku
Gripum niöur i öðrum dómi yfir
manni nokkrum, S, sem svipti ná-
granna sinn lifi nánast fyrirvara-
laust en allt að þvi eftir áskorun
hins látna. Báðir voru verulega
ölvaðir. Hinn látni hafði dylgjað
um ástarsamband banamanns
sins og sambýliskonu sinnar. Hún
haföi svarað honum i hálfkæringi
og hann sagt eitthvað á þá leið, að
þá skyldi hún drepa sig. Hún
kvaðst aldrei vera fær um það og
þá sagði hann við S: En þú ungi
maður, hefur þú kjark til að
drepa mig? Nokkrum augnablik-
um siðar var verkið unnið.
t niöurstöðum geðlæknis, sem
rannsakaði geðheilsu mannsins
sagði meðal annars aö S, væri
ekki haldinn geðveiki, geðvillu né
fávitahætti. „Heldur er hald-
inn persónuleikatruflun
(personality disorder 301,80)
kominn vel yfir byrjunarstig of-
drykkju (alcholismus 303,1) og
kviða-taugaveiklun (anxiety
neurosis, 300,0). Persónuleika-
truflun S viröist mega m.a. rekja
til rótleysis og aðhaldsleysis i
bernsku. Þetta tvennt leiddi m.a.
til lélegs námsárangurs i barna-
skóla og siðan hefur S aliö með
sér stöðuga minnimáttarkennd
gagnvart öllu námi, en i eöli sinu
er hann framagjarn og hefur
vissa þörf fyrir að skara fram úr.
í stað þess að takast á við vanda-
máliö, reyna aö bæta sér upp
menntunarskort sinn, virðist
hann hins vegar hafa reynt að
bæta sér þennan vankant upp
með hressilegri, en yfirborðslegri
hegðun i félagsskap við aöra svo
og reynt að sýna af sér vissan
dugnað og skara fram úr á vinnu-
stöðum. Jafnframt viröist hann
hafa átt erfitt með að mynda
dýpri tilfinningaleg tengsl og
varanleg við annaö fólk sökum
minnimáttarkenndar sinnar.
Hann virðist þvi hafa leiðst all-
snemma út i ofnotkun áfengis
sökum öryggisleysis i félagsleg-
um samskiptum. Siðar meir
virðast viss taugaveiklunarein-
kenni hafa komið fram bæði sem
orsök og afleiðing vaxandi
drykkju. S hefur hins vegar
marga jákvæða eiginleika sem
hann viröist geta notfært sér,
þannig virðist hann hafa án til-
stuðlan annarra reynt að gera
vissar jákvæðar breytingar á lifi
sinu, svo sem að reyna að draga
úr drykkjuskap sinum og gera sér
far um að umgangast fólk án þess
að hann væri undir áhrifum
áfengis...
Viöbrögð S... verða aö mörgu
leyti skiljanleg, ef haft er i huga,
hversu mikið hann þarf að sýnast,
duga og þora að gera hluti, til
þess að bæla niöur minnimáttar-
kennd sina. Dómgreind hans var
ennfremur skert af svefnleysi og
drykkju. Setning sú, sem sam-
kvæmt málsskjölum virðist hafa
orðiö kveikjan aö viðbrögðum
hans, fól i sér ásökun um ódugnað
og heiguishátt. Innihald ræðunn-
Þýsku kokkarnir eru búnir aö setja upp húfurnar og farnir að malla
á þýsku fyrir Þýskalandskynninguna á Hótel Loftleiöum. (mynd:
Jim Smart)
Þýsk stemning á
Hótel Loftleiðum
Hollenskri viku er ekki fyrr
lokið hjá þeim á Hótel Loftleiðum
en þýsk vika tekur við. Og nú ætla
þýskir ferðamálamenn aldeilis að
moka landanum úr norðangarr-
anum. Ásamt meö matreiðslu-
mönnum og heilli hljómsveit er
nefnilega staddur hér hópur
ferðaskrifstofumanna til að
kynna fyrir okkur þýska sumar-
dýrð.
Matreiðslumennirnir eru tveir,
og að sögn Hilmars Jónssonar
fyrrum veitingastjóra h já HL ætl-
aði hann að reka þá til að setja
upp kokkahúfurnar strax á mið-
vikudagskvöldiö til aö byrja að
undirbúa eins þýskan mat og
hægt er að framreiöa á íslandi.
Sá matur verður fram borinn i
veitingabúðinni á hverju kvöldi
alla vikuna, og i Blómasal verður
þýskt bragð að kalda borðinu i
hádeginu.
Hljómsveitin er frá Bæjaralandi,
og henni er ætlað aö haida uppi
þýskri stemmingu á kvöldin.
Semsé allt upp á þýskan máta á
hverjum degi til sunnudagsins 9.
mai nema bjórinn. Enginn
Spatenbrau og hvaö það heitir nú
allt saman.
Hinsvegar geta menn séð land-
kynningarkvikmyndir i fundar-
salnum á laugardagseftirmið-
daginn skoðað sýningu á þýskum
vörum og rætt við ýmsa merkis-
menn úr þýskum ferðabrans-
anum i gestamóttökunni um
hugsanlegt sumarfri i þýska
bjórnum.
ÞG
ar var áskorun,hann varð að sýn-
ast og geta. Ætla má, að viðbrögö
hans hefðu oröið önnur, ef skipun
eða beiðni hefðu falist i innihaldi
ræðunnar.
Ætla má, að S geti notfært sér
geðlæknismeðferð i formi sál-
lækningar (psychotherapy) til
þess aö ráöa bót á vandamálum
sinum, ef unnt væri aö ná góðri
samvinnu viö hann.”
Hann taldist sakhæfur og var
dæmdur i 14 ára fangelsi. Hann
afplánar nú þann dóm.
Persónuleikapróf
Þriðja dæmið varöar tvo menn
sem fyrirvaralaust hengdu þann
þriðja i fangaklefa i Reykjavik.
Sá svaf ölvunarsvefni i klefanum
og átti manndrápiö sér engan að-
draganda. Geðlæknir lýsir öðrum
manninum sem við köllum P,
svo:
„Hann er grindhoraður, lotinn
og þreytulegur. Augnaráð hans er
heiftugt og hatursfullt. Almennt
er hann þögull i viötölum og tor-
trygginn. Hann viröist hlýöa á
það sem sagt er, en svarar ekki.
Stöku sinnum i einu viðtalinu seg-
ir hann skyndilega og án tilefnis
„nei” og hristir höfuðið. Erfitt er
vegna skorts á samvinnu að segja
til um, hvort hann líði af of-
skynjunum, svo sem ofheyrnum,
en almenn framkoma eða lát-
bragð hans að öðru leyti mælir
ekki með sliku. Hann er með
ranghugmyndir og hugsana-
gangur hans er brenglaður, en
ástand hans lagast nokkuð siðar i
rannsókninni. Helst talaði hann
viö mig i einu viðtali en þá komu
fram samhengislausar og
ruglingslegar setningar eins og:
„Þú ert að leita eftir stelpum i
gegnum fanga.” Er hann átti að
vinna úr persónuleikaprófi, sem
sálfræðingur lagði fyrir hann.
skrifaöi hann niöur á prófblöðin
eftirfarandi setningar: „Sál-
fræöingurinn hefur réttindi sem
leppur rikislögreglu sem hefur
aðstööu á Kleppsspitalanum. Það
er að vera ekki sjentilmaður á
rökréttan mælikvarða frjálsra
manna i frjálsu umhverfi.” Og
einnig skrifaði hann: „Jesú Kristi
var útrýmt af Krists Oliufjalli i
Júöalandinu Judeu, sem var
stærra en 11 milljónir manna. 600
milljónir Júöa hafa þeir verið á
dögum Krists fjölskyldu. 11
milljónir manna hafa verið
drepnir og útrýmt þegar siðasta
ættliöi Krists ættar var tekinn af
lifi að rómverskum sið og blóð
Krists ættartölu drukkið af lög-
regluveldi Krists ættartölu.”
Telja má vist, aö hin sérkenni-
legu viöbrögð P við geðrannsókn
séu orsökuö af geöveiki (paranoid
Schizophrenia).
Grunnt tilfinningalíf
P fékk lömunarveiki 3ja ára
gamall og skaöaðist verulega,
þannig að hann var lamaður á
vinstri ganglim og gengur siðan
verulega haltur. Hann gerðist
meistari i iön. Fram að þritugs-
aldri vann hann siðan á sama
vinnustað hér i Reykjavik... Vin-
neyslu hóf hann um 18 ára aldur
og viröist svo sem vinneyslan hafi
aukist verulega upp úr tvitugs-
aldri. Um þritugsaldur fer félags-
leg uppbygging hans að hrynja og
þá vini kennt um. Hann missti
vinnuna.siðar skildu hjónin. Um
likt leyti leitar hann fyrst inn á
geðsjúkrahús, tiöari skipti veröa
á vinnustöðum og bilin milti
starfstima verða æ lengri og hann
gerist afbrotamaður. Andlegri og
likamlegri heilsu hrakar mjög
vegna langvinnrar ofneyslu
vimugjafa hann er orðinn at-
vinnulaus, félaus og heimilislaus
öryrki er hann lenti i verknaði
þeim, sem hann er nú ákærður
fyrir.
...Við fyrstu rannsókn... um 16
dögum eftir aö afbrotið var fram-
iö var P i þvi ástandi að hann
taldist geðveikur og ósakhæfur.
Hins vegar verður ekki sagt um
þaö með vissu hvort hann hafi
veriö ósakhæfur, þá er hann
framdi afbrot þaö sem hann er nú
ákæröur fyrir. Siðar i rannsókn-
inni benda likur sterklega til þess,
aö einkennin hafi dvinað i það
miklum mæli aö hann teldist
bættur af geöveiki sinni. Verður
þaö fremur þakkað reglubundnu
lifi i fangavist en meöhöndlun,
þar sem hann tók ekki reglu-
bundið geölyf meðan á rannsókn-
inni stóö.”
Hinn maðurinn gekkst undir
samskonar rannsókn. Niðurstaða
sálfræðirannsóknar er þessi:
„Niöurstöður af þessari rann-
sókn eins og hinum fyrri sem
geröar hafa verið á H, sýna ákaf-
lega litt þroskaöan persónuleika
sem er á mörkum þess að vera
vangefinn hefur grunnt tilfinn-
ingalif og fátæklégt hugmyndalif.
Hefur litla stjórn á hvötum sinum
og myndar léleg geðtengsl við
annað fólk. Hann hefur þvi veru-
lega skapgerðar- og hegðunar-
galla, sem m.a. koma fram i
áfengissýki hans og algjörlega
festulausu liferni. Merki koma
fram um truflanir á greindarfari
sem kynnu að eiga rætur til
vefræns skaða á miðtaugakerfi,
en ekkert kom fram við rannsókn,
sem bendir til meiri háttar geö-
veiki.”
Alyktun geðlæknis var m.a.
þessi: i
..Hér er um að ræða
45 áragamlan treggefinn l^/
mann sem þó •-*/
Nýja Philips maxim
er ekki aðeins hrærivél
heldur einnig grænmetiskvörn,
hakkavél og blandari
Philips maxim er frábær hönnun. Með
fáeinum handtökum breytir þú hrærivél-
inni í grænmetishvörn, hakkavél eða
blandara. Allt sem til þarf eru fáeinir
Philips maxim kostar aðeins
2.059 krónur!
Það er leit að ódýrari hrærivél!
fylgihlutir, sem allir eru innifaldir í
verðinu.
Philips maxim fylgir stór skál, þeytari,
hnoðari, lítil skál, grænmetishvörn,
hakkavél, blandari og sleikja.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.