Helgarpósturinn - 07.05.1982, Qupperneq 19
19
Nú er tæpur tnánuður þangað til Listahátið hefst I Reykjavik
og er dagskráin komin i endanlegt horf að mestu leyti. Þetta er i
7. sinn sem efnt er til Listahátiðar i Reykjavik en sú fyrsta fór
fram árið 1970. Stendur hátiðin að þessu sinni dagana S. - 20. júni.
Fyrsta dagskráratriðið verður frumsýning á nýrri islenskri óp-
eru, Silkitrommanrcftir þá Atla Heimi Sveinsson og Örnólf Arna-
son.sem getiö var um i siðasta Helgarpósti. Hátiðinni lýkur svo
að k völdi 20. júni meö tónleikum Sinfóniuhljómsveitar islands og
Fílharmóniunnar i Laugardalshöll, þar sem Boris Christoff
bassasöngvari flytur lög úr itölskum arium og kafla úr Boris
Godunov. Á milli þessara atburða verður ýmislegt girnilegt I
boði og verður helstu atriða getið hér á siöunni. Myndlistin verð-
ur þó útundan að þessu sinni en það stendur til bóta.
— ÞH
Leiklist veröur nokkuð áberandi á Listahátið. Þessir tveir eru
franskir og heita Farid Chopel og Ged Marlon. Þeir bjóða upp á
leikritið Flugmennirnir (Les Aviateurs) sem einkum byggist á lát-
bragðsleik og dægurlögum úr seinni heimsstyrjöldinni, en i henni
skopast þeir félagar að umfjöllun Hollywood um striðið.
Hasstonnin hans Hrafns
1 fréttaspegli á þriðjudaginn
var fjallað um flkniefnavand-
ann sem sagður er fara hrað-
vaxandi hér á landi. Var þar
margt vel gert og þarft mælt,
svo sem viðtalið við hassistana
tvo á Hlemmi og viö Kolbein
Pálsson starfsmann Útideildar.
finnur Hrafn svo Ut töluna 2.7
tonn. Þaö þýðir aö hver hassisti
reyki hálft gramm á dag. Þetta
heldég aðfáivarla staöist.
Mig grunar að bandariski
staðallinn miðist við
marijúhana, sem er útbreidd-
asta form af kannabisi i Banda-
Fjölmiðlun
•Hir Proti Hcralduon
En þegar um svona alvarleg
mál er að ræða er mjög mikil-
vægt að menn fari meö gát og
vaði ekki upp með alls kyns vit-
leysur og gifuryrði. Þvi miður
bar dálitið á þvi i þessum frétta-
spegli. Ég er til dæmis ekki
alveg tilbúinn að trUa þvi að
dópistar á barmi örvæntingar
standi I þeim árásumá gamalt
fólk sem oröið hafa aö undan-
förnu. Það held ég að sé verk
manna íannars konar neyö.
Þó var nú öllu verra sú full-
yrðing Hrafns Pálssonar aö árs-
neysla tslendinga á hassi væri
sennilega um 2.7 tonn á ári.
Hrafn sagöist hafa gert könnun
meðal ungmenna á aldrinum
16—30 ára og fundiö út að um
fimmtungur þeirra neytti hass.
Ekki tók hann fram hvort þar
væri um að ræöa daglega neyslu
eöa hvort einnig voru ta ldir með
þeirsem hafa prófað eða fá sér i
pipu stöku sinnum. Þessi 20%
samsvara um 12 þUsund manns
og þar sem ég tel aö aörir ald-
urshóparkomi litið náiægt hass-
neyslu er ekki óliklegt að tala
hassista sé um 15 þUsund, miðað
við tölur Hrafns.
Með því að setja niöurstööur
sinar inni bandariskan staðal
rikjunum.en ekki hassi sem hér
er útbreiddast. Hass er hins
vegar 6—8sinnum sterkara. Ef
svo er má gera ráö fyrir að
neyslan hérlendis sé 4—500 kiló
á ári — af hassi — og þykir vist
flestum nóg.
í ööru lagi er töluvert hæpið
að nota bandariskan staðal hér
á landi i' þessu efni af þeirri
ástæðu að i Bandarikjunum vex
kannabisjurtin villt á viðavangi
um allt land, þar er aldalöng
hefð fyrir neyslu kannabis. Hér
á landi eru ekki nema svona
12—13ár siðan neysla á hassi fór
aö breiðast Ut að marki. Af
þessari ástæðu einni hlýtur
neyslan aö ná til miklu fleiri
aldurs- og þjóðfélagshópa vest-
anhafs en hér.
Meöan kannabisneysla er
ólögleg og markaöurinn þar af
leiöandi langt fyrir utan lög og
réttfinnstseint ótviræður mæli-
kvarði á neysluna. Þess vegna
ættu sjónvarpsmenn að vara sig
á þvi að gleypa svona fullyrð-
ingar hráar. Og þeir eiga alls
ekki að hlaupa með þær i frétt-
irnar aö órannsökuðu máli eins
og gert var á þriðjudaginn. Sllkt
hæfir ekki fjölmiðli eins og sjón-
varpinu.
Rajatabla nefnist heimsþekktur leikhópur frá Venesúela sem mætir
á Listahátið meö tvær sýningar. önnur fjallar um frelsishetju Suð-
ur-Ameríku, Simon Bolivar,en hin er byggð á skáldverki Miguel
Angcl Asturias, Forseti lýðveldisins. Þessi hópur hefur fengið fiöl-
mörg alþjóðleg verðlaun og viðurkenningu fyrir sjónrænan stil,
notkun tónlistar og fágun. Hópurinn telur 30 manns. Auk þessara er-
lendu sýninga verða tvær innlendar: Litli leikklúbburinn á tsafirði
er fulltrúi áhugaleikhúsanna og sýnir Cr aldaannál eftir Böðvar
Guömundsson, hin er sýningin Skilnaður, nýtt leikrit eftir Kjartan
Ragnarsson sem Leikfélag Reykjavikur sýnir.
Unnendur nýbylgjutónlistar ættu
aö fá eitthvað við sitt hæfi á
hljómleikum bresku hljómsveit-
arinnar Human League. Tónlist
hópsins hefur veriö kennd viö ný-
rómantik, kulda og tölvur, allt
eftir smekk. Hann heldur tvenna
tónleika i Laugardalshöll.
London Sinfonietta er nafn á fé-
lagi einleikara I London. Þetta er
einskonar kammersveit með 11
spilurum og þykir vel liðtæk viö
túlkun 20. aldar tónlistar. A dag-
skrá þeirra hér veröa þó verk frá
ýmsum timum.
Frá Svlþjóð kemur einnig vfsnasöngvarinn Olle Adolpsson sem
heimsótti okkur reyndar áriö 1975 viö góöar undirtektir. Olle er
geysivinsæll i heimalandi sinu og þykir einn besti túlkandi sönglaga
Everts Taube, en hann semur lika eigin söngva.
Trúöar eru vinsælir skemmti-
kraftar þótt ekki hafi margir slik-
ir risið upp með þessari þjóð. Svi-
ar senda okkur Ruben sem hefur
tvær sýningar og auk þess tvö
námskeið i sirkuslist fyrir börn á
aldrinum 5-15 ára.
Sigild tónlist skipar veglegan sess
á Listahátið. Úr þeirri deild má
nefna 29 ára gamlan ungverskan
pianósnilling ,,sem er að gera allt
vitlaust 1 pianóheiminum” eins og
örnólfur Árnason, framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar, orðaði það.
Zoltán Kocsis hcitir piltur og
heldur einleikstónleika i Háskóla-
biói. Meðal afreka hans má nefna
að hann hefur nýlokið þátttöku i
mikilli sjónvarpsmynd um lif
Mozarts sem nokkrar evrópskar
sjónvarpsstöðvar tóku sig saman
um að gera. Þar lék hann (á pianó
altso) hlutverk Mozarts sjálfs.
Loks ber að geta heimsóknar
írska flautusnillingsins James
Galway, sem eitt sinn var læri-
faöir Manuelu Wiesler. Hann
þykir einna færastur flautuleikari
heims og er mikill konsertmaöur.
Heldur hann tónleika i Laugar-
dalshöll ásamt Sinfóniunni. Hér
vcröum viö að láta staöar numið
þótt ýmislegt sé óupptaliö.
I kvöld, föstudag, kl. 20 opna tveir ungir menn myndlistarsýningu i
Nýlistasafninu viö Vatnsstig og hefst hún með performönsum. Það
eru þeir Hannes Lárusson og Halldór Asgeirsson en þeir voru báöir i
hóp ungra myndlistarmanna sem boðið var I sýningarferð um Nor-
eg og Sviþjóð á sl. hausti. Hannes sýnir niu sjálfstæð verk, sum i
mörgum einingum.og kallarhann þau „semi-installation”. Halldór
sýnir verk sem unnin eru á striga, pappir og beint á veggi og gólf
sýningarsalarins og nánasta umhverfi hans. Sýningin verður opin
frá kl. 16 - 22 hvern dag fram til 16. mal.