Helgarpósturinn - 07.05.1982, Blaðsíða 24
Föstudagur 7. maí 1982 HplrjarpÓstUrinn
fullur af lífsgleði
BARAflokkurinn l'rá Akureyri stillir sér upp. Það eru þeir Þór
Freysson, Asgeir Jónsson, Jón Arnar Freysson, Sigfús örn óttars-
son og Baldvin Sigurösson.
DADA
VFll ^S.'1.
flokkurinn
Eins og lesendum Stuðarans
ætti að vera Ijóst er BARA-
flokkurinn um þessar mundir í
stúdiói Grettisgati að leggja
siðustu hönd á sína aðra plötu.
BARA-flokkur þessi cr ættaður
frá Akureyri (ef einhver væri f
vafa) en þaðan ku ekki hafa kom-
ið framhærilegt rokkband síðan
BRAVÓ bitlarnir sldgu í gegn á
Kinkstónleikunum um árið.
Nema hvað, Stuðarinn læddist inn
i Grettisgat á isköldum sumar-
degi og hitti þá Asgeir Jónsson
söngvara og Jón Arnar Freysson
hljómborðsleikara þar sem þeir
voru á fullu að mixa plöluna. Þre-
menningarnir Sigfiís örn Óttars-
son, hinn splunkunyi trommari
flokksins, Þór Freysson gitarleik-
ari og siðast en alls ekki sist hann
Baldvin Sigurðsson (kallaður
Balli bassi) (Halló Balli! Hvernig
hefurðu það? Allt i lagi bless!)
voru þvi miður ekki i Grettisgati
heldur á Akureyri þennan fyrr-
nefnda sumardag, þannig að As-
geir og Jón Arnar sátu sveittir
fyrir svörum. Nú jæja, i Grettis-
gati tylltum við okkur í kaffistof-
una og fengum okkur kaffi á
meðan Tómas Tómasson stillti
trommusándið. A ka ffistofunni
sat einnig Gvendur Oddur og auð-
vitað lagði hann orð i beig á rétt-
um stöðum og svei mér ef það fær
ekki að fijóta með.
Þróaðri tónlist
Jæja, hvernig tónlist eruði með
á þessari plötu?
„Það er nú alltaf jafn erfitt að
skilgreina sina eigin tónlist. Ætli
það megi ekki segja að tónlistin
sé rokk þott það sé ákaflega við-
tækt og erfitt hugtak. Tónlistin er
ólik siðustu plötunni okkar. Hún
er þróaðri og meira lagt i hana.
Ætli meirihlutinn sé ekki þungur
i filingu.” _
— Hafiði spilað mikið i vetur?
„Nei, við höfum ekki spilað
mikið opinberlega, en við höfum
æft mjög mikið. Við héldum einn
konsert i' gagganum á Akureyri
og spiluðum nokkrum sinnum i
Reykjavi'k. Okkur hefur lika
vantað söngkerfi. Við erum lika
að reyna að byggja upp f járhags-
legu hliðina á bandinu núna.”
Fvrirtæki?
— Hvernig farið þið að þvi?
,í>ar sem við viljum helst
vinna eingöngu að tónlistinni er
aðalatriðið að skipuleggja tón-
leikaferðir fyrirfram og passa
uppá að allt i' kringum það sé á
hreinu. Það fór stundum framhjá
okkur ifyrstu þvi við vissum ekki
hvað við vorum að gera. Og fór
úti' það að við fengum ekki borgað
á timabili. En það var okkar eigin
feill. Það hefur jafnvel komið til
tals hjá okkur að stofna fyrirtæki
i kringum BARAflokkinn, sem
þyðir jafnframt i leiðinni að við
verðum að gera tönlistina að at-
vinnu okkar. Og þá verður að fara
rækilega i fjárhagslegu hliðina.”
— Þyrftuð þið þá kannski að
flytja i bæinn?
„Það gæti farið svo en það er
margt persónulegt sem kemur i
veg fyrir það eins og er.”
— Eruð þið á góðum samningi
hjá Steinun h/f?
„Já, samningurinn er þokka-
lega hagstæður. Platan fer ekki
yfir 100 tima i stúdiói og Grettis-
gat er mjög ódýrt stúdió.”
Eins sjálfsagt og
kvennaframboð
— Finnst ykkur koma eitthvað
að sök að vera i 8 rása stúdiói?
„Nei, það kemur ekki að sök.
Við þurfum að leggja meiri vinnu
i plötuna, sem er helmingi
skemmtilegra. Við höfum verið
fljótvirkir, við komum vel æfðir
inn. Og svo er Tómas Maðurinn.
Platan ætti að sýna nokkurn veg-
inn hvernig bandið er og likleg
þróun er i þessa átt. Við teljum
okkur hafa gert nokkuð heil-
steypta plötu. Grunnhugmynd
laganna er byggð á videói.
Textarnir eru myndrænir.”
— Já, þaðer þetta með textana.
Eru þeir enskir?
„Já, við filum það betur. Það
passar einhvern veginn betur við
okkar tónlist.”
— En hafiði ekki verið kriti-
seraðir mikið fyrir það?
,,Jú, mjög mikið en við látum
það ekki hafa áhrif á okkur. Okk-
ur finnst það eins sjálfsagt og
kvennaframboð.”
Skemmtilegt
i stúdióinu
— Hvað með boðskap textanna?
„Textarnir eru afskaplega sál-
rænir en þó eru þetta alls engir
bömmer textar. Það má geta þess
i gamni að Islendingar hafa alltaf
misskilið orðið ég i textum. Ég
þarf ekki endilega að túlka egó
höfundarins.”
— Eruði með einhverjar ádeil-
ur?
„Já, t.d. i laginu Mr. Penis er
gróf ádeila á karlmanninn”. En
einmitt i þessu berast tónar Mr.
Penis inn f kaffistofuna. Tómas er
farinn að tékka á sándinu á bass-
anum sem er ofsa töff flanger
sánd mar. Blassaður mar.
— Finnst ykkur ekki gaman að
stúdi'óvinnunni?
„Það er það skemmtilegasta
fyrir utan að semja. Þegar ár-
angurinn er fullkomnaður.”
Ekkert hægt að
svindla nema
pínulitið
— Verðurmikið til i stúdi'óinu?
„Það er þó nokkuð af auka-
hljóðum ogröddum sem viðdöbb-
um.Maður lærir lika mikið meira
á að vinna I svona litlu stúdiói.
Við ráðleggjum öllum sem geta
að prófa. Og i þessu kemur
Tómas inn og bætir við: „Það
reynir meira á bandið. Það er
ekkert hægt að svindla nema
pinulítið.”
— Eruð þið ekki tómir þegar þið
eruð búnir i stúdióinu?
„Nei, nei, nei, nei. Við erum
fullir af hugmyndum og lifsgleðin
takmarkalaus.”
Stuðarinn kveður og minnir á
að platan kemur út i byrjun júni.
—Er það einhver
ný plata ?
Nemendafélag Fellaskóla er rétt I þessu að gefa út tveggja laga
plötu scm ber nafnið Ha...?
— Þanníg var að nemendafélagið þjáðist eilitið af fjárskorti og
fékk þá þessa snjöllu hugmynd að gefa út plötu með vinsælasta lag-
inu úr skiðaferðum skólans, Alltokkar lif. Þá vantaði bara lag hinu-
megin og þá var einhver lagviss fenginn til að semja og útkoman
var ... Bakariið. Nokkrir eldhrcssir kennarar og nemendur tóku sig
til og æfðu lögin á þremur dögum og skelltu sér siðan niðrí stúdió
Stemmu.og á einum degi var sungið inn og næstu tveimur dögum
var gengið endanlega frá plötunni. — Ekkert mál. Og útkoman er
eins og fyrr segir tveggja laga platan Ha...? Og þá er bara að
tryggja sér eintak.