Helgarpósturinn - 07.05.1982, Blaðsíða 25
Hver er
mordinginn?
— Leikfélagið LÚNA setur upp
10 litla negrastráka eftir Agötu Kristí
hpilrjFirpri'ítl irinn Föstudagur7. maí 1982
Umsjón: Jóhanna Þórhallsdótti
Já, þaö er mikiö um að vera i
Fellaskóia um þessar mundir
Leikfélagið Lúna hefur frá þvi i
haust verið að æfa 10 iitla negra-
stráka éftir Agötu Kristin i leik-
gerð Agústar Péturssonar og
Kolbrúnar Halldórsdóttur, cn
leikritið var frumsýnt 3. mai sl.
Stuðarinn leit við á general prufu
og eftir hana rabbaði hann við
Kolbrúnu Ilalldórsdóttur og
spurði fyrst um aðdragandann að
uppsetningu sýningarinnar.
„Agúst sem er kennari við
Fellaskóla, hefur undanfarin ár
verið með félagsstörf skólans, en
á hans vegum hefur leiklist verið
kennd sem valgrein á þessu ári.
Það má segja að þetta leikrit sé
afraksturinn af þvi starfi. Agúst
kenndi leiklistina einn til ára-
móta, en þá völdum við þetta
leikrit, sem við þýddum og skrif-
uðum uppánýttogsvovar byrjað
að æfa á fullu i febrúar.”
— Er ekki mikil vinna að setja
upp svona langt leikrit?
„Ja, það þýðir nátturlega ekkert
annað en að hafa 100% aga. —
Það var sett blákalt bann við
skiðaferðum. Og það var ekkert
páskafri. Jú, hvað er ég annars að
segja. Krakkarnir fengu páskafri
eftir hádegi á páskadag, en föstu-
dagurinn langi nýttist okkur vel.
Svo hafa margir verið okkur
hjálplegir, bæði skólastjóri, hús^
vörður og margir sem hafa lánað'
okkur i leikmyndina o.s.frv.
o.s.frv.”
— En hvað er það sem fær fólk
til að leggja á sig svona mikla
vinnu?
„Málið er þaö að þaö er svo gott
þegar þetta er búiö. Maður
gleymir alltaf striðinu og þess-
vegna fer maður út I þetta aftur
og aftur. — Þetta er svo skemmti-
legt.” Og þaö var ekki annað að
sjá en að krakkarnir geilsuöu af
vinnugleði. Og stuðarinn getur
fullyrt það að 10 litlir
negrastrákar er mjög spennandi
sakamálaleikrit og ef þið vissuö
bara hver morðinginn væri já.
En Stuðarinn er þögull sem gröf-
Hver drap Ethel Rogers? Já, það er nú það. Leikendur frá vinstri:
Berglind Einarsdóttir, Þóra Magnea Magnúsdóttir, Sigurður Þor-
valdsson, Gunnar Þór Pálmason og Samúel Karl Sigurðsson. Lára
Waage leikur Ethel.
in.. og óskar LUNU til hamingju
með daginn.
Enn um Rokk i Reykja-
vik
Kæri Stuðari!
Mig langar til aö leggja smá
orð i belg um þær umræður sem
litið hafa dagsins Ijós i kjölfar
sýningár á myndinni ROKK t
REYKJAVtK. Hvað var það
sem áhorfendur fengu að sjá og
heyra í þessari mynd? Jú hreina
eftiröpun pönkbylgjunnar sem
skall yfir England upp úr árinu
1976. Ég bjóst við mynd um ís-
lenska tónlist i dag, en ekki ein-
hverri cftiröpun á pönkjönki.
Hvar voru hinar raunverulegu
undirground hljómsveitir?
Hljómsveitir á borð við Jóa á
hakanum sem vegna tónlistar
sinnar fær hvergi inni á tónleik-
um í borginni. Einu hljómsveit-
inni sem var neitaö um að spila
á nýbylgjutónleikunum frægu
sem haldnir voru f Laugardals-
höll siðasta sumar á þeirri for-
sendu cinni að forráðamenn
tónleikanna likaði ekki tónlist
þeirra. Ég vona það eitt aö Jó-
inn sé ekki hættur fyrir fullt og
allt þvi þeir eru hin eina og
sanna islenska underground
hljómsveit. Afram Jói á hakan-
um. Gefist ekki upp þó á móti
blási. Lifi islensk tónlist.
Rósi.
Þaö er nefnilega þaö. Stuðar-
inn lýsir hér með eftir Jóa á
hakanum.Jói! Hafðu samband!
Hvar fékk Bjarni bux-
urnar???
Góðan daginn Stuðari!
Ég ætla að láta ykkur vita það
að Bjarni er ekki i Sjálfsfróun
lengur. Þessi aumingi var rek-
inn, enda var hann falskur,
frckur og leiðinlegur. Svo segir
ha nn við a ðra að h a nn hafi hætt i
Sjálfsfróun en f Stundinni okkar
segir hann að hann voni að klik-
an haldist sem lengst. Til hvers
erhann þá að Ijúga að hann hafi
hætt? Þorir hann kannski ekki
aö segja sannleikann um að
hann hafi veriö rekinn? Svo
vona ég að Bjarni komi ekki
aftur i blöðin í sambandi við
Sjálfsfróun. Hann segist hafa
fengiö 300 kr. fyrir samræðurn-
ar f smátima i Stundinni okkar.
Svo fengu Siggi, Pési og Gombi
ekki krónu, en samt voru þeir
þarna lika, (og ekki var spurt
um leyfi). Það mætti halda að
Bjarni væri aðalpersónan.
(Hvar ætli hann hafi fengiö bux-
P.s. Sýningar eru á hverju kvöldi
kl. 20.30 til 10. mai.
urnar sem hann var I eöa var
hann i pilsi?). En initt álit á
manninum er að hann er ógeðs-
lega væminn og þessar ræður
hans má troða upp í............
(bíbb!) á honum ef það er ekki
þegar komið. Ég hugsa aö hann
veröi best kominn sem róni og
safni þá kannski hári og skeggi.
Gudda.
Sæl vertu Gudda min!
Mikið voðalega ertu sár og
reiö, en ég vona svo sannarlega
að þú sért búin að fá útrás fyrir
mestu reiðinni. Mér finnst
Bjarni vera ágætis náungi og
vona aö hann verði eitthvað
annaö en róni, en mér er alveg
sama þótt hann safni hári og
skeggi. Égvil benda á aö strák-
arnir komu ekki i viðtal I Stund-
inni okkar og þess vegna fengu
þeir ekki peninga og ég býst við
aö Hugrenningur hafi gefið
sjónvarpinu leyfi til aö birta
kafla úr myndinni. — Já, já. —
Lifið er ekki alltaf dans á rósum
Gudda mín.
10 litlir negrastrákar sungu þær Kristin B. Gunnarsdóttir, ólöf
Garðarsdóttir og Sólveig Berg Björnsdóttir en tónlistin var spiluð af
segulbandi af þeim Agli Ólafssyni og Tómasi Tómassyni Þursum.