Helgarpósturinn - 07.05.1982, Page 27
Jielgarpósturinn
27
Flotið á
málamiðlunum
Karvel Pálmason alþingismaður var
ómyrkur i máli um störf þingsins i vetur:
„Þetta hefur verið drepleiðinlegt, hrein-
lega niðurdrepandi ástand. Það er kominn
timi til að hrista upp i þessu pólitiska kerfi
okkar.”
Ekki voru allir aðrir þingmenn sammála
Karvel. „Þetta er misskilningur,” sagði
annar. „Karvel segirþetta bara vegna þess
að hann hefur verið of mikið i burtu — hann
er alltaf hjá kjósenduml" Þessari hálf-
kæringslegu athugasemd fylgdi skelli-
hlátur nokkurra þingmanna við kaffi-
borðið, tæpast fylgir mikil alvara þessum
orðum.
E n hvort sem þinghaldið i vetur hefur
verið skemmtilegt eða leiðinlegt, þá er 104.
löggjafarþingi Islendinga að Ijúka. Það
hefur verið álika starfsamt og undanfarin
ár ef marka má málafjöldann: á mið-
vikudagskvöldið höfðu verið samþykkt 79
ný lög og 32 þingsályktunartillögur af sam-
tals 318 framlögðum málum. Þingskjöl
voru álika mörg og undanfarin ár, i fyrra-
kvöld voru þau orðin 932 og talið liklegt að
einhverjir tugir ættu eftir að bætast við.
Hvortþaunáað verða 1078eins ogi fyrra er
aftur á móti óvist, enda var þá metár.
1 vor, eins og flest önnur vor, hefur mála-
fjöldinn verið mestur siðustu vikurnar.
Ekki eru nema 2—3 vikur siðan rikis-
stjórnin lagði fram lista yfir nærri 60 mál,
sem hún vildi fá samþykkt fyrir þinglausn-
ir. Óbreyttum áhorfanda þykja það ef til
vill nokkuð undarleg vinnubrögð — væri
ekki hægt að dreifa þessu betur yfir vet-
urinnogjafna álagið? Ýmsir þingmenneru
þeirrar skoðunar, að afköstin framan af
vetri hafi verið heldur litil. Einn orðaði það
meira að segja svo, að i vetur hafi „ekkert
gerst mánuðum saman þar til örfáum
vikum fyrir þinglausnir að dengt er hér inn
hverju stórmálinu á fætur öðru.”
etta á sér þó sinar skýringar. Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráðherra sagði
skýringarnar einkum vera þrjár. 1 fyrsta
lagi væru ráðuneytin, þar sem frumvörpin
yrðu helst til, vanbúin hvað varðar mann-
afla, þau réðu á stundum varla við tækni-
legan undirbúning á þeim tima sem ráð-
herra hefði óskað eftir. t öðru lagi nýttist
sumartiminn illa, þvi þingflokkarnir væru
ekki i kallfæri yfir sumarmánuðina og þvi
væru það i raun aðeins veturnir semgæfust
til vinnu og umfjöllunar um mál, og i þriðja
lagi væri vinna þingflokkanna oft á tiðum
ekki nægilega vel skipulögð yfir sumartim-
ann. Vinnan hæfist ekki fyrr en á haustin og
þá væri timinn fljótur að liða — það væri
hreinlega komið fram á vor þegar nefnd-
irnar hefðu fjallað um málin og umræðum
væri að ljúka.
Benjamín Menendez,herlandstjóri Argent*nu u Faiklandseyjum, ráögast viö undir-
foringja .gina.
Umsát um Falklands
eyjar reynd í stað
landgöngu
Fyrir viku hermdu fréttir frá London, að
frú Thatcher forsætisráðherra hefði
ákveðið að skipa breska flotanum við Falk-
landseyjar að leggja til landgöngu á eyj-
unum og atlögu gegn argenti'nska hernáms-
liðinu. Auðveldur sigur yfir Argentinu-
mönnum á Suður-Georgi'u og vandkvæði
herskipa við að velkjast til langframa i'
stórsjóum Suður-Atlantshafs voru einkum
tilfærð sem ástæður fyrir afstöðu frú
Thatcher.
r
| gær var ljöst að breska stjórnin hefur
slegið striki yfir hugmyndina um skjótan og
algeran hernaðarsigur i Falklanseyjadeild-
unni. Að loknum fundi landvarnaráðherra
Atlantshafsbandalagsins i Brussel sagði
breski ráðherrann Nott, að ekki væri hætta
á frekari blóðsúthellingum i bráð, ef
Argentinumenn virtu 200 milna bannsvæði
Breta umhverfis Falklandseyjar og létu
ekki herskip sin eða flugvélar ógna bresk-
um skipum. Orð Nott bera með sér, að eins
og stendur telur breska stjórnin rétt að biða
átekta, halda nokkur þúsund manna liði
Argentinu á Falklandseyjum i herkvi,
meðan sést hvað verður úr nýjum til-
raunum til aðfinna samningaleiðsem báðir
aðilar geta sætt sig við.
Atburðir á hafinu við Falklandseyjar i'
öndverðri þessari viku eru sh'kir, að ekki er
furða þótt deiluaðilum finnist þörf á að taka
sér tóm til að átta sig áður en lengra er
haldið á sömu braut. Breski flotinn skákaði
frá upphafi i þvi skjóli, að hann hefur yfir
að ráða kjarnorkuknúniim kafbátum, sem
eiga auðvelt með að komast að herskipum
Argentinu. Þetta ásannaöist, þegar eitt
tundurskeyti bresks kafbáts sökkti beiti-
skipinu Belgrano meö um eitt þúsund
manna áhöfn. Breska herstjómin lýsti
strax yfir, að einungis einu tundurskeyti
hefði verið beitt til að takmarka manntjón
og laska skipið frekar en sökkva þvi. óvist
er enn um afdrif skipshafnarinnar, en
horfur á að nálægt 200 argentinskir sjóliðar
hafi farist.
Ekki leið á löngu að Argentinumönnum
tækist að hefna Belgrano. Flugskeyti frá
flugvél sökkti breska tundurspillinum
Sheffield, einu nýjasta og best búna ofan-
sjávarskipi breska flotans, og þar munu
Einn Alþýðuflokksþingmanna sagðist i
samtali við blaðamann Helgarpóstsins
telja að einnar meginskýringar á mála-
fjöldanum i þinglok væri að leita i þeirri
staðreynd, að ýmsir ráðherra, svo sem
Hjörleifur og Svavar Gestsson, væru óvanir
þingmennsku. Þeir hefðu ekki verið þing-
menn það lengi, að þeir áttuðu sig nægilega
vel á störfum þingsins og þeim tima, sem
færi i vinnu einstakra mála. Bæði Svavar
og Hjörleifur brostu breitt þegar þetta var
borið undir þá og töldu þetta af og frá, skýr-
inganna væri miklu frekar að leita i þvi sem
Hjörleifur hefði rakið.
Það sem kannski hefur helst sett sinn
svip á þingið er „afbrigðileg rikisstjórn”,
eins og einn ráðherranna orðaði það,
„rikisstjórn sem er meira og minna i
minnihluta i mörgum málum. Stjórnin er
svo veik, að það þarf stöðugt að vera að
leita málamiðlana, ekki aðeins milli
stjórnar og stjórnarandstöðu, heldur einnig
milli stjórnarflokkanna. Og eftir þvi sem
iiður á kjörtimabilið verður meiri losara-
bragur á störlum þingsins. Framan af
stóðustjórnarþingmenn þétt að baki stjórn-
inni og þeir sem höfðu lofað að verja hana
falii sömuleiðis. Menn stóðu þétt um
stjórnarsáttmálann. Nú hefur þetta eðli-
lega riðlast. Þetta þýðir m.a. að breytinga-
tillögur við frumvörp og þingsályktanir
verða miklu fleiri en gerðist fyrir örfáum
árum. Heilu málin gjörbreytast i með-
förum þingsins og þar er ekki hægt að sjá
sérstakan mun á stjórnarþingmönnum og
stjórnarandstöðuþingmönnum. Allir gera
sinar breytingar. Þetta er allt annað en til
dæmis siðasta vinstri stjórn, sem var með
afgerandi meirihluta og þurfti ekki jafn
mikið að leita málamiðlana,” sagði þessi
ráðherra.
líetta ástand hefur m.a. haft þær
afleiðingar, að fjöldi mála stjórnarinnar
hefur verið „frystur” — jafnvel látinn daga
uppi i nefndum, eins og skyldusparnaðar-
frumvarpiö er dæmi um. Það varð mjög
fljótlega ljóst að ekki var meirihluti fyrir
þvi máli i þinginu og þvi varð samkomulag
um að afgreiða það ekki l'rá nefnd. Fleiri
mál hafa veriö fryst af sömu sökum. Nefna
má frumvarp um fatlaða, aldraða, hús-
næðismál, lytjadreifingu, framhaldsskóla,
staðgreiðslu skatta, sykurverksmiðju og
jafnvel kisilmálmfrumvarpið, sem tekið
hefur miklum breytingum i meðförum
þingsins, þótt það hljóti afgreiðslu.
Einn sjálfstæðisþingmanna kvaðst ekki
geta tekið undir það að hann og hans menn
hefðu verið slappir: „Við höfum reynt að
halda uppi málefnalegri og ábyrgri
stjórnarandstöðu og held að okkur hafi
tekist það nokkuð vel. En auðvitað mótast
okkar stjórnarandstaða verulega af þvi, að
eftir landsfundinn i haust hefur verið lögð á
það mikil áhersla að sameina flokkinn
aftur. Við munum til dæmis ganga sam-
einaðir til sveitarstjórnakosninganna i vor
— og undir svona kringumstæðum er vita-
skuld ekki sérlega hyggilegt að halda uppi
stifum árásum á forsætisráðherra og aðra
samflokksmenn okkar i rikisstjórninni.”
Hafi mönnum ekki þótt sérstakt „fjör”
i þinginu i vetur (vissulega hefur verið
unnið mikið og tekist á við stórmál á borð
við virkjana- og orkumálin) þá stafar það
ekki sist af komandi kosningum. Flokk-
arnir vilja.núskerpa linurnar á milli sin og
gæta allrar varkárni i samstarfinu til að
standa betur að vigi i sveitarstjórnakosn-
ingunum 22. þessa mánaöar.
Þingstarlið mótast að þessu leytinu
einnig af þvi, að augljóslega verður
stjórnarsamstarfið ekki endurnýjað að
loknum næstu alþingiskosningum, hvenær
sem þær verða — þótt ílestir séu á þvi, að
stjórnin sitji út kjörtimabilið. Mörg meiri-
háttar mál eru þvi i'einskonarbiðstöðu. Það
er haldið i horfinu en ekki teknar afgerandi
ákvarðanir — enda ekki nægilega sterkur
meirihluti fyrir hendi. Og svo á ýmislegt
eftiraðgerast isumar og fram á haust. Allt
er óvist um úrslit sveitarstjórnakosning-
anna, ekki sist i Reykjavik, samningar eru
lausir og blæs ekki byrlega fyrir fljótri af-
greiðslu þar. „Það veit enginn hvaö kemur
út úr þessu öllu. Á meðan er bara haldið á
floti," sagði einn þingmanna við blaða-
mann Helgarpóstsins.
eftir
Ómar
Valdimarsson
i YFIRS ÝN 1
hafa látið lífið tveir til þri'r tugir sjóliða.
Franska Exocet flugskeytið, sem
Argentinumenn beittu gegn Sheffield, er nú
i fyrsta skipti notað i hernaði, enda aðeins
fáárfrá þvi framleiðsla áþvi'hófst. Kemur
á daginn að þetta er hið skæðasta vopn, svo
tilvera þess getur orðið til að flotaforingjar
þurfi að breyta hugmyndum sinum um sjó-
hernað.
Frá öndverðu blasti við, að veiki blett-
urinn á flotaleiðangri Breta til Falklands-
eyja eraðþangað ná argentinskar herflug-
vélar frá stöðvum á landi. Yfirráð arg-
entinska flughersins yfir Exocet skeyt-
unum.og getan til að beita þeim, sem sann-
aðisti'árásinni áSheffield, gerirað verkum
að þessi veila i hemaðarstööu breska flot-
ans er mun meiri en fyrirfram virtist.
Við þetta bætist, að þótt þjóðareiningu
megikalla i Bretlandi um að senda flotann
til Falklanseyja i þvi skyni að sýna
Argentinustjórnað fleiri geti beitt hervaldi
en hún, gegnir allt ööru máli um ákvörðun
að beita flotanum i stórum stil til hernaðar-
aðgerða að fyrra bragði. Bretar og banda-
mennþeirra eru sammála um að Argentinu
má ekki haldast uppi að beita valdi til að
hafa sitt fram i landaþrætu, en þar með er
ekki sagt aö réttlætanlegt sé að efna aö
fyrra bragði til meiriháttar blóðsúthellinga
i þvi skyni að knýja Argentinustjórn til að
láta undan siga. Ekki getur breskur floti
haldið vörö um 2000 Falklendinga um aldur
og ævi. Pólitisk lausn verður að finnast á
deilunni að lokum, og hún verður þeim mun
vandfundnari sem fleiri láta lifið á vopna-
viðskiptum.
Fyrstu aðgeröir Breta gagnvart stöðvum
Argentinuhers á Falklandseyjum sjálfum,
árásirnar á flugbrautina við Port Stanley,
voru þess eðlis að engum tiðindum þótti í
rauninni sæta. Sjálfgefiö var að um leiö og
breski flotinn kæmi á vettvang, væru
gerðar ráöstafanir til að rjúfa loftleiðina
milli hernámsliðsins á eyjunum og birgða-
stöðvaþess i landi. Bretar skýra nú frá því,
að endurteknar árásir á flugbrautina hafi
gert hana með öllu ónothæfa. Þar með
hefurBretland taká Argenti'nu, sem ætti að
knyja hana til samninga, en sá hængur er á
aöbreski flotinn er óraveg frá heimastööv-
um sinum og staddur á hafi sem þekkt er
fyrir hvössustu storma og stærstu sjói sem
fyrirfinnast.
En auk þess aö hafa nokkur þúsund arg-
entinska hermenn i' s\ clti a Falklands-
eyjum, getur breska stjórnin skákað i' þvi
skjóli að efnahagshrun blasir við Argentinu
af völdum refsiaðgerða hennar, annarra
Efnahagsbandalagsrikja og Bandari'kj-
anna.
Hernaðarævintýrið til Falklandseyja
var i og með hugsað af hálfu Galtieri og
félaga hans i herforingjastjórninni til að
draga athygli landslýðsins frá ófremdar-
ástandinu i Argentinu. Bann af hálfu rikja
Vestur-Evrópu og Bandarikjanna við
nýjum viðskiptasamningum og fjármála-
fyrirgreiðslu við Argentinu verður til þess,
að við landinu blasir vöruskortur og
greiðsluþrot. Sovétrikin hafa á síðustu
árum keypt mestallan kornútflutning
Argentinu, sem á siðasta ári nam 72% af
heildarútflutningi landsins. Sovétmenn eru
isliku gjaldeyrishraki, að þeir hafa orðið að
fara fram á sivaxandi greiðslufrest, en
hann hafa Argentinumenn verið I vand-
ræðum með að veita, af þvi engar lána-
stofnanir fást til að kaupa skuldaviður-
kenningar Sovétri'kjanna. Rikisskuldir
Argentinu eru taldar nema 34 milljörðum
dollara, og þegar fyrir innrásina á Falk-
landseyjar voru þeir komnir i 500 milljón
dollara vanskil. Bankar I Vestur-Evrópu og
Bandarikjunum eru nú lokaðir Argentinu
við aö endurfjármagna lán, sem falla f
gjalddaga i ár, og talin eru nema allt að 12
• milljörðum dollara.
Fjárhagsástandi innanlands má marka
'afþvi', að veröbólga var komin upp i 140% á
!;ári áöur en til átakanna viö Bretland kom.
Viðskiptavextir i Buenos Aires nema 400%
af viku lánum og lán til mánaðar bera frá
215% til 275% ársvexti, eftir þvi hversu góðs
launstrausts lántakandi nýtur.
Riki sem býr við slika fjármálaóstjórn
getur ekki með nokkru móti staðið i stór-
ræðum gagnvart helstu lánardrottnum
sinum til langframa. Þvi er fyrirsjáanlegt,
aö Argentinumenn eru dæmdir til að láta af
kröfu sinni, um að yfirráð þeirra yfir Falk-
landseyjum séu viðurkennd, áður en þeir
kalli hernámslið sitt brott.