Helgarpósturinn - 07.05.1982, Blaðsíða 28
Föstudagur 7. maí 1982 helgarpósturinn
OGGOÐ
ÞJÓNUSTA
Við hjá B.M. VALLÁ HF. leggjum áherslu á skjóta og góða
þjónustu við viðskiptavini okkar og að steypan sem
við framleiðum standist að öllu leyti þær kröfur
sem til hennar eru gerðar.
Þrautreynt starfsfólk, strangt gæðaeftirlit
og fullkomnasta steypustöð landsins
er trygging þín fyrir vandaðri vöru.
BM VALIÁ
SKRIFSTOFA:
NÓATÚNI17
SÍMI: 26266
STEYPUSTOÐ
STEYPUPANTANIR:
BÍLDSHÖFÐA 3
SÍMI: 85833
STEYPUFRAMLEIÐSLA
VTKURFRAMLEIÐSLA
VIKURÚTFLUTNIN GUR
• 1 uppsiglingu er nú stofnun
nýs stéttarfélags rithöfunda. Er
það óánægjuhópur úr Félagi
islenskra rithöfunda, sem undan-
farið hefur starfað sem eins
konar rithöfundaklúbbur á hægri
væng pólitikurinnar, sem vill
kjúfa sig frá Rithöfundasam-
bandi Islands. Telja þessir rit-
höfundar að Rithöfundasam-
bandið og sjóðir á þess snærum
hygli rithöfundum sem séu „i eða
utan á Alþýðubandalaginu”, eins
og foringí þeirra, Ingimar Er-
lendur Sigurðsson orðar það. A
sunnudaginn verður haldinn aðal-
fundur Félags islenskra rithöf-
unda og stefnir allt i að þar verði
lögð drög að stofnun nýs stéttar-
félags. Formannsefnið i þessu
nýja félagi mun vera Gunnar Dal,
en þeir sem unnið hafa af kappi
að undirbúningi málsins munu
vera auk Ingimars Erlends,
Baldur Óskarsson, Indriði G.
Þorsteinsson, Erlcndur Jónsson
o.fl. Þegar við siðast fréttum
munu þeir félagar hafa sagst
komnir með á þriðja tug rithöf-
unda sem tilbúnir væru að segja
sig úr Rithöfundasambandinu.
Um þriðjungur félaga i Rithöf-
undasambandinu mun vera i
Félagi Islenskra rithöfunda, en
ekki er vist að þeir séu allir á þvi
að stétt sé styrkt með þvi að
kljúfa stéttarfélagið...
• Baksiðuklausa i siðasta
Helgarpósti um afgreiðslu Loft-
ferðaeftirlitsins á leiguflugi
tveggja Arnarflugsvéla til Fær-
eyja fyrir skömmu reyndist
byggð á ónákvæmum
upplýsingum. Beðist er vel-
virðingar á fullyrðingum um að
óeðlilega hafi verið að rannsókn-
inni staðið. Fyrir þvi liggja engar
sannanir. Afturámóti er staðfest
að vélarnar voru of þungar, og
vitaðer að Arnarflug hleður vélar
sinar meir en Flugleiðir gera
sambærilegar vélar. Þannig hafa
Arnarflugsmenn hlaðið 19 manns
i Twin Otter-vélar sinar á meðan
Flugleiðir telja ekki ráðlegt að
hafa þar fleiri en fjórtán —
sautján...
• Likur benda til að talsverð
hreyfing verði á helstu topp-
stöðum i leiklistarheiminum á
næstu mánuðum. Nú stendur
fyrir dyrum að auglýsa stöðu
leiklistarstjóra útvarpsins, en
eftirað Klemens Jónssonhætti og
hóf störf við innheimtu hjá Dag-
blaðinu & Visi og Videóson, hefur
Óskar Ingimarsson verið settur
leiklistarstjóri. Meðal innanhús-
fólks hjá útvarpinu er talsverð
stemming fyrir þvi.að Óskar fái
stöðuna, en auk hans eru nefndir
sem liklegir umsækjendur Hall-
mar Sigurðsson.sem nýtur fylgis
stórs hópsleikara, einkum þeirra
yngri, Þórhildur Þorleifsdóttir,
Briet Héðinsdóttir, Jón Viðar
Jónsson og Flosi ólafsson....
• Þá er trúlegt aö staða leik-
hússtjóra hjá Leikíélagi Reykja-
vikur verði auglýst i haust, og nýr
maður taki þar við á næsta ári
samkvæmt reglum félagsins.
Ekki er talið liklegt að framhald
verði á þvi að hafa tvo leikhús-
stjóra eins og verið hefur. Þá
hefur verið talað um að næsta
leikár verði það siðasta sem
Sveinn Einarsson stjórnar Þjóð-
leikhúsinu. Hins vegar mun túlk-
unaratriði hvort hann eigi ekki
rétt á öðru fjögurra ára timabili
þvi þaö dróst að ganga frá skipan
hans i embættið vet,na þess hve
lengi frumvarpið um nýju Þjóð-
leikhúslögin lá hjá alþingi...
• Og einnig er að losna skóla-
stjórastaða Leiklistarskóla rikis-
ins, en Pétur Einarsson hefur
gegnt þvi starfi undanfarin ár.
Heyrst hefur að Helga Hjörvar, -
framkvæmdastjóri Bandalags is-
lenskra leikfélaga hafiáhuga á að
hætta á þeim bæ og komi þá
skólastjórastaðan mjög til
álita....
• Ibúar viö Hraunhóla i
Garðabæ vöknuðu upp við heldur
vondan draum að morgni
föstudagsins 30. april. Þegar þeir
ætluðu að aka venjulega leið til
vinnu sinnar, suður Hraunhólana
og út á Reykjanesbraut sáu þeir
nefnilega, að búið var að brjóta
upp malbikið á gatnamótunum og
koma fyrir stórum, gulmáluðum
grjóthnullungum þvert yfir veg-
inn. Eina leiðin
niður á Reykjavikurveg var um
Hraunholtstún, þar sem nýlega
var slett niður nokkrum malar-
hlössum, um Löngufit og Lækjar-
Ibúarnir
við Hraunhóla brugðu við skjótt
og skrifuðu bæjarráði bréf þar
sem farið var fram á að vega-
tálmanir yrðu fjarlægðár; og
skrifuðu allir ibúar þeirra átta
ibúðarhúsa sem við götuna
standa undir bréfið. Ekkert gerð-
istfyrr en á miðvikudagsmorgun.
Þá var einum steininum á gatna-
mótunum ýtt til hliðar en hins-
vegar voru vegatálmanir sem
höfðu lokað gatnamótum Kefla-
vikurvegar og Reykjavikurvegar
i Engidal, fyrir neðan gatnamót-
in, flutt upp fyrir þau. Leiðin var
þvi jafn lokuð og fyrr. Talið er að
„atkvæði” við Löngufit hafi farið
fram á lokunina, en Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur hreinan meiri-
hluta i bæjarstjórn Garðabæjar.
En það er hinsvegar mál manna,
að með þessu hafi umferðin fram
hjá húsi „atkvæðisins” frekar
aukistenhitt þar eð nú þurfa allir
ibúar Hraunhóla að fara framhjá
húsi þess, hvort sem þeir ætla til
Reykjavikur eða Hafnarfjarðar,
auk þess sem skátaheimili bæjar-
ins stendur við götuna. Það er
mál manna, að skýringin á þessu
sé einföld. Flestir ibúanna við
Hraunhóla eru Framsóknar-
menn.
• I næstu viku munu mynd-
bandaeigendur loks fá tækifæri á
að leigja sér islenska kvikmynd i
myndbandaleigum landsins.
Kvikmyndafélagið Óðinn hefur
nú fengið til landsins eitt hundrað
myndbandaspólur með kvik-
myndinni Punktur, punktur,
komma, strik, sem Þorsteinn
Jónsson leikstýrði eftir bókum
Péturs Gunnarssonar...
• Fyrir skömmu sóttu þeir
Friðrik Þór Friöriksson og félag-
ar hans þrir úr Hugrenningi um
aðild að Félagi kvikmyndagerð-
armanna. Þeim var öllum synjað
um fulla aðild nema Ara Kristins-
syni, en boðið að verða aukafé-
lagar, með tillögurétt en ekki at-
kvæðisrétt. Astæðan fyrir þessu
var sögð sú að þeir stæðust ekki
inntökuskilyrði félagsins en þau
munu vera próf i kvikmyndagerð
frá viðurkenndum skóla eða störf
i greininni i þrjú ár. Eru þeir nú
að hugleiða stofnun nýs félags
kvikmyndagerðarmanna. Auk
þess að fá ekki inngöngu I FK
finnst þeim þeir eiga takmarkaða
samleið með mönnum sem hafa
meirihluta tekna sinna af gerð
auglýsingamynda. Ætla þeir nú
að kanna hljómgrunn fyrir stofn-
un nýs félags þar sem eingöngu
verði þeir sem vinna að skapandi
kvikmyndagerð, eins og þeir i
Hugrenningi eru að reyna að
gera....
Gerum við Kalkhoff —■ SCO —■
Winter — Peugeot — Everton
og öll önnur hjól.
Fullkomin tækja- og vara-
hlutaþjónusta.
Sérhæfing I fjölgirahjólum.
Seljum uppgerð hjól.
Opið alla daga frá kl. 8—18,
laugardaga kl. 9—1.
Hjólatækni
Vitastig 5. Slmi 16900