Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 11

Helgarpósturinn - 16.07.1982, Side 11
Otto Grimm og verk hans Durch ein Versprechen gebunden. Svissnesk list í Nýlistasafni Svissneski myndlistarmaöur- inn Otto Grimm opnar sýningu i Nýlistasafninu viö Vatnsstig í kvöld, föstudag. t samtali við Helgarpóstinn sagöi Otto, aö hann ætiaöi aö sýna teikningar, mái- verk, tréverk og ljósmyndir. Otto fæddist 1 borginni Suhr i Svisslandi og nam hann myndlist i heimalandi sinu, og siöan i Jan van Eyck akademiunni i Maastr- icht i Hollandi. Þetta er i fyrsta skipti, sem hann sýnir á Islandi, en áöur hefur hann haldiö fjölda sýninga, m.a. i Ziirich, Basel, Montreux og viöar. A siöastliön- um vetri dvaldi hann i Paris og hlaut til þess styrk frá svissneska rikinu. Myndirnar, sem hann sýnir hér, gerði Otto á siöasta ári og þessu, og sagði hann i samtali, aö erfitt væri fyrir sig aö lýsa þeim með orðum, fólk yröi bara að koma og sjá þau. Sýningin stend- ur til mánaðamóta. Nú i vor lét Klemens Jónsson af störfum sem leiklistarstjóri út- varpsins. Staða hans hefur enn ekki verið auglýst laus til um- sóknar og hefur flogið fyrir að ætiun útvarpsmanna sé að leggja þetta embætti niður og setja starfssvið þess undir dagskrár- deild. Ekki vildi Andrés Björnsson út- varpsstjóri kannast viö þetta þeg- ar Helgarpósturinn bar málið undir hann. — Klemens er ný- hættur og þaö er bara ekki búiö að auglýsa stööuna enn. Ég geri ráö fyrir aö þaö veröi gert i sumar. Nú er maöur settur i starfiö, Osk- ar Ingimarsson sem undanfariö hefur veriö aöstoðarmaður Klem- ens, og gegnir hann þvi þangaö til skipaö veröur i stööuna, sagði út- varpsstjóri. —ÞH Skurðlæknirinn, tannlæknirinn og leikstjórinn: EKKI FÆÐAST ALLIR E/NS Tónabíó: Sveröiö og seiðskrattinn (The Sword and the Sorcerer). Bandarisk kvikmynd, árgerö 1981. Handrit: Aibert Pyun og tveir aörir. Leikendur: Richard Lynch, Lee Horseley, Katheline Beller, George Maharis, Anna Björnsdóttir. Leikstjóri: Albert Pyun. Sumir eru fæddir skurö- læknar, aörir tannlæknar, en hekiur aö sviðsetja bardaga- senur þannig aö eitthvert vit sé i. Þaö er næstum þvi eins og allt hafi veriö gert meö tfu þumai- puttum. Eins og viö má búast, sýna leikarar litil tilþrif i dramatiskri túlkun, enda hand- ritiö of heimskulegt til þess aö svo mætti vera. Hérermest lagt upp úr likamlegri hreysti, og margir leikaranna eru greini- lega mjög fitt. Ekki er allt semsýnist Unnið að uppsetningu sýningarinnar á islenskri alþýðulist á Kjarvals- stöðum. Kjarvalsstaðir: íslensk alþýðulist á ári aldraðra Myndlistarsýning i tilefni af ári aldraöra opnar á Kjarvalsstööum á laugardag. Sýning þessi er sett upp á vegum þingkjörinnar nefndar í tilefni af ári aldraöra og öldrunarráös. Sýningin er á is- lenskri alþýðulist, og þarna er að finna ~ stærsta samansafn af naivistum, sem sýnt hafa saman á tslandi. Meðal þeirra má nefna tsleif Konráðsson, Grimu (ölöfu Grímeu Þorláksdóttur), Sölva Helgason (hinn eina sanna), Ósk- ar Magnússon, Blómeyju Stef- ánsdóttur, Jón Hróbjartsson, Gisla Jónsson, Halldór Stefáns- son og Eggert Magnússon. Þá heiöra hinar öldnu kempur As- mundur Sveinsson og Sigurjón Ólafsson sýninguna meö verkum sinum. Auk þess veröa sýndir ýmsir gripir úr tré, járni, steini og fleiri efnum, geröir af hag- leiksfólki viöa um land. Sú nýjung veröur á sýningunni, aö sýnt veröur myndbandapró- gram meö viötölum viö aldraöa úti á landi og sýnd vinnubrögð þeirra. I tengslum viö sýninguna verö- ur mikiö um aö vera á Kjarvals- stöðum. Verður m.a. efnt til ráö- stefna og málþinga, auk annarra uppákoma. Sýningarnefndin er skipuö þeim Sverri Kristjánssyni, Friö- riki G. Friörikssyni, Aslaugu Sverrisdóttur, Eggerti Asgeirs- syni, Finni Fróöasyni og Hrafn- hildi Shram, en þau siðasttöldu sáu um aö setja sýninguna upp. wr f <S ' Itegnboginn: Sólin var vitni (Evil under the Sun). Ensk.Ar- gcrð 1981. Leikstjóri Guy Ham- ilton. Handrit: Anthony Shaffer. Aðalleikari: Peter Ustinov. Peter Ustinov er aftur kominn á kreik sem Hercule Poirot og jafn óborganlegur sem áöur. Peter kemst eflaust næst þvi aö sýna okkur Poirot eins og Agatha hugsaöi sér hann: sjálf- umglaöan litinn nagg, þreytandi enaldreileiðinlegan. Þaö eina sem hægt er að fetta fingur út I viö þessa mynd er, aö hún er eftir einni af þeim sögum Agöthu sem byrja á atviki sem siöar tengist sögunni. Þessar sögur hennar hafa veriö mjög vinsælar til kvikmyndunar, hverju svo sem þaö sættir. Aö ööru leyti er myndin góö kvöldskemmtun og þarna er ef- laust kominn sá still á sögur sem við fáum aö sjá i framtiö- inni, björt mynd i fallegu um- hverfi, þar sem yfirstéttarfólkiö dundar sér við aö drepa hvert annað. Söguþráðurinn er þaö flókinn aö engum nema Hercule Poirot tekst aö leysa hann, þó gráu frumur áhorfenda séu eflaust á fullu. Og ekki má gleyma þeim úrvals hópi enskra leikara sem skapa aöalpersónur Agöthu. Þar er valinn maður i hverju rúmi. En þrátt fyrir góða kvik- myndun, fallega búninga og rétta timasetningu situr smáat- vik eftir: Hvaöan kom álpappir- inn? JAE Leiklistarstjóri útvarpsins: Staðan auglýst í sumar svo mikiö er vist, aö ekki hefur Albert PyUn stokkiö sem alskapaöur kvikmyndaleik- stjóri úr móöurkviöi. Og fátt bendir til þess, aö hann eigi nokkurn tima eftir aö veröa þaö, a.m.k. ef marka má þá afurö hans,semokkurerboðiöaðsjá I Tónabiói þessa dagana. Fyrir þaö fyrsta, er efni myndarinnar eins ófrumlegt og nokkuö má vera. Vondi kóngur- inn ræöst inn i paradisarkóngs- rikiö og drepur allt, sem hönd á festir. Yngsti sonur góöa kóngs- ins kemst þó undan og hyggur á hefndir. Inn i þetta blandast svo einhverjir fáránlegir galdrar. Réttlætiö sigrar svo aö lokum. I öðru lagi, kann Albert Pyun ekki aö stjórna leikurum né I þriöja lagi er þetta sföan hundleiöinleg mynd. En leiöinleg, eöa ekki leiöin- leg, léleg, eöa ekki léleg, SOS viröist ganga i áhorfendur, ef marka má skjal nokkurt, sem hangir i biösal biósins. Hvað segir ekki ameriskt dagblaö: Mynd, sem sigrar meö þvi aö falla almenningi I geö. Hver sagöi svo almenningi, að þetta væri mynd fyrir hann? Varð þaö almenningur sjálfur, eöa var þaö auglýsingaherferö fr amle iöanda nna ? Aö lokum þetta: 1 myndinni eru fallegir litir og nokkuö er um fallegarstelpur. Þá er hasar og blóö, kossar i litlum mæli og- meira gefiö til kynna, o.s.frv. Sem sagt: mynd fyrir alla.GB eftir Guðlaug Bergmundsson og Jón Axel Egilsson

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.