Helgarpósturinn - 25.10.1984, Blaðsíða 3
Luxus: bægt frá mæöu
☆ Dollarar, Leica-myndavél,
golf, SeikoQuarz, BMW.gull-
húöaöar vindlingaöskjur
(,,Etui“ erafarfyrirferðarmikiö
hugtak hjá Thómasi Mann),
gull, demantar, Calvados,
snekkja á Miðjarðarhafinu,
styrjuhrogn... Ef ofantaldir
hlutir eru í þínum augum jafn
sjálfsagðir og nývirki í augum
nauts ættirðu að fara heim og
leggja þig: Þá hefur þér hvort
eð er aldrei verið gefinn séns.
Eða þú getur lesið um og
skoðað allt í LUXUS, tímarit-
inu sem SAM-útgáfan, með
Þórarin Jón Magnússon í
broddi fylkingar, ætlar að fara
að hleypa af stokkunum.
,,Um hvað heldur þú sjálfur
að tímarit með slíku nafni fjalli
helst?“ sagði Þórarinn þegar
hann var spurður um hug-
myndina á bak við LUXUS.
„Ætli það verði ekki einkum
það sem má flokka undir lífs-
gæði af öllu tagi: Munaðarvör-
ur, skemmtun og annað sem
gleður mannsins hjarta.
Anægjuefni er sem sagt
númer eitt, en sorg og sút
bægt frá.
LUXUS á að fjalla mikið um
vandaðar vörur," sagði Þórar-
inn ennfremur, „íslendingar
eru afar kröfuharðir og vanda
vöruval sitt. Hér er mikil eftir-
spurn eftir bifreiðum úr hærri
verðflokkum og fatnaði meö
frægum vörumerkjum; mjög
hefur færst í vöxt að fólk láti
eftir sér að snæða á veitinga-
húsum, og skemmtiferðalög
landans bera uppi ótrúlegan
fjölda ferðaskrifstofa. Það er
Ijóst að gifurlegum fjármunum
er varið í lúxus hér á landi.“
Af ummælum Þórarins Jóns
Magnússonar er Ijóst aö fleiri
en einungis innsti kjarni glæsi-
kvenna og stertimenna þessa
lands muni leita hugsvölunar í
tímaritinu Luxus. Tímaritið
mun eiga erindi til allra sem
eru þannig gerðir að þeim
þykir skemmtilegra að fá sér
kökubita en narta í þurra
brauðskorpu.*
Það sem er mikilvægast fyrir þann sem er að
byggja eru auðvitað fjármálin og byggingar-
hraðinn.
J.L. Byggingavörur gerir húsbyggjendum
kleift að byggja með fyrsta flokks vörum á
sérstökum J.L.-lánakjörum.
J.L. Byggingalánin eru þannig í fram-
kvæmd:
Stofnaður er viðskiptareikningur, fyrir tí-
unda hvers mánaðar er úttekt fyrri mánaðar
yfirfarin, a.m.k. 20% greidd í peningum, og
allt að 80% sett á skuldabréf til allt að sex
mánaða. Þannig er þetta framkvæmt koll af
kolli. Einnig er hægt að semja um sérstök
J.L.-lán, sem miðast t.d. við útborgun líf-
eyrissjóðslána eða húsnæðismálastjórnar-
lána. Þannig getum við verið með frá byrj-
un.
Iðnaðarmenn sem vinna fyrir viðskiptavini
okkar þurfa ekki að leita annað í efniskaup-
um. Um leið og búið er að grafa grunninn
geta smiðirnir komið til okkar og fengið
fyrstu spýturnar. Og í framhaldi af því fæst
allt byggingarefnið hjá okkur.
Renndu við vestur í bæ og talaðu við okkur
ef þú ert að byggja.
iBYGGlNGflVÖBUB
HRINGBRAUT 120: “12
,'8 MX) So<uM|Oi. 28 693
t.oiNcpu,i<ic*<) • . 28 603 SM.'sloU 28 620
í
S
1
I
Á að bylta
Þjóðviljanum?
„Það hefur nú verið nánast stöðug bylting á blaðinu á und-
anförnum tveimur árum. Þeirri byltingu verður haldið áfram.
Hún miðast að því að gera blaðið að hvössu og snörpu vopni
fyrir alla vinstrimenn í landinu. Og hvað mína stjórn á blaðinu
varðar, þá ætla ég að reyna að gera það að sameiningartákni
fyrir vinstrivænginn."
Hvaða ritstjórnarstefnu ætlarðu að fylgja?
„Það verður framfylgt aðhaldsblaðamennsku, hvortheldur
fyrir vinstrimenn eða þá sem tilheyra hægrikantinum."
Á að taka nákvæmt mið af flokkslínunni eins og hef-
ur verið gert á undanförnum árum Þjóðviljans, eða
verður hann sjálf stæður sósíalískur miðill sem fer gegn
flokksforystunni þegar blaðinu býður svo við að horfa?
„Blaðið hefur sjálfstæða rödd. Það er engin spurning. Það
verður ekki tekin upp nein hrá lína frá einum eða neinum. Blað-
ið er og verður málsvari verkalýðshreyfingarinnar og mun
fylgja sósíalískri stefnu eins og það hefur reynt að gera dyggi-
lega í verkföllunum, enda veitir ekki af. Það er vargöld í þjóðfé-
laginu sem bitnar harðast á launafólkinu."
Þjóðviljanum verður sem sagt ekki fjarstýrt af foryst-
unni?
„Nei. Það er alveg á hreinu."
Þú skákaðir Óskari Guðmundssyni, núverandi rit-
stjórnarfulltrúa Þjóðviljans, og Vilborgu Harðardóttur,
varaformanni flokksins, í kapphlaupinu um ritstjóra-
stólinn. Var það harður leikur?
„Hafi verið einhver hráskinnaleikur um þetta starf, eins og
þú ert að gefa í skyn, þá varð ég hans ekki var, og þá vitið þið
á Helgarpóstinum meira um það en ég."
Þarf flokksskírteini í Alþýðubandalaginu til að kom-
ast í ritstjórastól Þjóðviljans?
„Þegar ég kom til landsins frá námi síðastliðið sumar hafði
ég ekki gengið í Alþýðubandalagið. Og þeir sem lesið hafa
greinar mínar í blaðinu á undanförnum árum hafa séð að ég hef
þar ekki hikað við að gagnrýna forystumenn Alþýðubanda-
lagsins og stefnu flokksins ef svo hefur borið undir. Ég gekk
hinsvegar í flokkinn fyrir fáeinum mánuðum, en get ekki séð
að það hafi haft nein áhrif á að ég var valinn í þetta starf."
Þú munt vera mjög utarlega á vinstrivæng Alþýðu-
bandalagsins. Heldurðu ekki að margir lesendur Þjóð-
viljans óttist þennan róttæka vinstrimann í þér?
„Ég hugsa ekki. Þó getur það vel verið að ýmsum í Alþýðu-
bandalaginu líki ekki alls kostar vel við þennan róttækling í
mér. En það verður þá bara að taka því."
Og loks þetta össur: Ertu nú með ritstjórastöðunni
byrjaður að fikra þig upp metorðastiga Alþýðubanda-
lagsins?
„Sko, ég er menntaður í fiskeldi og hyggst þegar tímar líða
fram snúa mér aftur að þeirri grein. Ég fékk einfaldlega ekki
vinnu við hana þegarég kom frá námi í sumar, og fór því hing-
að á Þjóðviljann í staðinn. En ef þú ert að spyrja mig um hvort
ég ætli mér á þing með þessari viðkomu í ritstjórastólnum, þá
er svarið afdráttarlaust nei: Þangað ætla ég örugglega ekki.
Það er hinsvegar um þessa menntun mína að segja, að hún á
ábyggilega eftir að reynast mér vel við ritstjórn Þjóðviljans, því
fyrir tilstilli hennar hef ég útvegað mér allnokkra reynslu í að
fást við og temja stórlaxa."
— SER.
Össur Skarphéðinsson hefur verið ráðinn ritstjóri Þjóðviljans til
næstu þriggja ára. Össur er fæddur á kvenréttindadaginn árið 1953 og
því 31 árs gamall. Hann er Reykvlkingur I húð og hár, sonur hjónanna
Valgerðar Magnúsdóttur og Skarphéðins össurarsonar, og menntað-
ist í fiskalífeðlisfræði í Bretlandi á árunum 1979 — 84.
HELGARPÓSTURINN 3