Helgarpósturinn - 27.02.1986, Side 3

Helgarpósturinn - 27.02.1986, Side 3
FYRST OG FREMST BLAÐAMENN eru stundum seinheppnir en ráðagóðir. Iþrótta- fréttaritarar íslensku blaðanna á heimsmeistarakeppninni í hand- bolta í Sviss flugu beint til Ziirich, voru keyrðir af flugvellinum með rútu til hótelsins og síðan beint til Genfar á leik íslendinga og S- Kóreumanna. Iþróttafréttaritarar DV, Stefán Kristjánsson og Bjarn- leifur Bjarnleifsson ljósmyndari, höfðu þó annan hátt á. Sem heimsmenn fengu þeir sér bílaleigu- bíl á flugvellinum og óku sjálfir beint á leikinn. En eitthvað tók þetta bílaleigustand langan tíma og vegakerfi tiltölulega flókið í Sviss. Hvað um það: Þegar DV-menn mættu á leikinn voru aðeins 10 mínútur eftir. Þetta stöðvaði þó ekki þessa vösku menn og gaf m.a. að lesa í DV um leikinn næsta dag: „Oþarfi er að rekja gang leiksins í gærkvöldi í löngu máli og flestir ef ekki allir vilja gleyma honum sem allra fyrst.“(!) TALANDI um íslenska hand- knattleiksliðið: Það kom mjög á óvart að Þorgils Óttar Mathiesen, besti línumaður liðsins, skyldi ekki vera með í leiknum gegn S- Kóreumönnum. Talið er að Kristján Arason sé aðeins hálfur maður ef Þorgils vantar og samspil þeirra frægt orðið. Bogdan þjálfari hafði lýst því yfir að Þorgils yrði á vellinum í fyrsta leiknum og því vakti fjarvera hans athygli. ANNARS er mikið leitað að sökudólg eftir ófarirnar við S- Kóreumenn. Sennilega fær Bogdan að dingla í snörunni að lokum fyrir að hafa ekki undir- búið strákana betur sálfræðilega fyrir ieikinn. Hins vegar voru engin læti eftir þennan fyrsta leik íslenska handboltaliðsins en menn niðurbrotnir og þöglir. Meira að segja íslenskir áhorfendur sem höfðu greitt fargjald frá íslandi þoldu ekki við á áhorfendapöll- unum og gengu margir hverjir af leiknum og settust niður í anddyri með höfuð í greipum. FRJALST framtak hefur verið til sölu að undanförnu. Magnás Hregguidsson framkvæmdastjóri og aðaleigandi FF bauð fyrirtækið með húð og hári til sölu nýverið. Fyrirtækið var boðið engum HELGARPÚSTURINN íslands óhamingja Veraldarlánið virðist mér valt hjá (slendingum. Fer nú allt að fyllast hér af fullum Hafnfirðingum. Niðri öðrum en Sueini R. Eyjólfssyni, framkvæmdastjóra Frjálsrar fjöl- miðlunar sem gefur út DV og Vikuna. Sveinn R. hefur hins vegar hafnað tilboðinu og telur ekki vænlegt að fyrirtæki sitt færi út kvíarnar í blaðaútgáfu heldur einbeiti sér að því að viðhalda núverandi útgáfu og hella sér í útvarps- og sjónvarpsrekstur. Við höfum reyndar einnig frétt að Anders Hansen hafi áhuga á að selja Fjölvaútgáfuna sem gefur m.a. út Mannlíf en seljum það ekki dýrara en við keyptum. ÞAÐ er ekki nema von að útgefendur tímarita vilji selja fyrirtæki sín svo mikil er sam- keppnin á markaðnum að verða. Nú mun enn eitt tímaritið vera á leiðinni. Gudmundur Karlsson fyrrverandi framkvæmdastjóri NT, hefur stofnað fyrirtæki og verður sjálfur ritstjóri að nýju tímariti sem ryðst inn á markað sem Hús og híbýli hefur setið eitt að. Auglýsingastjóri hins nýja rits er Birna Sigurðardóttir. Önnur ný tímarit á markaðnum: Heimsmynd Herdísar Þorgeirsdóttur kemur út í fyrsta skipti 14. mars og hefur Herdís sótt efni víða út í hinn stóra heim, m.a. sent blaðamenn sína til New York ásamt Maríu Guðmundsdóttur, fyrrum fegurðar- drottningu og núverandi ljósmynd- ara. Grein sú fjallar um tískuna í New York. Þá mun Herdís vera með forsíðuviðtal við heimsfræga Hollywood-stjörnu sem tilnefnd hefur verið til Óskarsverðlauna. Og getið nú! Hið nýja tískutímarit Jóhönnu Birgisdóttur, Stíll, er einnig væntanlegt í marsmánuði. Það er sem sagt hart barist á markaðnum. SMARTSKOT UÓSMYND JIM SMART Haukur Björnsson „Nei." — Eru Flugleiðir að stela af ykkur pílagrímafluginu í Alsír? „Nei. Það er enginn að stela neinu þar því að það er ennþá verið að ræða við nokkur flugfélög sem hafa sýnt áhuga á þessu verkefni og það hefur verið upplýst að bæði Arnarflug og Flugleiðir eru með. Samkvæmt okkar upplýsingum verða niðurstöður Ijósar um miðjan marsmánuð og við teljum all- góðar líkur á að við fáum verkefnið en hinsvegar er ekki víst um það fyrr en þessari könnun Alsírmanna er lokið." — Það virðist ýmislegt vera loðið ( Alsír, Flugleiða- menn segjast hafa náð samningum en Alsírmenn verj- ast allra frétta, er ekki vont að eiga í samningum viö þessa menn? „Við höfum ekki orðið varir við það og vitum ekki nákvæm- lega með hvaða hætti Flugleiðir hafa staðið að þessu máli en allt sem við vitum er það að þetta er með mjög eðlilegum hætti af hálfu Alsírmanna." — Hverjir eru það sem ætla að koma með tæpar 100 millj. inní Arnarflug? „Það liggur nú ekki fyrir ennþá en það er þúið að ræða við og kanna málið meðal ýmissa aðila í ferðamannaiðnaði og ég á von á því að það verði aðilar þaðan." — Dugir hlutafjáraukningin til að bjarga Arnarflugi ef þið fáið ekki pílagrímaflugið? „Pílagrímaflugið er vissulega verkefni sem við höfum áhuga á að fá en það kemur ekki til með að skipta sköpum um fram- tíð fyrirtækisins. Ég vek athygli á því að pflagrímaflugið svokall- aða, það er ekki eingöngu flug fyrir Alsírbúa. Ég minni á að á síðastliðnu ári stóð Arnarflug í umfangsmiklu pflagrímaflugi og var það fyrir margar þjóðir." — Gleður það ykkur Arnarflugsmenn að hlutur Flug- leiða í Arnarflugi komi til með að verða minni? „Ég get ekki svarað þannig spurningu. Það eru aðrar ástæð- ur sem liggja að baki hlutafjáraukningunni, t.d. það sjónarmið að það þurfi að vera góð dreifing á eignaraðild í fyrirtækjum einsog Arnarflugi, þannig að enginn einn aðili, hvort sem það eru Flugleiðir eða aðrir, eigi þar hreinan meirihluta." — Er það ekki tóm vitleysa að reka tvö stór flugfélög í iitlu landi? „Ég held að það sé nauðsynlegt. Við getum ekki átt undir því að einn aðili reki samgöngur að geðþótta sínum. Ég er ekki með þessum orðum að reka horn í síðu eins eða neins. Það er einfaldlega staðreynd að þegar einn aðili stendur að einhverri tiltekinni starfsemi, stórt hlutafélag, ríkisfyrirtæki eða einka- fyrirtæki, þá er hætta á ferðum. Flugsamgöngur eru ferðamáti okkar tíma og þjóð sem býr á eyju útí miðju Atlantshafi einsog islendingar, á gífurlega mikið undir því að samgöngur séu „effektívar" og reknar á sem bestum grundvelli. Þetta er allt að því sjálfstæðismál þjóðarinnar." — Er þetta Alsírmál og hlutafjáraukningin ef til vill úrslitaorrusta ykkar Arnarflugsmanna við Flugleiðir? „Nei. Það er full þörf á að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækisins. Til þess er þessi leikur gerður með hlutafjáraukninguna." — Þið eruð sem sagt bjartsýnir? ,Já. Við værum ekki að þessu ef við teldum ekki góðar horfur á að reksturinn stæði undir sér í framtíðinni." Að undanförnu hef ur mjög verið ífréttum barátta Arnarflugsog Flug- leiða um að ná samningum við Alsírbúa um pflagrímaflug. Flugleiðir segjast hafa náð samningum, Alsfrbúar verjast allra frétta og Arnar- flugsmenn segja að allt sé opið enn og að Flugleiðir hafi engum samn- ingum náð. Þetta kemur upp á sama tíma og mikið tap er á Arnarflugi og ætlunin er að auka hlutaféð um 100 millj. Því sló HP á þráðinn til Hauks Björnssonar stjórnarformanns Arnarflugs til að kanna hvort Arn- arflug væri á hausnum. Eruð þið að fara á hausinn? HELGARPÖSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.