Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 27.02.1986, Qupperneq 6

Helgarpósturinn - 27.02.1986, Qupperneq 6
á nýju versiunarhöllina í Kringlunni eða nýja miðbænum hefur vakið mikla athygli. í boði eru verðlaun sem þykja ekki smánarleg, nefnilega 125 þúsund krónur, hvorki meira né minna. Streyma nú tillögur um nafngift inn til Hagkaups og þarf að tæma pósthólfið oft á dag til að létta á þunganum. Þótt skilafrestur sé til 14. mars er bréfafjöldinn nú kominn vel á annað þúsund. í dómnefndinni sitja þeir Guðni Kolbeinsson ís- lenskufræðingur, Jón Asbergsson forstjóri Hagkaups, Sigurður Gísli Pálmason stjórnarformaður Hag- kaups og Valdimar Kristinsson hagfræðingur sem vinnur hjá Seðla- bankanum. Sagt er að yfirmenn Hagkaups hafi reyndar verið með gott nafn í huga en því miður var það frátekið. Það er nafnið Valhöll. Hins vegar heyrum við ýmsar uppá- stungur; Pálmalundur (í höfuð Pálma í Hagkaup), Albert Hall (til hyllingar Albert Guðmundssyni fyr- ir framlag hans að fá áfengissöluna á staðinn) og Jónshús (í höfuðið á nýja forstjóranum Jóni Asbergs- syni). Þá mun nýja Hagkaupshúsið geta státað af stærstu áfengisútsöl- unni og því hefur nafninu Kon- ungsríkið verið fleygt af því tilefni. En við bíðum sem sagt spennt eftir úrslitunum og sigurnafninu. . . l slensku landsliðspiltarnir verða heldur betur í sviðsljósinu á næst- unni. Hins vegar mun ríkja pólskur heragi í búðum piltanna, og það verður enginn hægðarleikur fyrir íslenska blaðamenn að komast í tæri við piltana því Bogdan þjálfari fylgir pólskri einangrunarstefnu og hefur sannfært forráðamenn HSI um að einangrun sé strákunum fyrir bestu. Dæmi um þetta kom strax í flugvélinni á leiðinni til Sviss. Þann- ig þrýsti einn úr landsliðshópnum á takka fyrir flugfreyjurnar, og ekki var Ijósið fyrr farið að blikka en Bogdan var rokinn upp og kominn að sæti mannsins og spurði hann hvað hann vildi eiginlega. Lands- liðsmaðurinn var þyrstur og vildi vatnsglas og slapp sú ósk í gegn. I sömu ferð vildi svo til, að með vél- inni var maður, sem þekkt hefur einn landsliðsmannanna til margra ára og gekk landsliðsmaðurinn að sæti hans til að rabba við hann. Nei. Bogdan rauk upp og bannaði sam- talið og rak fullorðinn handbolta- manninn í sæti sitt. Það verður víst að segjast, að það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera í íslenska handboltalandsliðinu, innan vallar sem utan .. . u ■ ýverið fór fram skoðana- könnun í henni Ameríku, þar sem ungar konur voru spurðar að því hvort þær kysu fremur að helga sig vinnu utan heimilis eða húsmóður- störfum, ef þær yrðu að velja þarna á milli. Þegar samskonar könnun var gerð fyrir tíu árum, sögðust 35% kvennanna taka launavinnu fram yfir fjölskylduumönnun, en nú varð niðurstaðan sú að 51% bandarískra kvenna myndu fremur kjósa að vinna úti en sinna húsmóðurhlut- verki heima fyrir. . . l ngvi Hrafn Jónsson, hinn skeleggi fréttastjóri sjónvarpsins, neitaði sem kunnugt er á sínum tíma að biðjast afsökunar á meint- um tilhæfulausum fréttaflutningi af málefnurn Arnarflugs fyrir skemmstu. Nú hefur okkur borist til eyrna að Ingvi Hrafn hefði brotið odd af oflæti sínu og beðið Agnar Fridriksson, framkvæmdastjóra Arnarflugs, afsökunar prívat, þó ekki hafi hann viljað gera það opin- berlega. . . s ^^amkvæmt áreiðanlegum heimildum var fyrir skemmstu hald- inn fundur, þar sem langþreyttir matreiðslumenn tóku einn af þekkt- ustu matarskríbentum landsins á beinið. Mun mörgum matreiðslu- meistaranum hafa verið mikið niðri fyrir og var á fundinum talað af al- gjörri hreinskilni um handahófs- kennda, fordómafulla og stundum glórulausa umfjöllun um matar- gerðarlist í ákveðnum íslenskum fjölmiðli... Ef þú veist lítið um raunveru- lega kunnáttu þína í tungu- málinu leysa stöðuprófin úr þeim vanda. Strax í fyrsta tima bjóðum við uppá stöðupróf fýrir þá sem vilja. Tíma ættu fl að geta við sitt hæfi Við kennum á kvöldin, um miðjan dag og á morgnana. mars 20% afsláttur gildir fyrir hjón, systkini, öryrkja, ellilífeyrisþega og félagsmenn Stjómunar- félagsins. Munið: starfs- menntunarsjóðir ríkisins og Reykjavíkurborgar taka þátt í að greiða námskeiðsgjöld sinna félagsmanna á námskeiðum Mímis. Allar frekari upplýsingar og innritun í síma MÁLASKÓU RITARÁSKÓLÍ Mímir ANANAUSTUM 45 Nýja áfangakerfið sem við tókum upp um áramótin auð- veldar nemendum að meta framfarir við tungumálanámið. Áfangamir em fjórir: bvriendur, lærlinear. sveinar og meistarar. Námskeiðin sem nú fara í hönd em í b) og d) flokkum allra áfanganna. mgum aiger nauosyn — en nvera- ig náum við bestum árangri? Fyrst er að hugsa málið, síðan hringja til Múnis. Múnir hefur um langt árabil sérhæft sig í vönduðu tungumálanámi og kappkostað að tryggja nemandanum bestu fáanlegu kunnáttu á sem skemmstum túna. Áratuga reynsla og ánægðir nem- endur eru besta auglýsingin. ENSKA ÞÝSKA FRANSKA SPÆNSKA ÍTALSKA ÍSLENSKA fyrir útlendinga Kennt er tvisvar í viku, tvær klukkusmndir í senn. Öll námsgögn em innifalin í nám- skeiðsgjaldi og við bjóðum uppá veitingar í frímínútum. Öllum d) námskeiðunum lýkur með prófi 30. aprfl og þá útskrifúm við fyrstu lærlingana, sveinana og meistarana! Vilm læra önnur mngumál en þau sem hér em nefnd? Láttu það ekki aftra þér ffá því að grípa til símans - hringdu til okkar og berðu fram óskir þínar. Við reynum að koma til móts við alla. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.