Helgarpósturinn - 27.02.1986, Side 14

Helgarpósturinn - 27.02.1986, Side 14
HRAKFALLASAGA FRASKILINNAR KONU Hvernig fyrrverandi eiginmanni tekst með dyggri „aðstoð77 dómsyfir valda að gera fráskilda eiginkonu eignalausa með öllum tiltækum ráðum Hjónaskilnadir hafa stundum í för meö sér erfið málaferli um skipt- ingu eigna, en sjaldnast verda deil- urnar eins ofsafengnar og í eftirfar- andi frásögn segir til um. I máli þessu virdist mjög á annan adilann hallað. Hin fráskilda eiginkona sagði við Helgarpóstinn: „Mínar eignir eru nánast allar farnar, íbúð- arhús, hálft verkstceðishús og hálft fyrirtœki, auk tveggja bíla. Þessu hefur aldrei verið skipt upp hjá skiptarétti þó beðið hafi verið um slíkt fyrir næstum áratug. A meðan hefur allt veriö gert til að flytja eign- irnar yfir á hinn aðilann. Efþað hef- ur ekki gengið með góðu móti hefur eignum mínum hreinlega verið stol- íð.“ Það er Erla Þorsteinsdóttir sem svo mælir. Árið 1955 gekk hún að eiga Elliða Norðdal Guðjónsson, uppfinningamann með meiru. Rimma þeirra hefur staðið yfir í mörg ár og Erla haft þrjá lögfræð- inga á þessum tíma. Erla segir að sá fyrsti hafi ekkert markvert gert og að hún hafi sagt honum upp þegar fór að sjást til hans með Elliða á öld- urhúsum Reykjavíkur. Lögfræðing- ur númer tvö gafst hreinlega upp, sagðist ekkert geta gert í málinu vegna mikils þrýstings frá „mafí- unni" í Hafnarfirði. Lítum nánar á málavexti. Eftir margra ára hjónaband standa mál þannig að þau eiga sam- an íbúðarhús að Lindarflöt 37 í Garðabæ og myndarlegt fyrirtæki að Lyngási 11 með tilheyrandi verk- stæðishúsi og bifreiðum. 1972 fer Erla fram á skilnað við Elliða vegna óreglu hans. Það gerist hins vegar 9. apríl 1973 að þau gera með sér kaupmála um að íbúðarhús þeirra að Lindarflöt 37 ásamt innbúi skyldi vera hennar séreign. Árið 1978 skilja þau að borði og sæng, en skömmu áður hafði lögfræðingur Erlu farið fram á uppáskrift eigna og opinber skipti. Það dregst. Samningar þverbrotnir Saman áttu þau hjón fyrirtæki sem til jafns nefndist Elektratæki og Elliði Norðdal Guðjónsson sf. Fyrir- tæki þetta framleiddi og seldi ýmiss- konar sjávarútvegstæki og þá sér- staklega handfæravindur sem Elliði hafði fundið upp og fengið einka- leyfi fyrir. Áttu þau allt jafnt, en áð- urnefndur kaupmáli var gerður eftir að Erla fór að óttast um að hún missti húsið ef illa tæki að ganga með reksturinn. Elliði gerði kröfu síðar meir um að kaupmáli þessi yrði úrskurðaður ógildur, en þessari kröfu er hrundið af skiptarétti Hafnarfjarðar 26. febr- úar 1979. Skömmu síðar tekur gildi lögskilnaður þeirra hjóna. Líður svo og bíður að í maí 1980 gera þau samning, sem hvoru tveggja átti að lægja deilurnar og bæta sambúðina. í samningi þessum er kveðið á um að kaupmálinn sé afturkallaður og íbúðarhúsið að Lindarflöt sé sam- eign, sömuleiðis fasteign að Lyngási 11 og verkstæðið í sama húsi. í samningnum voru ákvæði um launagreiðslur til Erlu, sem þó má túlka fremur sem fastar arðgreiðsl- ur. En þegar tekur að bera á því að Elliði heldur ekki samkomulag þetta og í október sama ár er bréf- lega kvartað við Elliða um vanefnd- ir hans. Þar er Elliði áminntur um ákvæði um launagreiðslur til Erlu, um rétt hennar til að fylgjast með rekstri og afkomu fyrirtækisins, m.a. með því að sitja vikulega fundi um það efni. „Umbjóðandi minn telur gerða samninga þverbrotna af yðar hálfu. Hefur hún aðeins fengið greidd 2ja mánaða laun frá því samningar voru undirritaðir og nánast engar upplýsingar um hag fyrirtækisins þótt eftir þeim hafi verið leitað,“ skrifaði lögfræðingur Erlu á þeim tíma, Hjalti Steinþórsson. Þess var krafist að gengið yrði frá uppgjöri launa og lagt fram yfirlit um hag fyr- irtækisins innan viku. Áminning þessi hafði ekki tilætl- uð áhrif og hinn 8. maí 1981 kemur að því að Hjalti leggur fram stefnu til viðurkenningar á riftun maísam- komulagsins vegna vanefnda Ell- iða. Hjalti lýsir málavöxtum meðal annars svo: „Meðan á meðferð skiptamálsins um bú málsaðila stóð voru gerðar fjölmargar tilraunir til að ná sam- komulagi um skiptin en án árang- urs. Var svo komið að fyrir dyrum stóð að selja vélar, tæki og vöru- birgðir fyrirtækis, búsins og fasteign þess að Lyngási 11 Garðabæ á opin- beru uppboði til slita á sameign. Til þess að afstýra því tjóni sem við blasti féllst stefnandi (Erla) á að gefa eftir rétt sinn samkvæmt kaup- málanum frá 9.4. 1973 og ganga til samninga við stefnda (Elliða) um sameiginlegan rekstur á fyrirtæki búsins. Gerðu aðilar með sér sam- komulag það sem stefnandi krefst nú riftunar á hinn 10. maí 1980. Fljótlega eftir gerð samkomulagsins og samninga er gerðir voru á grund- velli þess hinn 21. maí 1980 kom í Ijós að stefndi vildi ekki standa við gerða samninga gagnvart stefnanda og gekk stefnanda treglega að fá upplýsingar um hag og rekstur fyrir- tækisins. Þá hefur stefndi og van- efnt verulega skuldbindingar um greiðslur til stefnanda." Vanefndir ekki taldar „nægjanlegar'' Bæjarþing Hafnarfjarðar tók mál- ið til meðferðar og felldi dóm í febr- úar 1982. Bæjarþingið taldi van- efndir ekki nægjanlegar og hafnaði riftun samkomulagsins. Þessu vildi Erla ekki una og áfrýj- aði dómnum til Hæstaréttar í lok maí 1982. Hæstiréttur hafði málið hjá sér í tæp tvö ár, en 9. febrúar 1984 kváðu þeir Þór Vilhjálmsson, Guðmundur Jónsson, Halldór Þor- björnsson, Magnús Þ. Torfason og Sigurgeir Jónsson upp úrskurð. Nið- urstaða þeirra var að maísamning- urinn „verður hvorki talinn hafa verið bersýnilega ósanngjarn þann- ig að hann verði með dómi lýstur óskuldbindandi.. . né heldur verð- ur hann metinn ógildur vegna efnis síns og aðdraganda með stoð í al- mennum reglum um fjármunarétt- arsamninga". Einnig var tekin fyrir veðsetning Elliða á Lyngási 11 til tryggingar skuldum sínum við Útvegsbanka ís- lands — án samráðs við Erlu. Hæsti- réttur taldi þessa heimildarlausu veðsetningu ekki vera vanefnd á samningi málsaðila sem veitti rétt til riftunar hans. Dómur bæjarþings Hafnarfjarðar var staðfestur og Erlu gert að greiða Elliða 25 þúsund krónur í málskostnað. Fyrirtækið selt þegar að uppboði kom Síðar á árinu biður Elliði bæjar- fógetann um uppboð á Lyngási, Lindarflötinni og fyrirtækinu. Og nú verður atburðarásin hröð. 19. mars 1985 biður lögfræðingur Erlu, Páll Arnór Pálsson, um skipti, uppá- skrift eigna og innsiglun á sameign- arfyrirtækinu að Lyngási. Skipta- ráðandinn í Garðabæ, Hlöðver Kjartansson, boðaði aðila og lög- menn þeirra til skiptafundar þriðju- daginn 16. apríl. Þá mætti Elliði og um leið kom í ljós að sama dag og skiptaráðandi boðaði aðilana á fund, 2. apríl, hafði Elliði selt fyrir- tækið og flutt flestallar eignirnar á brott — án vitundar Erlu! Elliði hafði gert málamyndakaupsamning við starfsmann fyrirtækisins, Stefán Bjarna Stefánsson og fyrirtækið var flutt að Hjallahrauni 8 í Hafnarfirði. Kom í ljós að Stefán þessi gat ekki einu sinni lesið kaupsamninginn vegna sjóndepru og hafði ekki hug- mynd um hver leigusalinn að hinu nýja húsnæði var. Var augljóst með öllu að ,,sala“ þessi hafði átt sér stað eingöngu í þeim tilgangi að koma eignum undan. Var fyrirtækið áfram rekið í nafni Elliða, hann tald- ist framkvæmdastjóri og síðari eig- inkona hans prókúruhafi. Fyrirtæk- ið hafði verið selt samtals á 700 þús- und krónur, en það var hins vegar metið á 4—5 milljónir kr. Engin skrá hafði verið gerð yfir hið „selda“ og „kaupandinn" hafði ekki verið innt- ur eftir greiðslu. Páll Arnór kærði sölu þessa fyrir hönd Erlu. I kærubréfinu til Rann- sóknarlögreglu ríkisins 22. apríl 1985 sagði meðal annars: „Það er ljóst að Elliði Norðdal leftir Friðrik Þór Guðmundsson Guðjónsson hefur brotið gróflega gagnvart umbjóðanda mínum þar sem hann ráðstafaði eignum hennar án heimildar og eftir að fram var komin krafa um skipti. . . Af þessum sökum er þess krafist að nú þegar fari fram rannsókn á þessu meinta broti og að lagt verði hald á eignir þær sem Elliði N. Guðjónsson hefur misfarið með. Er nauðsynlegt að brugðist verði skjótt við því að öðr- um kosti getur hann haldið upp- teknum hætti og dreift eignum frek- ar.“ Rannsóknarlögreglan kannaði málið í rúman mánuð og sendi það síðan til ríkissaksóknara hinn 30. maí. Ríkissaksóknari hugsar sig um í annan mánuð og hinn 1. júlí sendir embættið rannsóknarlögreglunni úrskurð: Saksóknari: Ekki tilefni mólshöfðunar „Rannsókn sú, sem fram hefur farið vegna framangreindrar kæru leiðir m.a. í Ijós, að kærði (Elliði) hef- ur eigi svo sem honum bar sam- kvæmt ákvæðum sameignarsamn- —ingsins leitað samþykkis meðeig- anda til sölunnar. Hann heldur því fram, að það sem selt hafi verið hafi verið selt á sannvirði en hann sé eigi að síður reiðubúinn til að inna af hendi til sameignarfélagsins mis- mun, sem mat kunni að leiða í ljós á sannvirði hins selda og söluverði. Eigi verður séð, að kærandi hafi neytt síns lögvarða réttar til að fá greindum samningi rift eftir einka- málaleiðum. Það eitt að kærði hafi selt greind- ar eignir í nafni sameignarfélagsins án formlegrar heimildar sameig- anda getur eigi gefið tilefni til höfð- unar refsimáls nema annað komi til. Rannsóknin hefur eigi leitt í ljós, að salan hafi verið gerð til að skaða sameignarfélagið eða til fjárhags- legs ávinnings fyrir kærða." Embættinu þótti því ekki ástæða til að mælast fyrir um frekari að- gerðir. Úrskurð þennan kvað upp Jónatan Sveinsson saksóknari. 9. september 1985 leggur Páll Arnór fram sérstaka greinargerð í skiptaréttarmálinu fyrir skiptarétt Garðabæjar. Þar er þess krafist að allir þeir munir úr eigu sameignar- félagsins sem fluttir voru af Lyng- ásnum í Hjallahraunið verði skrifað- ir upp og komi til skipta. Bendir Páll á, að allt frá skilnaði 1978 hafi Elliði ráðskast með eignir Erlu og gert allt til að hún gæti ekki fylgst með fjár- reiðum sameignarfélagsins. Eignir hefðu stöðugt rýrnað á meðan á málarekstri stóð og þær aðeins ver- ið brot af því sem áður var þegar hæstaréttardómur féll. Síðan hafi Elliði bætt um betur og „selt“ eign- irnar starfsmanni sínum. Þó kaup- samningurinn hefði verið dagsettur 2. apríl benti allt til þess að eigna- flutningurinn hefði átt sér stað 16,—19. apríl, eftir að skipti byrjuðu. Segir Páll í greinargerðinni að sam- kvæmt ákvæðum laga hafi skipta- ráðanda borið að láta skrifa upp og virða búið strax eftir að skipta- beiðni kom fram. Krafa um slíkt fékk hins vegar ekki undirtektir. myndir Jim SmartHHHHBa i þessu húsnæði að Lyngási 11, Garðabæ, var fyrirtækið Elektra- tæki — Elliði Norðdal Guðjónsson sf. rekið, sameignarfélag Elliða og Erlu Þorsteins- dóttur. Þegar fram áttu aö fara opinber skipti var í skyndi búinn til „kaupsamningur", fyrirtækið selt fyrir „slikk" og eignir fluttar í Hjallahraun 8, Hafnarfirði. í þessu húsnæði að Hjallahrauni 8 í Hafnarfirði er nú rekið fyrirtækið Elliði Norð- dal Guðjónsson sf. Elliði er framkvæmda- stjóri, síðari eiginkona hans prókúruhafi, en „eigandi" er starfs- maður, sem „keypti" fyrirtækið án þess að leggja til nokkurn pening. Lindarflöt 37 i Garðabæ var sam- kvæmt kaupmála sér- eign Erlu Þorsteins- dóttur, en síðar sam- eign samkvæmt sam- komulagi sem ítrekað hefur verið reynt að rifta vegna vanefnda Elliða. Hann hefur án samþykkis Erlu veð- sett eignina til fulls og nú er hætta á að húseignin fari undir hamarinn. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.