Helgarpósturinn - 27.02.1986, Page 21

Helgarpósturinn - 27.02.1986, Page 21
salinn og spyr alla sem á vegi hans verða hvern- ig þeim lítist á stöðuna. („Það getur verið mjög þreytandi," segir Larsen umburðarlyndur.) Og það er Larsen sjálfur sem gengur um gólf, stóískur á svip. Hvers vegna? Hvað er hann að hugsa á þessu rölti sínu? „Oftastnær er ég að horfa á aðrar skákir. Ég reyni að beina huganum frá skákinni sem ég er að tefla, læt andstæðinginn um að gera eitthvað heimskulegt. Ég var reyndar skammaður fyrir þetta einu sinni þegar ég var ungur. Það var á fyrsta Ólympíuskákmótinu sem ég tók þátt í — í fyrsta skipti sem ég var innan um allt stór- menni skáklistarinnar. Þá kom til mín Krenz- isky, sem skrifaði í áratugi um skák fyrir Syd- svenska Dagbladet. Hann sá mig ganga um og kom til mín og sagði að svona mætti ég ekki hegða mér, ég ætti að sitja við borðið og hugsa á tíma andstæðingsins. Þá kom aðvífandi félagi hans, sænski stórmeistarinn Stahlberg og sagði að þetta væri tóm vitleysa, allir góðir skákmenn gengju um. Eitthvað fannst mér Stahlberg hafa til síns máls, því hann gat státað sig af miklu betri árangri en hinn. En það er auðvitað ein- staklingsbundið hvernig skákmenn bera sig að; 1964 tefldi ég tildæmis á móti í Hollandi þar sem voru 24 keppendur — og af þeim voru 23 „fót- gönguliðar" svo það gat orðið býsna fjörlegt í salnum. Mér finnst gott að hreyfa mig, koma blóðrásinni af stað og reyni jafnvel að ganga um þótt ég sé tæpur á tíma. Það er varla mannlegt að einbeita sér að einni skák í heila fimm tíma.“ LANÐFLÓTTAMAÐUR? Síðustu árin hefur Bent Larsen verið búsettur í Argentínu, en þar áður bjó hann í Las Palmas á Kanaríeyjum. Hann teflir ekki með dönsku sveitinni á Ólympíuskákmótum, svo það liggur beint við að spyrja hann hvort hann sé Iand- flóttamaður frá heimalandinu, Danmörku. „Það eru eingöngu persónulegar ástæður fyr- ir því að ég tefli ekki á Ólympíuskákmótum. Ég felli mig ekki við fyrirkomulagið á þeim, í mín- um augum er skákin einstaklingsíþrótt en ekki hópíþrótt. Mér líkar ekki að einhver liðstjóri geti fyrirskipað manni að tefla uppá jafntefli. En mér finnst ég ennþá vera Dani og held með danska landsliðinu í fótbolta. Ég hef heldur engar áætl- anir um það hvar ég ætla að láta hola mér niður á endanum — það gæti allt eins orðið í Dan- mörku. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að ég kýs að búa í Argentínu: Mér líkar ekki við vet- urna hér í norðurálfu, og það væri erfitt fyrir konuna mína að fá starf sem lögfræðingur í Dan- mörku og fyrir dætur mínar að ganga í skóla þar. Ég er heldur ekki mjög hrifinn af skatt- heimtunni í Danmörku. Það er líka að mörgu leyti skemmtilegt að búa í Argentínu. Þegar ég kem til Danmerkur eftir árs fjarveru opna ég blöðin og sé að ekkert hefur breyst, það eru sömu smáhneykslin sem eru á forsíðunum. í Argentínu er allt á stöðugri hreyfingu — hers- höfðingjarnir sem voru við völd fyrir nokkrum árum sitja nú einsog ótíndir glæpamenn á ákær- endabekk, það er 1000 prósent verðbólga og alltaf slagsmál á götunum. Allur þessi glundroði finnst mér spennandi og stundum svolítið spaugilegur. En það hefur líka sína ókosti að búa í Argentínu — flugmiðar þaðan eru dýrir og fyrir vikið kemst ég ekki á eins mörg skákmót og ég feginn vildi.“ Bent Larsen sagði að einmanalegt líf á hótel- herbergjum yrði sennilega hlutskipti sitt næstu mánuðina, það væri búið að bjóða honum á skákmót í London og New York. Þangað sagðist hann ætla að reyna að komast, en bætti svo við eftir smá umhugsun: „Ef konan mín leyfir ...“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.