Helgarpósturinn - 27.02.1986, Blaðsíða 33
Bjarni Þórarinsson
sýnir í Nýlistasafninu:
„Yrki mest
um
konuna og
kjarnorkuna“
„Með penslinum yrki ég mest um
„konuna“ og „kjarnorkuna““ segir
Bjarni Þórarinsson sem opnar á
föstudagskvöld kl. 20.00 sýningu á
þriöja tug olíumálverka í Nýlista-
safninu við Vatnsstíg. „Sjálfsagt
vilja einhverjir kenna myndir mínar
við expressjónisma — ég hef leitast
viö að þróa og ná tökum á persónu-
legum stíl. Þetta eru myndir frá síð-
astliðnum þremur árum. I heild eru
þœr eins konar dulúöug blanda af
meðvitund og undirmeðvitund. I
þeim lýsi ég umhverfi samtímans
með ríflegu skáldaleyfi. Þarna eru
líka sjálfslýsingar; psycho-málverk
úr umróti þjóðfélagsins og ástandi
heimsmála, hin tvíhyggjandi svart-
hvíta heimsmynd sem umrót einka-
lífsins setur jafnframt mark sitt á. I
nokkrum verkanna er þó gengið á
vit œvintýranna og hugmyndaflug-
inu gefinn laus taumur."
Framan af myndlistarferli sínum
tengdist Bjarni síðkonceptlistinni.
Hann var t.d. einn af stofnendum
Gallerísins að Suðurgötu 7. En er frá
leið fannst honum hugmyndalistin
of ópersónuleg og hann fór að mála
af kappi, dálítið undir áhrifum frá
nýja málverkinu, þó hvatar verk-
anna hafi verið sjálfsprottnir.
„Ég mála mikið konur, m.a. vegna
þess að ég hef alla tíð tekið kven-
frelsisbaráttuna mjög alvarlega,"
segir Bjarni. „Síðan höguðu örlögin
því svo að ég hafði einmitt búið að
Vesturgötu 3 um allnokkurt skeið
og jafnframt verið þar með mína
Bjarni Þórarinsson við verk sitt „Teikn" sem hann kallar móðurskip sýningarinnar.
vinnustofu, þegar kvenfólkið keypti
húsin og kallaði Hlaðvarpann. Því
var óhjákvæmilegt að mér og minni
myndlist yrði sagt upp húsnæðinu
svo kvennamenningin kæmist að.
Það var sárt að missa þessa ágætu
aðstöðu, en ég styð náttúrulega
þetta góða málefni heilshugar."
Á síðasta ári hélt Bjarni Þórarins-
son tvær einkasýningar, á Gallerí
Borg og í Gallerí Einiberjarunnan-
um. Sýning hans í Nýlistasafninu
stendur yfir til 9. mars. Hún er opin
frá 16—20 virka daga en 14—20 um
helgar.
JS
Surnif vakna
rúmdýn° °Q egna!
JoplttO -neilsunnarvC
;» DUri
'séndúmjpð^^í
♦Sveigjanleiki gúmmísins
tryggir rétta flöðrun.
• Fallegt áklœði stiginu réttu.
að eigin vali.
* Latex gúmmíið bœgir
♦L^trœsfikerfi heldur Qg sýkium.
lofhnu hremu og raka-
Latex dýna
Latex dýnan er eina dýnan á markaðnum
sem gerð er úr ekta náttúrugúmmíi.
Latex dýnan fjaðrar vel og veitir líkamanum
góðan stuðning. Þyngri líkamshlutar sökkva hœfi-
lega djúpt í dýnuna en hún veltir jafnframt stuðning
undir hina léttari.
Stabiflex rúmbotn
Stabiflex er einstaklega traustur og vandaður
rúmbotn sem hentar sérstaklega vel undir Latex
dýnuna. Samspil dýnu og rúmbotns er þar í full-
komnu samrœmi við hreyfingar og þyngd líkamans.
♦Hryggsúlan helst bein *Stabitiex rúmbotninn er sniðinn undir Latex
og það slaknar á vöðvum. dýnuna - samvirkandi og hljóðlaust kerfi.
—. ■. \
Of hörð dýna.
rc~ •••••••••^^ 1
[ 'ýi'> ýT> -rrTT^
LY6BDUQ
•Botnramminn er gerður
úr níðsterku Ifmtré.
Dugguvogl 8-10 Slml 84655
Of mjúk dýna.
•••••••• /
Latex dýnan: Dýnan lagar sig að
líkamanum - hryggsúlan er bein.
♦ Þverrimlamir eru gerðir úr Ifmtré
og bogna upp á við um miðjuna
- eru sveigjanlegir.
♦ Þverrimlamir hvfla á veltiörmum
úr gúmmíi sem hreyfast eftir
þrýstingi.
• Haegt er að hœkka rúmbotnlnn
undir höfði og fótum.
HELGARPÖSTURINN 33