Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 2
ÚRJÖNSBÖK Móðurást og menntakerfi Nágrannakonan hún ísafold sótti okkur hjónin heim á fimmtudagskvöldið, nam stað- ar í stofunni miðri, fórnaði höndum og — áð- ur en mér hafði gefist færi á að bjóða henni sæti — hrópaði hún grátklökkum rómi: ,,Þið verðið að hjálpa mér!“ Hún hríðskalf frá hvirfli til ilja og var hel- tekin mikilli geðshræringu. Hún var rauð í hvörmum með tárvot augu, hárið í óreiðu, andlitið náfölt og varirnar titruðu eins og hún reyndi í sífellu að bæla þungan ekka. „Ég er búin að fá meira en nóg. Þið verðið að hjálpa mér,“ endurtók hún í sömu angist sinni og áður. Ég gaut á hana augunum upp úr beinni út- sendingu frá almennum stjórnmálaumræð- um á Alþingi. Það leyndi sér ekki að hún hafði orðið fyrir geigvænu áfalli. „Taktu þetta ekki svona nærri þér,“ sagði ég spekjandi. „Það er sjónvarpað frá svona umræðum á hverju ári.“ „Við erum bæði orðin ónæm fyrir þessu, elskan mín,“ bætti konan mín við og klapp- aði ísafold á axlirnar. „Fáðu þér bara vídeó ef þú þolir þetta ekki,“ skaut ég að henni. „Það er ekki það," stundi ísafold á milli ekkasoganna. Hún lét fallast niður í sóffann við hliðina á mér, máttvana af örvæntingu eins og hún hefði þá um daginn fengið já- kvæða svörun á eyðniprófi. „Hvað er þá að, Isafold?" spurði ég. „Get- um við hjálpað þér?" „Það er hann Bjössi; hann er alveg að gera út af við mig.“ Við hjónin litum óttaslegin hvort á annað. Bjössi var átján ára einkasonur þessarar harðduglegu einstæðu móður í kjallaranum í næsta húsi. Við höfðum séð hann vaxa úr grasi, fylgst með honum frá því að hann var lítill ljóslokkaður hnokki að binda upp ketti á rófunni í þvottasnúrur og brjóta hrímstökk- ar rúður í garðhýsinu okkar með helfrosnum snjótittlingum sem hann veiddi í snörur. Og nú var þessi snáði að verða fulltíða maður, þetta síkvika ýlustrá hennar ísafoldar, subb- ugur upp á hvern dag, brosmildur stúfur, sem öllum þótti vænt um ósjálfrátt, og einasta fullnæging ísafoldar í lífinu. „Hvað hefur gerst með Bjössa?" spurði ég. „Var hann tekinn aftur fullur undir stýri?" „Ef það væri ekki annað og meira, mætti maður þakka guði fyrir," ansaði ísafold og brast í grát á næstsíðasta atkvæði. Konan mín fékk henni pappírsþurrku og þegar ísafold hafði jafnað sig og náð nokk- urn veginn eðlilegum andardrætti, þerraði hún tár af vöngum, snýtti sér og hélt áfram. „Ég er ekki að segja að foreldrar eigi að ráða yfir lífi barna sinna, enda hef ég leyft Bjössa að fara sínar eigin leiðir eins og þið vitið. Ég sýndi honum fullan skilning, þegar hann fór að smakka það í öðrum bekk. Ég sagði ekkert, þegar hann byrjaði að reykja, og reyndi jafnvel að sýna áhuga, þegar hann svissaði yfir í sterkari efni. Ég hef hugsað um stúlkurnar, sem hann dregur heim, eins og þær væru mínar eigin dætur. Ég hef borgað meðlögin fyrir hann. Ég sló lán og veðsetti íbúðina til þess að greiða sektina fyrir kóka- ínsmyglið. Ég sagði ekki eitt aukatekið orð þegar hann braut tólf manna matarstellið hennar mömmu til þess að sýna mér fram á tilgangsleysi efnishyggjunnar...“ „Þetta frá „konunglega?" skaut konan mín inní og greip andann á lofti. „Já, þetta handmálaða með gullröndinni,“ stundi Isafold og tók sér málhvíld andartak á meðan hún þurrkaði tár úr augnakrókunum og saug upp i nefið. „Ég hef sumsé aldrei bannað honum Bjössa eitt eða neitt,“ hélt hún svo áfram, „en nú segi ég stopp. Þið verðið að hjálpa mér að koma vitinu fyrir hann. Hann neitar að hlusta á mig. Hann er staðráðinn í að sóa líf- inu og kröftunum í eintóma vitleysu og JÓN ÓSKAR leggja blásnauða móður sína í gröfina." Við hjónin einblíndum á Isafold með spurnarsvip. Ég innti loks eftir varfærnislega hvað það væri í ósköpunum sem Bjössi hefði tekið upp á að gera. „Hann er guði sé lof ekki farinn að gera neitt, en hann er búinn að hóta því að gera það og segist kæra sig kollóttan um afleið- ingarnar." Isafold reisti sig upp í sóffanum og rétti úr bakinu eins og hún vildi þannig leggja áherslu á orð sín. „Hann ætlar að ganga menntaveginn!” Það sló dauðaþögn á okkur hjónin. ísafold herpti saman varirnar eftir að hafa Ijóstrað upp þessu einkalega fjölskylduvandamáli í kjallaranum við hliðina. í stofunni hjá okkur heyrðist ekkert nema lágvær malandi í loka- umferð almennrar stjórnmálaumræðu í sam- einuðu Alþingi. „Hvað viltu að ég geri?“ áræddi ég loks að spyrja. „Þú ert svo gáfaður og þið hjónin hafið komið ykkur svo vel fyrir. Reyndu að telja hann ofan af þessari vitleysu. Hérna er ég, einstæð móðir og gjörsam- lega ómenntuð, og búin að þræla í öll þessi ár og neita mér um næstum alla skapaða hluti til þess að koma honum til manns; já, búin að láta mig dreyma um að hann gæti séð fyrir mér og hugsað um mig í ellinni, að hann færi kannski út í sandblástur eða bíla- sölu, á skurðgröfu eða í múrverk eða pípu- lagnir eða eitthvað svoleiðis. Og svo gerir hann mér þetta. Það er alveg sama þó að ég biðji hann á hnjánum. Hann neitar bókstaflega að horfast í augu við ís- lenskan veruleika. Hann tekur ekkert mark á yfirlýstri stefnu stjórnvalda. Hann er stað- ráðinn í að ganga menntaveginn. Hann ætl- ar sér að lifa á ölmusu alla sína tíð og neyða móður sína til að skúra og sauma þar til yfir lýkur. Hann sagðist jafnvel ekki vera frá- hverfur því að gerast kennari, jafnvel á há- skólastigi! Hafiði heyrt annað eins í hálffull- orðnum manni sem á að vita að fólk lifir ekki á loftinu einu saman!" ísafold leit á okkur hjónin á víxl. „Hann hefði þó að minnsta kosti getað mildað áfallið á móður sína með því að stefna á viðskiptafræði! Hvað getur vesæl kona eins og ég gert til að koma í veg fyrir að einasti sonur hennar fari í hundana?! Tal- aðu um fyrir honum. Gerðu honum grein fyrir hvað það hafi í för með sér fyrir ungan mann á Islandi að ganga menntaveginn. Bentu honum á alla þessa raunamæddu menntamenn, þá sem hunsuðu rödd skyn- seminnar og lögðu í rúst með langskóla- göngu og lærdómi líf sitt allt og fjölskyldu sinnar, afkomu og andlega velferð. Sjáið þið hann Leifa á tuttugu og sjö. Hann er lektor í verklegri efnafræði og hefur ekki haft ráð á að skipta um jakkaföt í sex ár; strákarnir hans ganga allir með tærnar og hælana út úr strigaskónum. Þú ert í sandblæstri og flytur inn klámblöð; gerðu það fyrir mig að telja hann Bjössa ofan af þessu glapræði. Ég má ekki til þess hugsa að einkabarnið mitt hreppi þau örlög að verða íslenskur mennta- maður." Hér þagnaði ísafold og brast aftur í nær óstöðvandi grát. Við hjónin hresstum hana á kaffi og koníaki og ég fylgdi henni síðan yfir í litla kjallaraíbúðina þar sem logaði enn ljós í herberginu hans Bjössa. „Sérðu, það er kveikt hjá honum," stundi ísafold örvilnuð og benti á gluggann. „Hann er bara með stelpu hjá sér,“ sagði ég hughreystandi. „Nei, hann liggur alveg örugglega yfir skólabókunum," svaraði ísafold og leit beint framan í mig társtokknum augum. Þau glitr- uðu í myrkrinu eins og fimmkrónupeningar. Ég gleymi seint vonleysinu í svip þessarar einstæðu íslensku móður. AUGALEIÐ AF HYEfflJ EF PASBI SVOtö FÚU ? X \ HAtVtV rV£tm/lf> FARA Aelu- HEIMILI FRAMSÓKHAmOKKSm. 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.