Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 35

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 35
ERLEND YFIRSYN eftir Magnús Torfa Ólafsson Ekki er ein báran stök hjá Ronald Reagan og mönnum hans. Írans-Contra hneykslið heldur áfram að vinda upp á sig. Rannsókn- arnefndir beggja deilda Bandaríkjaþings og Lawrence Walsh, sérlegur saksóknari, ráðg- ast nú um, hversu saman geti farið undirbún- ingur að yfirheyrslum helstu grunaðra söku- dólga úr Hvíta húsinu, þeirra Poindexters að- míráls, Norths ofursta og Secords hershöfð- ingja, fyrir þingnefndum og sakamálarann- sókn á hendur sömu mönnum. Blöð hafa eft- ir rannsóknarmönnum Walsh, að grunsemd- ir séu uppi um að minnsta kosti þrennskonar ódáðaverk, sem sé fjársvik gagnvart ríkinu, viðleitni til að hindra framgang réttvísinnar og fölsun opinberra gagna. Rannsóknar- menn taka fram, að þeir undanskilji engan frá gruni um lögbrot, sem hlut átti að máli þessu. En losaraleg vinnubrögð, gönuhlaup of- stopamanna og lítilsvirðing fyrir stjórnskipu- legum reglum rey nast hafa grafið um sig víð- ar í stjórn Reagans en meðal starfsliðs Þjóð- aröryggisráðs í Hvíta húsinu. Fyrir þá sök lentu tvær hliðar á geimvarnaáætlun forset- ans í sviðsljósinu í síðustu viku. Fyrst birti New York Times frásögn af því, að Caspar Weinberger landvarnaráðherra og sam- starfsmenn hans í Pentagon virtust vel á veg komnir að setja geimvarnaáætlunina af því spori, sem vísindamenn trúaðir á fyrirtækið hefðu markað henni í upphafi. Krafa um skjótan árangur og uppsetningu frumstæðra geimvopnakerfa sem fyrst tekur fé og mann- afla frá hinu raunverulega stjörnustríðs- áformi um geislavopn og eindabyssur. Þar með blasir við að botninn dettur úr hug- mynd Reagans um geimskjöld, sem gert geti langdrægar kjarnorkuflaugar gagnslausar og úreltar. Máli sínu til stuðnings vitnar fréttamaðurinn William J. Broad í fyrrver- andi og núverandi rannsóknastjóra hjá rann- sóknastofum og yfirstjórn geimvarnaáætl- unarinnar. Þeirra á meðal eru George H. Miller, yfirmaður vopnaþróunar hjá Liver- more rannsóknastöðinni í Kaliforníu, Will- iam A. Barletta, eindavopnasérfræðingur á sama stað, og Gerold Yonas, áður vísinda- stjóri hjá umsjónarstofnun geimvarnaáætl- unarinnar í landvarnaráðuneytinu. í ritstjórnargrein átelur New York Times ringulreið og stefnuleysi í geimvarnaáætlun- inni. í stað þess að vinna markvisst að því að komast að raun um hvort hún sé framkvæm- anleg, og þá með viðráðanlegum kostnaði, sé hlaupið úr einu í annað til að geta auglýst skjótan árangur. Af því dregur blaðið þá ályktun, að markmiðið sé orðið pólitískt en Sam Nunn öldunga- deildarmaður lætur ekki hauksunga úr Pentagon villa um fyrir sér. Kúrekunum tókst líka að klúðra geimvarnaáætlun forseta síns ekki herfræðilegt, að koma framleiðslu á einföldu vopnakerfi í gang meðan Reagan- stjórnin situr, svo komnir séu til sögunnar kjördæmahagsmunir til að festa geimhernað í sessi til frambúðar í bandarískum vígbún- aði. Þetta skýrir sífelldar yfirlýsingar Wein- bergers landvarnaráðherra, um að geim- vopn geti orðið til taks strax á öndverðum næsta áratug, nái fram að ganga barátta hans fyrir að Bandaríkjastjórn brjótist undan hömlum á tilraunum sem stefna að geim- hernaði. Þær hömlur er að finna í samningn- um við Sovétríkin frá 1972 um takmarkanir á gagneldflaugakerfum, smíði og staðsetn- ingu eldflauga til að skjóta niður aðrar eld- flaugar. Landvarnaráðherrann og haukarnir í kringum hann hafa búið til nýja túlkun á samningnum, sem þeir halda fram að heimili ótakmarkaðar tilraunir með geimvopn, sé beitt tækni sem ekki var til að dreifa 1972. Árið 1985 féllst Reagan forseti á að þessi víða túlkun á rannsóknaheimild samnings- ins væri gild að lögum, en vegna þrýstings úr utanríkisráðuneytinu, af þingi og frá banda- mönnum Bandaríkjanna féllst hann þó á að farið skyldi eftir fyrri og þröngri túlkun uns hann ákvæði annað. í upphafi þessa árs fékk Weinberger því til leiðar komið, að forsetinn setti sig í stellingar til að láta víðu túlkunina taka gildi af Banda- ríkjanna hálfu. Var áður komin fram álits- gerð henni til stuðnings frá Abraham Sofaer, lögfræðingi utanríkisráðuneytisins. Paul Nitze, ráðunautur utanríkisráðherra um víg- búnaðartakmarkanir, og Richard Perle, að- stoðar landvarnaráðherra, voru sendir í hús- vitjunarferð milli höfuðborga ríkja Vestur- Evrópu, til að búa stjórnir þar undir að Bandaríkjaforseti hygðist virða að vettugi fyrri viðvaranir þeirra við að Bandaríkja- stjórn breytti einhliða út af samningi, sem er hornsteinn gagnkvæmra vígbúnaðartak- markana risaveldanna. Þá kom til skjalanna Sam Nunn, nýorðinn formaður hermálanefndar Öldungadeildar- innar, Suðurríkjamaður viðurkenndur fyrir yfirburðaþekkingu á öllu sem að hermálum lýtur og áhuga á að herkostnaður skili sér í raunverulegum herstyrk. Nunn lét forsetann vita, að hann skyldi gera sér ljóst, að breytti hann túlkun á samningnum við Sovétríkin frá 1972 án undangengins fulls samráðs við Öldungadeildina, sem fjallaði um og fullgilti plaggið á sínum tíma, væri skollinn á meiri- háttar stjórnlagaárekstur milli forseta og þings, Við þetta sljákkaði í haukunum í ríkis- stjórninni. Nú hefur Nunn bætt um betur. Á miðvikudag í síðustu viku birti hann Öld- ungadeildinni fyrri hluta úttektar á merkingu gagneldflaugasamningsins, byggða á gögn- unum sem fyrir liggja frá fullgildingu hans. Þar ber formaður landvarnanefndar ríkis- stjórninni á brýn vísvitandi tilraun til að rangtúlka bæði samningstextann og með- INNLEND YFIRSYN Það er kaldhæðnislegt en samtímis því að stjórnarflokkarnir hefja kosningabaráttuna — og Sjálfstæðisflokkur boðar að hann „ætli að halda áfram á sömu braut“ — birtast nú tölur um hækkun verðbólgu. í upphafi kosn- ingabaráttu mælist verðbólga hærri en hún hefur verið síðan ASÍ og VSÍ gengu frá umtöl- uðum kjarasamningum í Garðastræti fyrir rúmu ári. Sé miðað við hækkun framfærsluvísitölu á milli febrúar og mars er verðbólgan 19,3% miðað við heilt ár fram í tímann. Hefur fram- færsluvísitala hækkað um 5,4% sl. þrjá mán- uði. Framreiknað svarar þessi hækkun til 23,3% verðbólgu. Þriðjung hækkunar má rekja til verðhækkana á nauðsynjavöru, þriðjung til verðhækkana á vöru og þjónustu og þriðjung til verðhækkunar á fatnaði. Sé miðað við verðhækkun matvöru eingöngu er verðbólgan meiri en nefnd 23,3% — mat- vöruverðbólgan liggur á bilinu 30 til 40 pró- sent, að ekki sé talað um þá verðbólgu sem hlaupin er í fasteignir. Lætur nærri að verð- bólga í eldri íbúðum sé um 50%, m.v. síðustu átta mánuði. Menn kenna nýju húsnæðis- lánakerfi um. Þær verðbólgutölur sem nú hafa komið fram eru því langtum hærri en ríkisstjórn gerði ráð fyrir. Birgir Árnason, hagfræðingur hjá Þjóð- hagsstofnun, fylgist náið með megin straum- um í efnahagslífinu og hann var spurður um það, hver væri skýringin á því að verðbólga færi nú vaxandi. „Ein ástæða er sú, að hluta af verðbólgunni var frestað í fyrra. í kjölfar febrúarsamninganna var hún beinlínis nið- urgreidd af ríkisvaldinu um a.m.k. 4%. Með þessu voru tekjur ríkisins lækkaðar, sem þýðir aukinn halla á ríkissjóði. Og aukinn halli hefur í för með sér vaxandi þenslu —• aukna eftirspurn. Meiri verðbólgu. Áhrifin eru að koma fram nú.“ Ríkisstjórnin hefur bundið sig við að lækka skatta. Með því útilokar hún að beita ríkis- fjármálum til að kveða niður verðbólguna. Pólitískt treystir ríkisstjórnin sér ekki til að takmarka kaupgetuna, sem í heild hefur vax- Lokasprettur ríkis- stjórnar í efnahags- málum slappur. Verð- bólga á uppleið. Halli á ríkisfjármálum aldrei meiri. Þensla að aukast og ekki ráðið við peningamagn í umferð. Verðbólgan vex ferð málsins á Bandaríkjaþingi. Nunn sýnir fram á, að stjórn Nixons forseta lagði samn- inginn fyrir með þröngri túlkun á hinu um- deilda ákvæði um tilraunir með geimvopna- búnað, og Öldungadeildin staðfesti samning- inn með sama skilningi. Sérstaklega veitist Nunn að Sofaer lög- fræðiráðunauti, kveður hann hafa látið frá sér fara „fullkomna og algera rangfærslu" á ýmsum þáttum þess sem gerðist við staðfest- ingu samningsins. Þetta varð til að Joseph Biden, formaður annarrar öldungadeildar- nefndar, stefndi lögfræðingnum fyrir sig. Biden stjórnar dómsmálanefnd Öldunga- deildarinnar, og sama dag og Nunn birti skýrslu sína lagði hann fram frumvarp um lögfestingu þröngrar túlkunar á gagneld- flaugasamningnum. Þar er því slegið föstu, að í engu megi hverfa frá fyrri túlkun samn- ingsákvæða, nema að veittu samþykki Öld- ungadeildarinnar. Fyrstur þingmanna demókrata til að ná tangarhaldi á Abraham Sofaer varð þó Carl Levin frá Michigan. Hann skýrði svo frá á föstudag, að lögfræðingurinn hefði komið í skrifstofu sína daginn áður, og ekki verið hátt á honum risið: „Sofaer dómari afneitaði í dag í skrifstofu minni afdráttarlaust og ítrekað," sagði Levin, „yfirlitinu frá því í október 1985 um fullgild- ingarferil gagneldflaugasamningsins." Kvað hann yfirlitið vera „ófullnægjandi yfirlit um fullgildingarferilinn og verk reynslulítilla lögfræðinga úr starfsliði sínu. Tók hann fram, að hann vildi í engu standa við yfirlit þetta, né Jþá hluta vitnisburðar síns fyrir nefndum Öldungadeildar og Fulltrúadeildar þingsins, sem á því eru byggðir." Eftir þetta er málflutningur Weinbergers, Perle og þeirra nóta, sem Reagan forseti var búinn að lýsa yfir að ætti fullan rétt á sér að lögum, gersamlega í rúst. Þeir virðast hafa orðið ofaná í þingflokki demókrata í Öld- ungadeildinni, sem halda vilja á málinu af fuliri hörku, standa fast á stjórnskipulegum rétti deildarinnar til að hafa jafn mikið um ut- anríkismál að segja og forsetinn, þegar um er að ræða framkvæmd fullgiltra samninga. Tilraunir stjórnarliða til að draga Albert Gore, öldungadeildarmann frá Tennessee, inn í óskuldbindandi málamiðlun til tak- markaðs tíma um skilning á gagneldflauga- samningnum á sér vart viðreisnar von. eftir Helga Má Arthúrsson ið meira en þjóðartekjur, enda þótt margir hópar búi enn við skerta kaupgetu frá því sem var fyrir nokkrum árum. Góðærinu er m.ö.o. misskipt. Með því að minnka tekjur ríkissjóðs með þessum hætti verður halli á ríkisfjármálum sem leiðir til meiri eftirspurn- ar og vaxandi verðbólgu. Stefnir halli í rúm- ar 3000 milljónir á þessu ári. „Rökrétt væri að ríkisstjórnin reyndi að takmarka kaupgetuna í heild með skatta- hækkun, en sú pólitíska ákvörðun hefur ver- ið tekin að lækka skatta. Þetta þýðir að ríkis- stjórnin getur ekki nýtt sér skatta sem hag- stjórnartæki," segir Birgir Árnason hag- fræðingur, „sem hún gæti, en kýs að gera ekki.“ Skattastefnan ýtir undir þenslu og verð- bólgu og það gerir gengisstefna ríkisstjórnar- innar líka. Mikið misgengi hefur undanfarið verið á milli þróunar bandaríkjadals og evr- ópskra gjaldmiðla. Hefur bandaríkjadalur fallið gagnvart nokkrum helstu evrópugjald- miðlum um 35% frá því 1985. Og hefur fasta- gengisstefna ríkisstjórnarinnar gagnvart dalnum leitt til verðhækkunar á innfluttri vöru sem að stórum hluta kemur frá Evrópu. Hefur þetta leitt til vaxandi verðbólgu. En það er ekki aðeins að gengi íslensku krónunnar sé bundið dalnum. Ríkisstjórnin breytti gengisviðmiðun íslensku krónunnar ekki alls fyrir löngu. Sú breyting jók verð- bólgu. „Með breyttri gengisviðmiðun jókst vægi dalsins í viðmiðunarvoginni með þeim af- leiðingum, að áframhaldandi gengisfall dals- ins jók verðhækkanir á Islandi," segir Birgir Árnason hagfræðingur. Miklar fjárfestingar fyrirtækja auka þenslu í efnahagslífinu, en þau virðast fjárfesta grimmt nú, og bjartsýni mikil meðal for- svarsmanna íslenskra fyrirtækja. „Fyrirtæk- in virðast hafa greiðari aðgang að fé nú en þau hafa áður haft. Kannski greiðari aðgang en menn reiknuðu með. Þau geta tekið fé að láni erlendis með samþykki banka og í gegn- um fjárleigufyrirtæki, sem enginn hefur skoðað af neinni alvöru. Þetta er þróun sem er meira og minna stjórnlaus," segir Birgir Árnason. Ríkisstjórnum hefur yfirleitt gengið illa að stjórna peningamagni í umferð. Sérstök langlánanefnd ríkisstjórnar er til og er henni ætlað að vera einhvers konar hemill á inn- streymi erlends fjár til landsins. Heimildir HP í fjármálaheiminum fuilyrða að nefndin gegni ekki því hlutverki heldur sé hún af- greiðslustofnun. Fyrirstaða sé þar lítil. Vaxandi viðskipti fyrirtækja og fjárleigu- stofnana hafa tvenns konar áhrif í peninga- heimi að sögn heimildarmanna HP. Í fyrsta lagi meira peningamagn í umferð en menn gera sér grein fyrir og í öðru lagi eru vaxta- kjör á alþjóðlegum peningamarkaði farin að hafa hér veruleg áhrif. Þetta telja menn að auki enn á þenslu í efnahagslífinu og ýti und- ir verðbólgu. Fyrir svo utan það, að ríkisvald- ið á erfitt með að takmarka peningamagn í umferð. Áreiðanlegar heimildir HP í ríkisstjórnar- flokkum fullyrða, að ríkisstjórnin muni ekki grípa til efnahagsaðgerða fyrir kosningar. Verðbólga haldi áfram að aukast, en líklegt þykir að sú ríkisstjórn sem við tekur grípi til harkalegra efnahagsaðgerða til að keyra verðbólguna niður á nýjan leik. Lokasprettur ríkisstjórnarinnar í efnahags- málum er því slappur. Verðbólga er á upp- leið, halli á fjármálum ríkisins hefur sjaldan verið meiri, þensla að aukast og ekki virðist ráðið við peningamagn í umferð. Yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum var að koma verðbólgu á sama stig og í nágrannalöndum íslands á kjörtíma- bilinu. Það hefur því miður ekki tekist. Og ekki verður séð að ríkisstjórnin hafi fram- kvæmt grundvallarbreytingar í efnahags- málum — aðra en að gefa vexti frjálsa — en til að það skili jákvæðum árangri verður að uppræta fjárlagahalla. Hann hefur aldrei verið meiri. HELGARPÓSTURINN 35

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.