Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 37
J 4BFón Helgason dómsmálaráð- herra hefur verið duglegur að koma flokksmönnum sínum að í dóms- kerfinu, eins og fyrirrennarar hans í Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkn- um. Það verður einmitt eitt af hans síðustu verkum að skipa í tvær feit- ar stöður sem nú eru að losna. 1. júní láta formlega af störfum Björn Ingvarsson, yfirborgardómari, og Einar Ingimundarson, bæjarfóg- eti í Hafnarfirði, og sýslumaður um leið. Umsóknarfrestur umsækjenda er til 10. apríl og má vænta að Jón flýti sér að skipa í embættin strax á eftir eða sem fyrst fyrir kosningar. Að líkindum kannar hann flokks- skírteini umsækjenda. Björn er tal- inn af dyggu framsóknarkyni og ólíklegt að stóláklæðið skipti um lit. Einar er hins vegar af sjálfstæðis- kyni og hefur setið í sínu embætti frá 1966, þegar hann tók við af Birni Sveinbjörnssyni af fram- sóknarkyni og vill Jón sjálfsagt að embættið komist í réttar hendur á ný- ■ ■_______________________ lELtir því er tekið hvað verðlaun á briddsmótum hérlendis eru farin að vera vegleg. Nú þykir til dæmis lítt varið í mót ef verðlaunin nema undir hálfri milljón ellegar bifreið eins og raunin mun reyndar verða á páskamótinu í tvímenning sem fram fer á Hótel Loftleiðum að til- hlutan Blöndals-bræðranna Val- geirs og Kristjáns í Suðurlands- vídeói á Selfossi. Athafnamenn eru reyndar í æ ríkari mæli farnir að hlutast til um mótshald í bridds- inu á íslandi og getum við bætt við hér í því sambandi að Guðmundur Sveinsson, sonur Sveins í Völundi, hefur nú á teikniborðinu hjá sér tíu móta briddskeppni í líkingu við helgarskákmót Jóhanns Þóris sem hafa slegið í gegn í skákheimin- um á síðustu misserum. . . u ■ W Hikið hefur verið rætt og ritað um vanda bænda og land- búnaðarins almennt. Því er ekki úr vegi að flytja hér þau gleðitíðindi, að á meðan rauntekjur allra stétta lækkuðu frá 1981 til 1985 að meðal- tali um rúmlega 10% þá hækkuðu rauntekjur í landbúnaði um 7,3%. Landbúnaðurinn var eina atvinnu- greinin sem skartaði þannig hækk- uðum rauntekjum samkvæmt töl- um Byggðastofnunar, fyrir utan að rauntekjur í menningarstarfsemi hækkuðu einnig lítillega. Arsverk- um í landbúnaði fækkaði hins vegar verulega á þessu tímabili eða úr 9.580 í 8.556. Það er af einstökum atvinnugreinum nánar að segja að á þessu tímabili lækkuðu rauntekjur mest í ,,götu- og sorphreinsun" eða um nær 24% og í byggingar- starfsemi lækkuðu rauntekjurnar um 16,5%. Á þessu tímabili fækkaði ársverkum talsvert í frumatvinnu- greinunum svokölluðu, en helsti vaxtarbroddurinn var hins vegar í peningastofnunum og veitinga- og hótelrekstri... D WBsW únaðarþingi lauk fyrir skemmstu. A þinginu var kosið í stjórn Búnaðarfélags íslands til fjögurra ára. Aðeins einn listi var í kjöri og var hann sjálfkjörinn. Þetta er orðið að hefð hjá Búnaðarfélag- inu og virðist því sem allt sé þar slétt og fellt, en nú heyrir HP að undir niðri hafi kraumað á þinginu og hafi nýir fulltrúar ekki verið ásáttir við lista þennan, né heldur að um hann skuli ekki vera kosið. Telja þeir að rétt sé að greidd séu atkvæði um listann svo sjá megi hver raunveru- legur stuðningur við hann er. Tölu- verðrar óánægju gætti meðal þing- fulltrúa með þetta og voru þreifing- ar í gangi um að bjóða fram lista á móti þeim sem fyrir var. Ekki náðist þó samstaða um nýjan lista, einkum vegna þess að erfitt var að finna rétta mynstrið, en það hefur lengi verið hefð að Framsóknarflokk- urinn eigi tvo fulltrúa í stjórninni og Sjálfstæðisflokkurinn einn. Yngri mennirnir og nokkrir eldri reyndar líka voru sérstaklega óánægðir með kjör þeirra Hjartar E. Þórarins- sonar, bónda á Tjörn í Svarfaðardal og stjórnarformanns KEA og Steinþórs Gestssonar á Hæli, fyrrum alþingismanns Sjálf- stæðisflokksins. Hinsvegar mun þriðji maðurinn í stjórn, Magnús Sigurðsson frá Gilsbakka vera óumdeildur og vildi hræringahóp- urinn gjarna fá hann í stjórn með sínum fulltrúum, en þar voru helst nefndir til þeir Jón Hólm Stefáns- son bóndi í Ölfusi, og Egill Bjarna- son, ráðunautur á Sauðárkróki. Það sem einkum er að velkjast fyrir yngri mönnum innan bænda- hreyfingarinnar og mörgum starfs- mönnum í stofnunum landbúnaðar- ins er markaðsstaða landbúnaðar- afurða, nýsköpun innan stéttarinnar og staða leiðbeiningarþjónust- unnar sem er lykilatriði í framþróun innan landbúnaðarins. Telja þeir sem vilja breytingar, að það kunni ekki góðri lukku að stýra að gamlir menn og snerpulitlir séu í forsvari fyrir Búnaðarféiagið á viðsjárverð- um tímum sem þessum. I framhaldi af þessu má búast við átökum, þeg- ar kosinn verður nýr formaður Stétt- arsambands bænda og vilja þeir sem óánægðir eru með núverandi stöðu mála gjarna koma að ungum og ferskum mönnum. Þeir sem helst hafa verið nefndir til eru þeir Hauk- ur Halldórsson í Sveinbjarnar- gerði við Eyjafjörð og Þórólfur Sveinsson úr Borgarfirði. . . BILEIGENDUR BODDÍHLUTIR! ÓDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. A FLEST- AR GERÐIR BÍLA, ASETNING FÆST A STAÐNUM. BILPLAST Mgnhöföa 19, timi 6M233. Póstsendum. Ödýrtr sturtubotnar. Tökum aö okkur trefjaplastvinnu. Veljiö islenskt. Árósar er stærsta gámahöfn Danmerkur og er nálægt helstu iðnaðarsvæöum Jótlands. Frá Árósum liggur einnig greið leið til allra staða innan Danmerkur, norður Þýskalands og annarra hafna í Evrópu. Fyrir fimm árum hóf Skipadeild Sambandsins áætlunarsiglingar til Árósa og hafa þær siglingar gefið góða raun. Hafið samband. Árósar ALLFREIGHT l/S PIER2 . P.O.BOX 73 DK-8100 AARHUSC SÍMI: 06 128188 TELEX: 64375 ALBSC DK TELEFAX: 06 128793 f Kaupmannahöfn Svendborq ALLFREIGHT l/S AMALIEGADE 35 DK-1256 KÖBENHAVN K SÍMI: 01 111214 TELEX: 19901 ALCKH DK TELEFAX: 01 115871 BJERRUM & JENSEN APS JESSENS MOLE 9a P.O.BOX 190 DK-5700 SVENDBORG SÍMI: 09 212600 TELEX: 58122 BROKA DK TELEFAX: 09 212600 SKIPADE/LD SAMBANDS/NS LINDARGÖTU 9A • PÓSTHÓLF 1480 • 121 REYKJAVÍK SÍMI 28200 • TELEX 2101 TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA HELGARPÖSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.