Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 21
Sverri Hermannsson í farar-
broddi, hafa mótmælt afnámi
prestskosninga með því að leggja
fram þá breytingartillögu að ef 10%
íbúa (í stað 25%) vilji kjósa þá sé
þeim það heimilt. I sjónvarpinu sló
Sverrir á lýðræðisstrengi og vitnaði
til reynslunnar í Danmörku og sagði
að þar hefðu engir fengið hempu
nema þeir væru sósíaldemókratar.
Þó Sverrir skjóti þannig fast að
dönskum krötum þá geigar skotið í
raun og hittir hans eigin flokks-
menn og framsóknarmenn. Þessi öfl
hafa nefnilega stýrt dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu áratug-
um saman, með þeim afleiðingum
að allt dómskerfið er „blá- og græn-
köflótt". Kannski ætlar Sverrir að
leggja til sýslumanna- og bæjar-
fógetakosningar.. .
■ yrirhugað er að opna nýjan
djassklúbb á sunnudagskvöldið í
Reykjavík. Klúbburinn verður til
húsa í Duus-húsi við Fischer-
sund. Við opnunina koma fram
hljómsveitin Skátarnir og Hljóm-
sveit Friðriks Theódórssonar og
tríó Eyþórs Gunnarssonar. Ætl-
komur verða af og til á virkum dög-
um. Fyrsta óvænta uppákoman af
því tagi verður mánudaginn 30.
mars þegar danski trompetleikar-
inn Jens Winter þenur lúðurinn
ásamt þeim Eyþóri Gunnarssyni,
Tómasi R. Einarssyni og Gunn-
laugi Briem. Jens er annars hingað
kominn til að spila með tríóinu inn
á djassplötu. . .
D
agblöðin taka hamskiptum
þegar kosningar eru í nánd, öll
nema DV. Þetta verður æ greini-
legra. Þjóðviljinn birtir sífellt fleiri
fréttir með risafyrirsögnum og
Morgunblaðið er hætt að fjalla um
ákveðna málaflokka. Athyglisverð-
ast við Moggann þessa dagana er að
hann hefur leitt hjá sér umræður
um húsnæðismál. Skýringin er vafa-
laust sú, að fyrir síðustu kosningar
lagði Sjálfstæðisflokkurinn höfuð-
áherslu á „varanlegar umbætur í
húsnæðismálum", eins og það var
kallað. Var mönnum heitið lánum
sem áttu að standa undir um 80% af
verði íbúðar. Nýja húsnæðislána-
kerfið hefur hins vegar haft í för
með sér 50% verðhækkun á eldri
íbúðum og telja menn að lánshlut-
fall nú sé svipað og fyrir breyting-
una. Engin furða að Morgunblaðið
skuli leiða þennan stóra málaflokk
hjá sér. . .
^^/^Lklu fé hefur undanfarið
verið varið til svonefndra Ó-vega. Á
þessu ári er gert ráð fyrir umtals-
verðu fé til framkvæmda á vegum
þessum. Einn hættulegu vegarspott-
anna er Óshlíðarvegur á milli Bol-
ungarvíkur og Hnífsdals. Þar hefur
vegur verið breikkaður mjög mikið,
byggt bílskýli á mesta hættusvæð-
inu o.fl. Það hefur vakið eftirtekt
vegfarenda á þessum vegi, að mikið
af því efni sem notað hefur verið til
að breikka vegarspottann er jafn-
harðan hrifið burt af miklu brimi
sem þarna myndast. Þykir mönnum
í Bolungarvík aðfarirnar skringi-
legar. . .
Umboðið Skeifunni 8 s. 91-68 88 50
m
\/
SKIPTIKJOR
Dæmi:
Peningar kr. 70.000.-
Lán til 6 mán. kr. 63.000.-
Eldri bifreið kr. 150.000.-
Nýr FIAT UNO kr. 283.000,-
Sýningarsalurinn
er opinn virka daga frá kl. 09:00-18:00
og laugardaga frá kl. 13:00-18:00.
FIAT UNO
VERDFRÁ 283
ÞUS.KR.
Mildur hárlifur
Opnun sérstaklega fyrir
leikhúsgesti kl. 18.00.
Boröpantanir I síma 11340.
tolvur
meögráðslukjörum
~ tiil2 mánaÖa—
ÆuQnzíjnd
SKÚLAGATA 51
105 REYKJAVÍK - SÍMI 621163
HEUGARPÓSTURINN 21