Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 8
eftir Halldór Halldórsson mynd Jim Smart
ALBERT GUÐMUNDSSON UPPVÍS AÐ SKATTSVIKUM
ÞINGFLOKKUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS HÉLT „KRISU-
FUND7/ Á FÖSTUDAG BÚIST VIÐ ÁKÆRU í HAFSKIPSMÁLINU
UM MÁNAÐAMÓTIN VERÐUR ALBERT EKKI Á FRAMBOÐS-
LISTA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS BÚIZT VIÐ AÐ DRAGI TIL TÍÐ-
INDA STRAX í NÆSTU VIKU
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, kallaði Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
fyrir nokkru á sinn fund og fór þess á leit við
Aibert, að hann segði bæði af sér ráðherradómi,
hyrfi af framboðslista Sjálfstæðisflokksins og hætti
jafnvel þingmennsku.
I kjölfar þessarar kröfu formanns Sjálfstæðis-
flokksins voru mál Alberts Guðmundssonar tekin
upp á dagskrá þingflokksfundar sjálfstæðismanna
sl. föstudag, skýrt frá kröfu Þorsteins Pálssonar á
hendur Albert og óskað svara hjá Albert við ýms-
um áleitnum spurningum.
Ástæðan fyrir því, að Þorsteinn
lét til skarar skríða nú er sú, að fyrir
u.þ.b. einum mánuði lauk rannsókn
skattrannsóknarstjóra á skattamál-
um iðnaðarráðherra.
Niðurstaðan er sú, að Aibert Guð-
mundsson hafi vantalið tekjur sínar
vegna álagningar fyrir 3 ár. Hér er
um að ræða vantaldar tekjur, sem
hann hafði á árunum 1983, 1984 og
1985 og komu til álagningar 1984,
1985 og 1986.
Við rannsókn Hafskipsmálsins
var gerð sérstök athugun á málum
Alberts Guðmundssonar og niður-
stöðurnar sendar embætti ríkissak-
sóknara. Allar meintar ávirðingar
ráðherrans voru taidar snúast um
skattamál og því var Albert settur í
ítarlega skattrannsókn.
Helgarpósturinn greindi frá því í
smáatriðum í nóvember á sl. ári í
hverju meint skattsvik ráðherrans
væru fólgin. Fram til þessa hafa
menn ætlað að skattar Alberts fyrir
árin 1984 og 1985 yrðu endurskoð-
aðir, en við rannsóknina kom í ljós,
að álagðir skattar árið 1986 reynd-
ust of lágir.
í hugum ráðandi manna í Sjálf-
gtæðisflokknum er allt málið íitið
mjög alvarlegum augum, en þegar
niðurstaða rannsóknar skattrann-
sóknarstjóra lá fyrir kom í ljós, að
um var að ræða skattaundandrátt í
eitt ár til viðbótar þeim tveimur,
sem fjallað hefur verið um í blöðum
og ráðherrann viðurkennt. Hann
leyndi forystu flokksins með öðrum
orðum þeirri staðreynd, að hann
hefði ekki talið fram þetta þriðja ár
þrátt fyrir að hafa verið ítrekað
spurður um það.
Vert er að vekja athygli á því, að á
þessum tveimur árum er Albert
Guðmundsson í embœtti fjármála-
ráðherra og því yfirmaður skatta-
mála á íslandi.
Þegar Þorsteinn Pálsson ræddi
þessi mál við Albert og gerði hon-
um grein fyrir því, að eins og málum
væri komið, væri ekki um annað að
ræða fyrir ráðherrann en að segja af
sér bæði þingmennsku og ráðherra-
dómi, mun Albert hafa þvertekið
fyrir það.
Á „krisufundi" þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins á föstudaginn voru
sömu sjónarmið formannsins
kynnt. Á fundinum tók a.m.k. einn
þingmaður úr forystusveit eldri
kynslóðarinnar í þingflokknum
undir eindregna kröfu um afsögn
Alberts Guðmundssonar og mun.
það hafa komið sumum þingmönn-
um nokkuð á óvart.
Á fundinum var lögð gífurleg
áherzla á það, að ekkert ætti að
fréttast út af fundinum og alis ekki
mætti minnast á, að Albertsmálið
hefði verið til umfjöllunar.
Alllangur tími er liðinn frá því
Hafskipshneykslið og tengsl iðnað-
arráðherra við það hafa verið tekin
upp á þingflokksfundi hjá sjálfstæð-
ismönnum. Það var gert nokkrum
sinnum á siðasta ári og sérstaklega
eftir að Helgarpósturinn hafði birt
meint sakarefni Alberts Guðmunds-
sonar í smáatriðum þ. 20. nóvember
í fyrra. Hins vegar hafa helztu for-
ystumenn flokksins oft rætt „vanda-
málið“ Albert í sínum hópi með
hliðsjón af orðstír Sjálfstæðisflokks-
ins og komandi kosningum.
Þegar gengið var á Albert á
nefndum þingflokksfundi hélt hann
uppi vörnum, sem svipar mjög til
þeirrar varnar, sem hann hefur
haldið uppi áður. Kjarninn í henni er
sá, að aliar ásakanir á hendur sér
Við rannsókn Hafskipsmálsins
var Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra kallaður fyrir hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og hafði
réttarstöðu grunaðs manns. Þar var
hann spurður út í nokkrar greiðslur
frá Hafskipi til hans sjálfs. Vegna
flestra spurninganna bar Albert við
minnisleysi, að því er heimildir
Helgarpóstsins herma.
Varðandi greiðslur frá Hafskipi
kvað Albert Guðmundsson þær
vera til komnar vegna viðskipta fyr-
irtækis síns og skipafélagsins. Hins
vegar væri honum ekki kunnugt um
greiðslurnar, þar sem sonur hans
hefði yfirtekið rekstur heildverzlun-
ar Alberts Guðmundssonar.
Þetta kom mönnum nokkuð
spánskt fyrir sjónir, því í rannsókn-
argögnum var að finna ávísanir,
sem ráðherrann hafði framselt og
lagt inn á eigin bankareikning. Þeg-
ar nánar var gengið eftir svörum
kom sú skýring, að hann hefði fram-
selt ávísunina, þar sem sonur hans
hefði verið erlendis. Sjálfur hefði
séu einungis persónulegar ofsóknir,
greiðslurnar frá Hafskipi kæmu sér-
ekki persónulega við, heldur hafi
allt slíkt verið í höndum sonar hans,
sem rekur fyrirtækið Albert Guð-
mundsson, heildverzlun, auk þess
sem hann bætti því við, að hann ætti
sér öfundarmenn vegna velgengni
sinnar í knattspyrnu á erlendum
vettvangi og síðar í opinberu lífi á
íslandi.
Að sögn heimildarmanna Helgar-
póstsins í Sjálfstæðisflokknum eru
menn víst orðnir harla þreyttir á sí-
endurtekinni sögu ráðherrans um
„gulldrenginn" í knattspyrnunni
forðum tíð.
Á þingflokksfundinum á föstudag
fengust engin ákveðin úrslit um af-
sögn Alberts Guðmundssonar iðn-
aðarráðherra. Hins vegar fór hann
hann ekkert vitað hvaða peninga
hefði verið um að ræða! Þetta þótti
ótrúverðugt.
Fram kom við rannsóknina, að
iðnaðarráðherra hefði framselt
fleiri en eina ávísun og andvirðið
hafnað á einkareikningi hans.
Sumar greiðslurnar komu af hin-
um svokölluðu „leynireikningum",
en aðrir af reglulegum Hafskips-
reikningum. Greiðslunum má skipta
í tvennt: 1. Afsláttargreiðslur og 2.
Ferðakostnaður.
Greiðsla Núvirði
1983 123 þús. 308 þús.
1983 52 þús. 154 þús.
1984 18 þús.+')
1984 99 þús. )117ÞUS- 209 þus.
1984 52 þús. 93 þús.
Að auki komu til athugunar
greiðslur vegna ferðakostnaðar frá
1981 og 1985 fyrir utan hugsanlegar
tvíborganir vegna ferða Alberts í
opinberum erindagjörðum, sem
Hafskip tók jafnframt þátt í.
-HH.
ALBERT GUÐMUNDSSON - SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI
ÞETTA VAR
RANNSAKAÐ
8 HELGARPÓSTURINN