Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 42
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 20. mars
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
18.25 Stundin okkar — Endursýning.
19.10 Þingsjá.
19.30 Poppkorn.
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Rokkarnir geta ekki þagnað.
21.10 Mike Hammer.
22.00 Kastljós.
22.40 Óðafár (Frenzy). ★★★ Bresk bíó-
mynd frá árinu 1972. Leikstjóri Alfred
Hitchcock. Aðalhlutverk Jon Finch,
Alec McCowen og Barry Foster. Geð-
veill kvennamorðingi leikur lausum
hala í Lundúnaborg. Böndin berast að
fyrrum eiginmanni síðasta fórnar-
lambs hans en ekki eru þó öll kurl
komin til grafar. Atriði í myndinni eru
ekki við hæfi barna.
00.40 Dagskrárlok.
Laugardagur 21. mars
14.00 fþróttir. íslandsmótið í hand-
knattleik — fslandsmótið í blaki.
18.00 Spænskukennsla.
18.25 Litli græni karlinn.
18.35 Þytur í laufi.
18.55 Háskaslóðir (Danger Bay).
19.30 Smellir: U-2 — Seinni hluti.
20.00 Fréttir.
20.30 Lottó.
20.35 Fyrirmyndarfaöir (The Cosby
Show).
21.05 Gettur betur — Spurningakeppni
framhaldsskóla.
21.45 Harvey s/h. ★★★★ Bandarísk gam-
anmynd frá 1950 gerð eftir sam-
nefndu leikriti eftir Mary Chase. Leik-
stjóri Henry Kostner. Aðalhlutverk:
James Stewart, Josephine Hull og
Victoria Horne. í bæ einum býr ekkja
ásamt dóttur sinni, Elwood bróður
sínum og boöflennu sem enginn sér \
nema Elwood. Þetta er mannhæðar-
há kanína sem hann kallar Harvey. Of-
sjónir Elwoods verða svo þrálátar að
systir hans gerir ráöstafanir til þess að
senda hann á geöveikrahæli.
23.25 Dire Straits á Wembley.
00.35 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 19. mars
§ 17.00 Myndrokk.
§ 18.00 Knattspyrna. Umsjónarmaður er
Heimir Karlsson.
19.00 Hardy gengiö. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína.
20.20 Ljósbrot.
20.45 Morðgáta (Murder She Wrote).
§ 21.35 Barist um börnin (Not in Front of
The Children). Nýleg sjónvarps-
mynd með Lindu Gray (Sue Ellen),
John Getz og John Lithgow í aðal-
hlutverkum. Linda Gray leikur frá-
skilda konu sem sér ein um uppeldi
tveggja dætra sinna. Þegar hún fer
í sambúð aftur, kemur fyrrverandi
eiginmaðurinn fram á sjónarsviðið
og krefst forræðis yfir börnunum.
§ 23.00 Af bæ f borg. (Ferfect Strangers)
§ 23.35 Alcatraz: Fyrri hluti sjónvarps-
myndar um flótta úr einu ramm-
gerðasta fangelsi í Bandaríkjunum á
eyjunni Alcatraz. Fylgst er með
tveimur frægustu flóttatilraunum úr
fangelsinu, en einn maður kom við
sögu í þeim báðum og er myndin
byggð á framburöi hans. Aðalhlut-
verk: Telly Savalas, Michael Beck,
Art Carney og James Macarthur.
Seinni hluti er á dagskránni föstu-
dag 20. mars.
§ 00.55 Dagskrárlok.
Föstudagur 20. mars
§ 17.00 Ástarævintýri. (Falling in Love)
★★★ Bandarísk kvikmynd með
Robert De Niro og Meryí Streep í
aðalhlutverkum. Molly og Frank
rekast hvort á annað í jólaösinni á
Manhattan. Flissandi fara þau hvort
í sína áttina. Um vorið hittast þau
aftur af tilviljun og þá byrjar ævintýr-
ið.
§ 18.40 Myndrokk.
19.00 Viðkvæma vofan. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína.
20.20 Klassapfur. (Golden Girls)
§ 20.45 Geimálfurinn.
§ 21.05 Elska skaltu nágranna þinn.
(Love Thy Neighbor) Tvenn hjón
hafa veriö nágrannar um árabil og
börn þeirra leikfélagar. Málin flækj-
ast verulega þegar eiginmaðurinn
og eiginkonan, sem ekki eru gift
hvort ööru stinga af saman.
§ 22.35 Hættustörf í lögreglunni.
(Muggable Mary) ★★ Bandarísk
sjónvarpsmynd með Karen Valen-
tine, John Getz og Anne DeSalvo.
Einstæð móöir fær starf í sérsveitum
lögreglunnar, til að sjá sér og sínum
farboröa. Henni reynist erfitt að
samræma spennandi starf og upp-
eldi sonar síns.
§ 00.10 Alcatraz. Seinni hluti bandarískrar
sjónvarpsmyndar um flótta úr einu
rammgerðasta fangelsi í Bandarfkj-
unum á eyjunni Alcatraz. Aðalhlut-
verk: Telly Savalas, Michael Beck,
Art Carney og James Macarthur.
§ 01.40 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 21. mars
§ 09.00 Lukkukrúttin. Teiknimynd.
§ 09.20 Högni hrekkvfsi. Teiknimynd.
§ 09.40 Penelópa puntudrós. Teikni-
mynd.
§ 10.05 Herra T. Teiknimynd.
§ 10.30 Garparnir. Teiknimynd.
§ 11.00 Fréttahornið. Fréttatími barna og
unglinga.
§ 11.10 Stikilsberja-Finnur.
§ 12.00 Hlé.
§ 16.00 Ættarveldiö (Dynasty).
§ 16.45 Heimsmeistarinn að tafli.
§ 17.10 Koppafeiti II (Grease 2). ★ Banda-
rísk dans- og söngvamynd með
Michelle Pfeiffer og Maxwell Caul-
field í aðalhlutverkum.
§ 18.50 Myndrokk.
19.00 Spæjarinn. Teiknimynd.
19.30 Fróttir.
19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice).
§ 20.45 Kir Royale.
§ 21.45 Besta vörnin (Best Defence) 0
Bandarísk gamanmynd með Dud-
ley Moore og Eddie Murphy í aðal-
hlutverkum. Dudley Moore leikur
mann sem hannar nýtt stjórntæki í
skriödreka en Eddie Murphy leikur
hermann sem þarf að stýra skrið-
drekanum. Þessi samsetning er
dæmd til að mistakast.
§ 23.15 Aftaka Raymond Graham (Exe-
cution of Raymond Graham).
Bandarísk sjónvarpsmynd með
Jeffrey Fahey og Kate Reid í aðal-
hlutverkum. Myndin sýnir síðustu
stundir í lífi fanga, sem dæmdur hef-
ur verið til dauða. Hún er óhugnan-
lega raunsæ og snýst um réttmæti
eöa óréttmæti þess að beita dauða-'
refsingu.
§ 00.50 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur 19. mars
19.00 Fróttir.
19.30 Daglegt mál.
19.45 Aö utan.
20.00 íslendingur f Eystribyggð.
20.30 Frá tónleikum Sinfónfuhljóm-
sveitar (slands í Háskólabíói.
21.20 Leiklist í New York.
22.20 Lestur Passfusálma.
22.30 Tróhesturinn í Tróju.
23.10 Kvöldtónleikar.
MEÐMÆLI
Ríkissjónvarpið hefur vinn-
inginn í kvikmyndunum um
þessa helgi. A föstudags-
kvöldið er boðið upp á
Frenzy eftir Hitchcock og á
laugardagskvöldið er
svart/hvít mynd frá 1950,
Harvey, sem kvikmyndahand-
bókin gefur fjórar stjörnur
sem er næsta fátítt. Mest
spennandi í útvarpsmálum
hljóta að vera breytingarnar
á Rás 2.
Föstudagur 20. mars
7.03 Morgunvaktin.
9.05 Morgunstund barnanna.
9.45 Þingfréttir.
10.30 Sögusteinn.
11.05 Samhljómur.
14.00 Miðdegissagan.
14.30 Nýtt undir nálinni.
15.20 Landpósturinn.
16.05 Dagbók<in.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.05 Síðdegistónleikar.
17.40 Torgið.
19.00 Fréttir.
19.30 Daglegt mál.
19.40 Þingmál.
20.00 Suður-amerfsk tónlist.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Sfgild dægurlög.
22.20 Lestur Passfusálma.
22.30 Vfsnakvöld.
23.10 Andvaka.
00.10 Næturstund í dúr og moll.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 21. mars
7.03 ,,Góðan dag, góðir hlustendur".
9.30 f morgunmund.
10.25 Óskalög sjúklinga.
11.00 Vísindaþátturinn.
11.40 Næst á dagskrá.
12.00 Hór og nú.
14.00 Sinna.
15.00 Tónspegill.
16.20 Leikrit barna og unglinga.
17.00 Að hlusta á tónlist.
18.00 íslenskt mál.
19.00 Fréttir.
19.35 Á tvist og bast.
20.00 Harmonfkuþáttur.
20.30 Ókunn afrek.
21.00 íslensk einsöngslög.
21.20 Á róttri hillu.
22.20 Lestur Passfusálma.
22.30 Danslög.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrárlok.
áf?
Fimmtudagur 19. mars
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2.
20.30 I gestastofu.
22.05 Nótur aö norðan.
23.00 Við rúmstokkinn.
24.00 Fréttir.
00.10 Næturútvarp.
Föstudagur 20. mars
00.10 Næturútvarp.
06.00 I bítiö. Erla B. Skúladóttir.
09.00 Morgunþáttur. Kolbrún Halldórs-
dóttir og Kristján Sigurjónsson.
12.20 Hádegisfróttir.
12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson.
16.00 Hringiðan. Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Lög unga fólksins.
21.00 Tilraunir. Skúli Helgason.
22.05 Fjörkippir. Edda Arnardóttir.
23.00 Á hinni hliöinni. Edda Andrésdóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Næturútvarp.
Laugardagur 21. mars
01.00 Næturútvarp.
06.00 í bítið. Erla B. Skúladóttir.
09.00 Tfu dropar. Gestir Helga Más Barða-
sonar drekka morgunkaffið.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni Dagur Jóns-
son.
12.45 Listapopp.
14.00 Poppgátan.
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Gullöidin.
18.00 Savanna, Ríó og hin tríóin.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Ungæði. Hreinn Valdimarsson og
Sigurður Gröndal.
20.00 Rokkbomsan. Þorsteinn G. Gunn-
arsson.
21.00 Á mörkunum. Jóhann Ólafur Ingva-
son.
22.05 Snúningur. Vignir Sveinsson.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp.
Fimmtudagur 19. mars
19.00—20.00 Tónlist með léttum takti.
20.00—21.30 Jónfna Leósdóttir ó
fimmtudegi.
21.30— 23.00 Spurningaleikur Bylgjunn-
ar.
23.00-24.00 Vökulok.
24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunn-
ar.
Föstudagur 20. mars
07.00—09.00 Á fætur með Sigurði G.
Tómassyni.
09.00—12.00 Páll Þorsteinsson á lóttum
nótum.
12.00—14.00 Á hádegismarkaði með
Jóhönnu Harðardóttur.
14.00—16.00 Pótur Steinn á róttri bylgju-
lengd.
17.00—19.00 HallgrímurThorsteinsson í
Reykjavfk sfðdegis.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
22.00—03.00 Haraldur Gfslason.
03.00—08.00 Næturdagskró Bylgjunn-
ar.
Laugardagur 21. mars
08.00—12.00 Valdís Gunnarsdóttir.
12.00—12.301 fróttum var þetta ekki
helst.
12.30— 15.00 Ásgeir Tómasson á léttum
laugardegi.
15.00—17.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
17.00—19.00 Laugardagspopp ó Bylgj-
unni.
19.00—21.00 Rósa Guðbjartsdóttir.
21.00—23.00 Anna Þorláksdóttir í laug-
ardagsskapi.
23.00 — 04.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
04.00—08.00 Næturdagskró Bylgjunn-
ar.
ÚTVARP
eftir Reyni Antonsson
Svœðisútvarpid sem tókst
SJÓNVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Vandað dagskrárefni
Klukkan er sex ad kvöldi. Rödd Ernu
Indriðadóttur berst úr viðtækinu, og segir
okkur með sinni sérstöku hlýju og yndis-
þokka, að þetta sé Ríkisútvarpið á Akur-
eyri — svæðisútvarp, þátturinn Héðan og
þaðan, aðallega héðan að þessu sinni. Þá
hlýtur að vera miðvikudagur. Á miðviku-
dögum er svæðisútvarpið ávallt héðan og
þaðan.
Svæðisútvarpið á Akureyri fór á sínum
tíma af stað með miklum glæsibrag, í upp-
hafi verulega mótað af Ólafi H. Torfasyni,
sem er einn þeirra kraftaverkamanna sem
Ríkisútvarpið lumar enn á, og leitar gjarn-
an til þegar mikið liggur við. Síðan tók
verulega að halla undan fæti hjá svæðisút-
varpinu, eins og reyndar RÚVAK öllu, og á
tímabili leit svo út sem svæðisútvarpið
myndi hreinlega geispa golunni, og það
sem verra var, verða fáum harmdauði.
Eitt fyrsta verk Ernu Indriðadóttur eftir
að hún tók við stöðu yfirmanns RÚVAK,
var einmitt að hefja svæðisútvarpið til fyrri
vegs á ný, og er ekki annað hægt að segja
en að það hafi tekist, og það betur en nokk-
urn hefði getað órað fyrir sem eitthvað til
þekkti. Er nú svo komið, að líkast til hefur
svæðisútvarpið yfirburðastöðu miðað við
aðra miðla á hlustunarsvæðinu. Það talar
sínu máli, að meðan Ríkisútvarpið almennt
fer vægast sagt halloka á auglýsingamark-
aðinum, þá skuli allir auglýsingatímar
svæðisútvarpsins, einkum síðari hluta vik-
unnar og um helgar, vera yfirfullir, þannig
að menn standa frammi fyrir því að þurfa
annaðhvort að auka auglýsingamagnið
sem myndi þýða leiðinlegri dagskrá, eða
lengja útsendingartímann sem myndi auka
kostnaðinn.
Það eru vafalaust margar ástæður fyrir
þvi að svo vel hefur tekist með endurreisn
svæðisútvarpsins. Fyrir það fyrsta þá slys-
aðist útvarpsráð til þess, aldrei þessu vant,
að taka skynsamlega ákvörðun með því að
ráða Ernu til að veita stofnuninni forstöðu,
en Erna var einmitt manneskjan sem vant-
aði. Fyrir það fyrsta, þá er hún einhver
besti útvarpsmaður á landinu í dag, en þar
fyrir utan frábær stjórnandi, án þess þó að
vera haldin þeim smákóngahroka sem því
miður hefur allmjög einkennt ráðamenn
RÚV, og nýtur hún mikilla vinsælda og
álits, jafnt meðal undirmanna sinna sem og
almennings alls, enda hefur hún mjög lagt
sig í líma við að hafa sem best og opnust
samskipti við almenning á svæðinu. Síðast
en ekki síst hefur henni og samstarfsfólki
hennar tekist að skapa útvarp sem ekki á
sér hliðstæðu á landi hér. Útvarp sem sam-
einar vel gaman og alvöru, er alþýðlegt án
þess að vera þungt og þumbaralegt. Er það
ekki þetta sem vantar svo mjög í íslenska
fjölmiðlun?
Sjónvarpið sýndi frönsku sjónvarps-
myndina Augu fuglanna á mánudags-
kvöld, sem Gabriel Auel gerði árið 1984.
Hún fjallaði um hlutskipti Uruguaymanna
sem eru á öndverðum meiði við herfor-
ingjastjórn landsins og sitja fyrir þær sakir
einar í fangelsi þar sem þeir mega sæta
pyntingum, jafnvel lífláti, án dóms og laga.
Myndin, sem var leikin, spannst út frá
heimsókn þriggja manna sendinefndar frá
alþjóða Rauða krossinum sem fékk eftir
langa mæðu að vitja dýflissunnar þar sem
stjórnarandstæðingarnir eru geymdir.
Sá sem þetta skrifar, sat það sem kallað
er dolfallinn framan við Áugu fuglanna.
Þetta var einkar áhrifamikið sjónvarpsverk
sem veitti í senn innsýn í hræðileg örlög
manna sem hafa unnið sér það eitt til sakar
að hafa skoðun á þjóðmálum, aukinheldur
sem myndin leitaðist við að sýna þá tauga-
veikluðu og sáru Iund sem stjórnendur
fangelsisins hafa — og sjálfsagt þurfa að
hafa — til að gefa sig í limlestingar og við-
bjóðsleg hrottaverk á meðbræðrum sínum.
Þessi sjónvarpsmynd Auel vakti mig til
langrar umhugsunar um mannréttindamál
í heiminum og trúi ég að svo hafi verið um
viðbrögð fleiri sem sáu þessa merkilegu
mynd. Hún hreyfði við mér, vakti til vitund-
ar, spann fram af sér, eins og sagt er, það er:
Hún skildi eftir umhugsunarefni sem hvarf
ekki auðveldlega úr vitund manns. Þessi
mynd var semsé gott dæmi um dagskrár-
efni sem er fagmannlega sett fram. Það
velti upp dökkri hlið tilverunnar á mjög at-
hyglisverðan hátt; ekki þannig að áhorf-
andinn fylltist einasta svartsýni og féllust
hendur (eins og gjarnan að afloknum
vandamálaþáttum) heldur vakti það, trúi
ég, til svo djúprar umhugsunar að áhorf-
andinn fann sig knúinn til að rísa úr stofu-
sófanum og huga að endurbótum.
Uppbyggilegt og vekjandi sjónvarpsefni
af þessu tæi er heldur sjaldgæft. Sjónvarpið
hefur þó sýnt vilja sinn til að senda út þessa
tegund sjónvarpsefnis með nokkuð reglu-
bundnum hætti. Þar fer fræðsluefni næst-
um hæfilega í bland við skemmti-, lista- og
fréttaefni, þó mér hafi á stundum fundist
fræðsluefni fremur hafa verið valið af
handahófi (og þá gjarnan í kippum) en af
skipulegri yfirferð um mismunandi þætti
þessa efnisflokks. Þannig tröllriðu fuglalífs-
myndir Sjónvarpinu í eina tíð og slöngur,
eðlur og skorkvikindi í annan tíma á með-
an enga aðra fræðslu var að fá.
Stöð 2 er eftirbátur Sjónvarpsins í út-
sendingu á vönduðu fræðsluefni. Það er
hinsvegar í fyllsta máta ósanngjarnt að
segja þá stöðvarmenn áhugalausa um
þennan flokk dagskrárefnis, einfaldlega
vegna þess að þeir eru ennþá að móta dag-
skrá sína að því, sem þeir væntanlega
hugsa sér vera þarfir áhorfenda sinna. í
þeirri heiftarlegu samkeppni sem Stöðin
þreytir nú við Sjónvarpið um fastan áhorf-
endahóp, hlýtur það samt að vera ein-
kennilegt hvað forráðamenn hennar eru
einhæfir í vali á dagskrárefni. Lunginn úr
dagskránni er afþreyingarefni frá Banda-
ríkjunum, einkar keimlíkt hvert öðru,
þreytilega keimlíkt til lengdar. Þessi ofur-
áhersla á vesturheimskt léttmeti (sem síst
ber að vanþakka í hófi) kemur á sama tíma
og sýnt er að almenningur sækir í síaukn-
um mæli í vandaða menningu; inntaks-
miklar bókmenntir, leiklist og myndlist auk
þess sem ég heyri að sala á klassískum plöt-
um hafi tekið kipp á stökki fólks undan
flóði Iéttrar tónlistar.
42 HELGARPÓSTURINN