Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 11
að hefur verið mikið um að vera á Rás 2 að undanförnu, enda er nú að hefjast hörkubarátta við Bylgjuna um hlustendur á höfuð- borgarsvæðinu og í Eyjafirði. Starfs- menn íklæðast nú nýjum bolum með áletruninni „Rás 2 hittir beint í mark“ og verið er að fram- leiða ýmiss konar vörur með merki útvarpsstöðvarinnar. Starfsfólkið æfði sig m.a. á þann hátt að vera með sólarhringslanga útsendingu, sem fór þó ekki ,,í loftið" eins og það er kallað á slæmu máli. Varðandi tónlistina hefur sú breyting orðið á, að dagskrárgerðarmenn velja nú ekki lengur sjálfir hvaða lög þeir spila. Það gera starfsmenn tónlistar- deildar og gæta þess jafnframt, að sama lagið sé ekki leikið nema einu sinni ásólarhring. Þessi ráðstöfun er að vonum afar misjafnlega liðin af stjórnendum þáttanna. . . ^^^luverðar breytingar hafa orð- ið á starfsfólki Rásar 2 við breyting- arnar í vikunni. Nokkrir hafa hætt og aðrir komið í staðinn, eins og gengur. Ein þeirra sem ekki heldur áfram störfum eftir andlitslyftingu stöðvarinnar er Inger Anna Aik- man. Hún stjórnaði lengi vel þætti með ljúfri tónlist og uppbyggjandi tilvitnunum, sem hún hafði greini- lega samið af mikilli nákvæmni. Þátturinn fór auðvitað misvel í áheyrendur. Sumir kunnu því illa að fá spekina tilreidda á þennan hátt, en Inger átti hins vegar dyggan hóp aðdáenda á víð og dreif um landið. Kom það víst m.a. fyrir að hún fengi send blóm og annan þakklætisvott eftir útsendingar. .. lm-< I orsvarsmenn nýju utvarps- stöðvarinnar, Hljóðvarps, eru nú í óða önn að manna skipið og munu skiljanlega gjóa augunum til dag- skrárgerðar- og tæknifólks þeirra stöðva, sem þegar eru starfandi. T.d. er gengið með grasið í skónum eftir hinum vinsæla tæknimanni Georg Magnússyni, sem hélt Rás 2 ,,í loftinu" upp á eigin spýtur í verkfalli tæknimanna á síðasta ári. . . NORÐURLAND EYSTRA Svanfríður Talsmaður sjálfsstjórnar byggðanna, jafnréttis og lýðræðis Steingrímur Talsmaður róttækrar byggðastefnu og friðlýsingar Islands á Alþingi UNGT BARÁTTUFÓLK RÓTTÆK STEFNA RASAÐU EKKIUM RÁÐ FRAM IVÉLAKAUPUM Þaðerekki nógaðgeragóð kaupávélum. Margirsem hyggjast tölvuvæða reksturfyrirtækjafallafþágryfjuaðkaupa bara þær vélar sem ódýrastar eru á markaðnum hverju sinni. Sem vonlegt er þegar ótal tegundir tölva eru f boði á svipuðu verði. En hér er vert að staldra við. Þegar búið er að tölvuvæða reksturinn byggist allt á snurðulausum rekstri tækjanna. Og þaðerhérsem reynsla Örtölvutækni kemurtil sögunnar. Viðskiptamenn okkargetasagt þérfrátraustri og öruggri þjónustu sem þeirhafa notið hjáokkur. Og þarskiptirengu hvort viðseljum vélarfráheimsþekktum framleiðendum áborð við Hewlett Packard eðalBM eðatæki sem viðsmiðum og setjum saman sjálfir.Viðskiptavinurinn gleymist ekki þegar hann lokar á eftir sér. masmamsaaBSBak ORTOLVU *\rmúla 38 108 Reykj HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.