Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 43

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 43
FRÉTTAPÖSTUR Starfsmannafélag Kvk undirritar nýjan samning Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði aðfara- nótt sunnudagsins nýjan kjarasamning við Reykjavikur- borg. Samkvæmt samningnum eiga lágmarkslaun að hækka hlutfallslega mest eða um 25 % en önnur laun minna. Hæstu laun hækka um 2,29%. Nokkrir hópar fá tveggja launa- flokka hækkun, m.a. hluti fóstra, sjúkraliðar, gæslukonur á leikvöllum og strætisvagnastjórar. Stærsti hópur félags- manna sem eru konur fær að meðaltali 7,5% launahækkun Verkfallsréttur er tekinn af félaginu í tvö ár en samningur- inn gildir til 1. mars 1989. Félagar i Starfsmannafélagi Reykjavíkur eru um 2.500—2.600 talsins og greiða þeir at- kvæði um samningana i dag og á morgun. Töluverðrar óánægju hefur gætt með nýju samningana, m.a. hjá sjúkra- liðum. Andstaða á þingi vegna afnáms prestkosninga Frumvarp um afnám prestkosninga hlaut óvænta and- stöðu á Alþingi sem hindraði að það yrði samþykkt sem lög á mánudagskvöldið. Neðri deild Alþingis hafði samþykkt frumvarpið með 22 atkvæðum gegn 8 fyrr um daginn og hafði það áður hlotið samþykki efri deildar. Frumvarpið gerði ráð fyrir að sóknarnefnd kjósi prest í stað safnaðar. Svavar Gestsson Alþýðubandalagi og Pétur Sigurðsson Sjálfstæðisflokki fluttu breytingartillögu þess efnis að 10% sóknarbarna geti krafist prestkosninga. Þá flutti Karvel Pálmason tillögu um að prestkosningar verði ekki afnumdar nema fyrir liggi samþykki í þjóðaratkvæða- greiðslu. Afgreiðslu frumvarpsins var f restað að beiðni Sverris Her- mannssonar menntamálaráðherra sem óskaði eftir sólar- hringsfresti svo hann gæti undirbúið breytingartillögu þess efnis að auðvelda sóknarbörnum að hnekkja vali sóknar- nefnda á prestum. Allar fyrrgreindar breytingartillögur voru felldar og lög voru samþykkt í fyrrakvöld um afnám prestkosninga. Framhaldsskólahald I lamasessi Kennaraverkfallið er skollið á og skólahald i framhalds- skólum svo tU alveg lamað. Félagar í Hinu íslenska kennara- félagi eru rúmlega ellefu hundruð talsins og einungis örfáir stundakennarar sem ekki eru félagar í HÍK halda uppi kennslu. Upp úr viðræðum slitnaði á mánudag mUli HÍK og ríkisins án þess að tU nýs samningafundar væri boðað. Guð- laugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari ætlaði að hafa sam- band við deiluaðUa í gær, miðvikudag, en enn ber mikið á miUi. Kennarar vUja 28,5% hækkun en rikið býður 14,5%. Fréttapunktar • Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni fjármálaráðherra unnið að samanburði á álagningu skatta samkvæmt núgUdandi skattakerfi og fyrirhuguðu staðgreiðslukerfi. Þar kemur fram að heUdar skattgreiðslur flestra tekjuhópa eru almennt lægri í fyrirhuguðu staðgreiðslukerfi • Alþingi samþykkti frumvarp um stofnun hlutafélags um Útvegsbankann í fyrrinótt. Lögin þýða 800 milljón króna framlag rikissjóðs og þá er gert ráð fyrir 200 mUljón króna framlagi Fiskveiðasjóðs. • Jón Ottar Ragnarsson stöðvarstjóri Stöðvar 2 hefur sent biskupi íslands, herra Pétri Sigurgeirssyni, bréf þar sem hann óskar eftir viðræðum við þjóðkirkjuna um samstarf og framleiðslu á trúarlegu efni, sérstaklega fyrir börn. Eins og kunnugt er gagnrýndi séra Ólafur Skúlason dómprófast- ur sýningartíma á teiknimyndum og telur hann bitna á kirkjusókn barna. Fyrsti fundur mUli Stöðvar 2 og Þjóð- kirkjunnar verður haldinn í lok vikunnar. • VerkfaUi átján hundruð trésmiða og húsasmiða í Reykja- vík, Hafnarfirði, á Suðurnesjum og Suðurlandi, lauk á föstudagskvöldið. Samkvæmt nýjum samningum verða lág- markslaun 35.000 krónur. • í atkvæðagreiðslu um umferðarlögin hjá neðri deUd Al- þingis sem fram fór á mánudaginn var samþykkt að skylda alla ökumenn tU að aka með ljós á bifreiðum sinum allan sólarhringinn, allan ársins hring. Þá mega ökumenn búast við sektum noti þeir ekki bUbelti. • Aðeins einu atkvæði munaði á að nýtt bilnúmerakerfi yrði tekið upp. TUlaga um að gamla kerfið yrði notað áfram var samþykkt með 18 atkvæðum gegn 17 hjá neðri deild Al- þingis . . . • Hagnaður Eimskipafélags íslands var á síðasta ári 239 mUljónir króna, en á árunum 1984 og 1985 var um taprekst- ur að ræða. Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélags- ins segist þakka þessa góðu afkomu auknum flutningum á árinu 1986, góðri nýtingu skipanna og lækkun oliuverðs, ásamt því jafnvægi sem verið hefur á verðlagi og stöðugu gengi. • Rekstri Keflavikurradíós verður líkast tU hætt með vor- inu Þjónusta þess hefur lítið verið notuð að undanförnu þar sem farsími er nú kominn i flesta báta. • Dagblaðið Timinn varð sjötiu ára þriðjudaginn 17. mars. Andlát Bjarnleifur Bjarnleifsson ljósmyndari DV lést i Reykjavík 6. mars sl. Bjarnleifur starfaði sem ljósmyndari i rúm 30 ár, fyrst hjá Vísi og síðan hjá Dagblaðinu frá stofnun þess 1975. Við sameiningu blaðanna árið 1981 gerðist Bjarnleifur ljós- myndari DV og starfaði við það tU dauðadags. í kosningamiðstöð Alþýðuflokksins laugardaginn 21.mars kl,14:oo Frummælendur: Jóna Möller; Grunnskólinn Sjöfn Sigurbjörnsdóttir: Framhaldsskóli fj ölbrautaskóli Alda Möller: Foreldrar/skólinn Sigþór Sigurðsson: Skólinn frá sjónarhóli nemenda. Spjall og kaffi. HELGARPÓSTURINN 43

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.