Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Blaðsíða 26
JMR ■ W Bikill uppgangur er núna í vörusölu sem tengist náttúruafurð- um, vegna umræðu um skaðsemi „kemiskra efna“ í fæðu og í daglegu umhverfi manna. Eitt þeirra sér- hæfðu fyrirtækja í sölu á heilsusam- legu byggingarefni og skyldum vör- um er Natura Casa, við Nýbýlaveg í Kópavogi. Hér er um að ræða heildsölu og smásöluverslun á slíkri framleiðslu. Fyrirtækið hefur m.a. sérhæft sig í innflutningi á heilsu- samlegri vinnulýsingu, þ.e. ljósaper- um sem lýsa þannig að truflar ekki vinnu og dregur mjög úr augn- þreytu, og ýmsum slappleika sem oft fylgir venjulegri flúrlýsingu. Frést hefur að frystihús og fleiri vinnustaðir séu í þann mund að taka upp slíka heilsusamlega lýsingu. Forstjóri fyrirtækisins og oaðaleig- andi er Ingólfur Ingólfsson. Þá er fyrirtækið að setja á markaðinn byggingarefni, spónaplötur og fleira, án nokkurra heilsuspillandi efna, og m.a. hafa skólar tekið upp innréttingar af þeim toga. Mikla at- hygli vakti á dögunum, að ofnæmis- sérfræðingur sagði frá því í sjón- varpi, að hér á landi veiktust tugir manna»vegna aukaefna — og hefur slík náttúrleg framleiðsla sem kem- ur í veg fyrir ofnæmissjúkdóma, fyr- ir löngu rutt sér til rúms í nágranna- löndum okkar. . . ■ tokkarnir eiga allir í smá inn- byrðis deilum um mál, sem skipta þegnana miklu máli. Þjóðin hefur að undanförnu horft upp á hvernig frammistaða þingflokks Alþýðu- bandalagsins tætti í sundur flokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra, og heldur Garðar Sigurðsson áfram þeirri deilu í DV nú í vikunni. Öllu meiri athygli vakti þó kjallaragrein Sighvats Björgvinssonar í því blaði gegn kvótakerfinu. Þar var spjótunum greinilega beint gegn einum helsta höfundi kvótakerfis- ins, Jóni Sigurðssyni. ,,Ég mun enga ríkisstjórn styðja; sama hvaða stjórnmálaflokkar þar eiga hlut að máli; sem ekki fellst á að hverfa frá kvótakerfinu við stjórn á fiskveið- um. Sú afstaða liggur hér með fyrir," segir Sighvatur. „Kvótakerfið er að- ferð fyrir reiknistokksmenn," segir greinarhöfundur og enn er spjótun- um beint í sömu átt. Og Sighvatur gengur lengra, hann segist „aldrei" geta átt samleið með þeim sem vilja viðhalda kvótakerfinu. Dálítið seint fram sett.. . INNVAL býður mikið úrval innréttinga í eldhús ásamt fataskápum og baðinnréttingum. I sýningar- sal okkar gefst tækifæri til þess að skoða nýju innréttingarnar okkar og sannfærast um, að í þeim sameinast notagildi gæðum sem tryggir þér gott vinnueldhús. Við kappkostum að veita þér alla þá þjónustu sem þörf er á við hönnunn og skipulag eldhússins og höfum að markmiði að gera þig að ánægðum viðskiptavini. INNVAL BÝÐUR ENNFREMUR MIKIÐ ÚRVAL VIFTUHATTA í ELDHÚS, LITAÐA EÐA ÚR STÁLI, ÁSAMT MÖRGUM GERÐUM TRÉSTIGA Á HAGSTÆÐU VERÐI. Nýbýlavegi 12 Sími 44011. 200 Kópavogur Þarftu ráö? Nú, þá hringiröu í 91-62 22 80 H» GEGN EYÐNI BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:........ 96-71489 HÚSAVÍK:....... 96-41940/41594 EGILSSTAÐIR: ..........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR: ..... 97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303 Borðapantanir í síma 11340. 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.