Helgarpósturinn - 19.03.1987, Side 15
Birkir rifjar upp það sem hann er búinn að
skrifa.
Eruð þið frá Helgarpóstinum? Ég seldi
hann oft áður en ég varð blindur! sagði
Kjartan eldri.
sjáandi jafnaldrar þeirra, og brátt
var von á rútu sem færi með þau í
sundið. Það átti meira að segja að
vera próf í dag. Svolítils kvíða gætti
varðandi það atriði og krakkarnir
sögðust vona að þau fengju samt að
leika sér að lokinni kennslustund-
inni.
Kjartan eldri var búinn í einkatím-
anum og varð nú við þeirri bón að
sýna okkur noktun hvíta stafsins.
Hann vissi heldur betur deili á Helg-
arpóstinum, því í ljós kom að hann
hafði oft og mörgum sinnum selt
blaðið, áður en hann varð blindur.
Upp hófust því miklar umræður um
sölulaun, blaðaútburð og fleira. Síð-
an fengum við að fyigjast með því
hvernig Birkir hellti mjólk í glas.
Það þykir sjáandi fólki kannski ekk-
ert til þess að sýna áhorfendum
svona sérstaklega, en fyrir blinda
getur þessi einfalda athöfn verið af-
rakstur margra vikna þjálfunar. Það
sama er að segja um jafn hversdags-
legan viðburð og að renna upp
rennilás.
„ÞETTA VAR EKKI
MAGGI, HELDUR
LÁRUS'
Blind börn horfa ekki út um
glugga — eða hvað?
A meðan á þessu stóð, hafði Kjart-
an yngri þó einmitt verið að „horfa"
út um gluggann. Fyrir utan voru
krakkar að leik í skólaportinu og
brátt kom rútan til þess að aka litla
hópnum í sund. Um leið og heyrðist
í farartækinu, vissu krakkarnir
hvaða bíl var um að ræða, en fjórar
rútur skiptast á um að sinna þessu
hlutverki. Einn kennarinn sagði
mér hreint ótrúlega sögu um það
hve vel börnin þekkja rúturnar í
sundur:
Sólveig var stödd á strætisvagna-
biðstöð á Háaleitisbrautinni með
bekkjarfélögum sínum, þegar ein
smárútan ók framhjá. Kennarinn
sagði henni að Maggi bílstjóri hefði
veifað til þeirra, en sú stutta var fljót
að leiðrétta það. „Þetta var ekkert
Maggi, þetta var Lárus!“ Og hún
hafði rétt fyrir sér.
Nú var einn af þessum bílstjórum
mættur og við kvöddum börnin
hrærð og þakklát fyrir að hafa feng-
ið innsýn í veröldina þeirra. Móttök-
urnar höfðu verið bæði hlýjar og
innilegar og minningarnar þeirrar
tegundar, sem ekki gleymast svo
glatt.
STÖRKOSTLEGT PLAKÖT OG MYNDIR
HELGARPÓSTURINN 15