Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.03.1987, Qupperneq 17

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Qupperneq 17
Dagbókin hennar Dúllu Föstudagur, 13. mars 1987 Kæra dagbók! Hvað heldurðu? „Lóa lenska" (ís- lenskukennarinn minn, þú veist. . . þessi þarna pipraða kvennalista- kerling) heimtaði að við fylgdumst með einhverjum eldhúsþætti í sjón- varpinu í gærkvöldi. Og ég sem ætl- aði að sjá myndina með Meryl Streep um konuna sem fattar að kallinn hennar er á kafi í öðrum skvísum, þegar hún er kasólétt. (Djö ... myndi ég brjálast í hennar sporum. Ég myndi bara kaupa mér byssu og skjóta hann, held ég!) Svakalega var þetta eldhúsvesen annars leiðinlegt! Svo fattaði ég ekki fyrr en seint og síðarmeir að þetta var í sjónvarpinu líka. Það er nú þó skárra að sjá hver er að æpa á mann, en ég held næstum að ég vildi heldur horfa á íþróttaþátt frá byrjun til enda en þetta kjaftæði. Læknakonan — flokkssystir Lóu lensku, best að hrósa henni í rit- gerðinni til að fá háa einkunn — sagði soldið merkilegt, sem ég vissi ekki áður. Sæmilegur þýddi einu sinni „sæmandi". Eg meina það! Geta orð bara hætt að þýða eitt og farið að þýða annað? Annars sagði hún auðvitað margt annað, en það er bara svo erfitt að muna þetta allt. Ég skrifaði þess vegna hjá mér nokkra punkta til minnis vegna rit- gerðarinnar. T.d., að konur sem komast áfram í ,,blönduðu“ flokk- unum eru ekki líklegar til að vinna að baráttumálum kvenna. (Þá sló mamma sér á lær og sagði: „Sjáðu bara Möggu Thatcher og Ragnhiidi" við pabba, en hann sagði að þetta væri mannfyrirlitning og umburð- arleysi í henni. Hún fór þá inn í eld- hús, fékk sér sérrí og hlustaði þar. Mér fannst það líka ágætlega við- eigandi hjá henni.. . Vonandi er þetta ekki ný þáttaröð! Verð að spyrja mömmu.) Annars talaði allt þetta fólk á ein- hverju máli, sem ég skildi lítið í og var svo ógeðslega alvarlegt. Og klæðnaðurinn á þeim. Ég meina það! Annað hvort sorgarklæðnaður eða skrípaföt eins og maðurinn hennar þarna með stífa brosið á Stöð 2, sem pabbi var svo skotinn í þegar ég var lítil. Bless, bless. Farin í bíó. Dúlla. NORÐURLAND EYSITto VALDIMAR Valdimar Bragason, útgerðarstjóri, er fyrrverandi bæjarstjóri á Dalvík. Hann starfar nú að sjávarútvegsmálum og hefur aflað sér mikillar þekkingar á því sviði. í 5. sæti. í 4. sæti. a Hjaltadóttir er formaður Alþýðusambands Norðurlands. hefur um árabil starfað innan verkalýðshreyfingarinnar barist ötullega fyrir hagsmunum verkafólks. I 3. sæti Jóhannes Geir Sigurgeirsson, bóndi. Hann hefur tekið virki þátt í störfum ungmennafélagshreyfingarinnar, gegnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir bændur og er talsmaður nýrra tíma í íslenskum landbúnaði. ndur Bjarnason, alþingismaður. Störf hans sem sveitar- manns, bankastjóra og alþingismanns sýna að hér er á ni ótvíræður foringi kjördæmisins. BRAGI í 6. sæti. ‘--'ilX Bragi V. Bergmann er kennari og ritstjórnarfulltrúi Dags. Hann býr yfir þekkingu á æskulýðs- og kennslumálum og t virkan þátt í störfum íþróttahreyfingarinnar. .. ... V : sæti er Valgerður Sverrisdóttir, húsmóðir. jhefur víðtæka reynslu af félagsmálum, er í stjórn Kaupfélags rðinga og Sambandsins. Valgerður hefur vaxið með hverju starfi og eina konan sem á möguleika á þingsæti í þessu kjördæmi. Ef málid snýst um EYÐNI þá hringiröu í 91-62 22 80 IP GEGN EYÐNI VIÐKYNNUM 6 EFSTU MENN FRAMBOÐSLISTANS FORSENDA ÖFLUGRAR BYGGÐARSTEFNU er traustur rekstrargrundvöllur sjávarútvegsins. LÍFÆÐ LANDSBYGGÐAR er samgöngukerfið. FRAMBOÐSLISTI OKKAR er skipaður ungu fólki sem er reiðubúið að berjast fyrir hags- munamálum Norðlendinga. Góð menntunarskilyrði, örugg atvinna og framboð húsnæðis á viðráðanlegum kjörum eru meðal helstu baráttumálanna. FRAMSOKNAR FLOKKURINN ItlJ HELGARPÓSTURINN 17

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.