Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 18

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 18
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur mynd Jim Smart NATTURUNNI ALLUR I Það er hœgt ad segja allt annad um Örn Svavarsson en ad hann sé óhress. Honum lídst líka ýmislegt uegna þessarar hressu framkomu, til dœmis hjá uidskiptafyrirtœkjum sínum í Suiss og Þýskalandi þar sem hann kallar alla meö fornafni, huort heldur hann er að tala uið sendla eða framkuœmda- stjóra. Meira að segja tíðkast það í einu þýsku fyrirtœkjanna að menn sem hafa unnið saman í yfir tuttugu ár áuarpi huorn annan „Herr-Doctor“ — en hjá Erni heita þeir bara Michel og Helmut.. . Örn er umsvifamikill heildsali hér í borg. Hann er þó ólíkur öðrum heildsöium að mörgu leyti. Skrifstofan hans er í litlu bakhúsi við Laugaveginn og vörurnar sem hann flytur inn eru náttúruvörur. Þeirra vegna lenti Örn í sviðs- ljósinu í fyrra en þá fór Lyfjaeftirlitið þess á leit við hann að hann skilaði inn ákveðnum jurta- lyfjum til eyðingar. En hvaðan kemur hann, þessi maður sem að sumu leyti brýtur í bága við svo margt? „Ég kem úr Landsveitinni en er nú bara fædd- ur í Reykjavík, nánar tiltekið í Barmahlíðinni," segir Örn og hlær. „Mamma mín, Elfriede Kjart- ansson, er þýskur flóttamaður og þegar hún átti von á mér var henni sagt að hún væri orðin svo gömul að það þýddi ekki að bíða á spítalanum, barnið kæmi ekki fyrr en eftir „dúk og disk“. Það passaði, hún var rétt komin heim í Barmahlið þegar ég ákvað að koma í heiminn. Ég man nú lítið eftir mér úr Barmahlíðinni því við fluttum í Kamp Knox þegar ég var þriggja ára og þar bjuggum við í fjögur ár. Pabbi minn, Svavar Hafstein Jóhannsson og mamma skildu um það leyti og mamma fluttist síðar með mig og yngri systur mína Droplaugu austur í Landsveit þar sem hún giftist bóndanum í Flagbjarnarholti, Stefáni Kjartanssyni, mætum manni." í Landsveitinni ólst Örn upp og sinnti þeim bú- störfum sem til féllu. Skólagangan „er ekkert til að flíka," segir Örn. „Ég lauk bara skyldunni frá Laugalandsskóla í Holtum og tók ekki einu sinni gagnfræðapróf." Hann er kannski lifandi sönn- un þess að margt er hægt að læra í skóla lífsins því ekki aðeins talar maðurinn fallega íslensku heldur svissar hann úr henni yfir í þýsku, sænsku, dönsku eða ensku þegar þess þarf með: „Þýskuna lærði ég af mömmu sem talaði alltaf við okkur systkinin á þýsku en við svöruðum á íslensku," segir hann. „Mamma gerði þann góða hlut að láta okkur skrifast á við vini sína í Þýska- landi og þannig lærðum við mun meira í málinu en ella. Sænskuna fékk ég frítt ef svo má segja því ég var giftur sænskri konu í mörg ár.“ Þegar Örn var 17 ára lagði hann leið sína til Reykjavíkur. „Ég vann mér inn peninga til að eyða í ferðalög, enda alltaf verið mikil ferða- löngun í mér," segir hann. „Sumarið áður en ég varð tvítugur lést fóstri minn svo ég flutti aftur austur. Við mamma vorum þá að velta fyrir okk- ur hvort við ættum að halda búskapnum áfram en ekkert varð úr því, aðallega vegna þess að við vorum ekki sammála um hvernig ætti að reka búið. Ég vildi að við losuðum okkur við allt sauðfé og settum upp 50—100 kúa fjós en sem betur fer varð ekkert af því. Nú er allt í mínus og borgaðar 15 krónur á hvern lítra sem ekki er framleiddur!" Hann hlær hrossahlátri þegar við ímyndum okkur hvort hann fengi ekki þessa peninga greidda á þeirri forsendu að hann „hefði ætlað að setja upp kúabú" ... LEIÐSÖGUMAÐUR . . . „A þessum fyrstu Reykjavíkurárum hafði ég unnið í verkamannavinnu, á bílaverkstæði og var í íhlaupavinnu í Straumsvík en frétti svo að það vantaði þýskumælandi leiðsögumenn. Ég gekk því inn á ferðaskrifstofu Zoéga og spurði hvort þá vantaði ekki leiðsögumann og var sagt að koma aftur næsta dag. Mér þótti ég bara nokkuð djarfur því á þessum árum var ég hrika- lega feiminn, kunni ekki neitt eða vissi nokkuð og var nýkominn af traktornum í sveitinni. En næsta morgun mætti ég og var þá sagt að dag- inn eftir kæmi þýskt skemmtiferðaskip hingað til lands og ég ætti að fara með hópinn á Gullfoss og Geysi. Þangað hafði ég raunar aldrei komið en lét það ekki uppi, fékk lánaðar bækur hjá vin- konu minni sem var ieiðsögumaður og las mér til um allt sem vert var að vita. Þetta varð ein- hver besti túrinn minn . . . ! í gegnum leiðsögu- starfið kynntist ég mörgum og átti inni heimboð um allan heim sem mér fannst kjörið að þiggja. Þetta var áhugavert starf og það eru ekki nema 2—3 ár síðan ég hætti alveg í þessu starfi. Fram að þeim tíma tók ég að minnsta kosti eina, tvær ferðir á sumri, fyrst hótelferðir og síðan fjalla- ferðir hjá Úlfari Jacobsen." GLUGGAPÚSSARI . . . Örn starfaði um tíma með vini sínum Sigvalda Kaldalóns við það að pússa glugga þangað til hann ákvað að fara út í það starf sjálfur: „Ég keypti mér fötu, sköfu, kúst og stiga og labbaði inn í fyrirtæki þar sem mér fannst rúðurnar vera óhreinar. Á Laugaveginum þvoði fólk greinilega sjálft gluggana á fyrstu hæðum svo ég einblíndi upp á aðra og þriðju hæð og bauðst til að þvo gluggana gegn ákveðnu gjaldi viku- eða mánað- arlega. Þetta var stórgóð vinna því flestir vilja hafa hreinar gluggarúður og fyrr en varði var ég kominn með þrjá menn í vinnu. Þetta starf hlóð utan á sig og ég held bara að ég hafi um tíma verið stærsti gluggapússarinn í borginni!" . . . OG HEILDSALI Hann segist hafa verið í gluggapússarastarfinu alveg þar til hann opnaði verslun sína Heilsu- húsið rétt fyrir jólin 1979. Þá var hann þó löngu byrjaður á að flytja inn heilsuvörur og ég spyr hann um aðdraganda þess: „Þannig var að mamma hafði komist í kynni við svissneskar náttúruvörur frá fyrirtækinu Bioforce. Sá sem flutti þær hingað inn var danskur maður sem hafði byggt upp starf Votta Jehóva hér á landi, ómenntaður bóndasonur frá Danmörku en alveg óhemju vel gefinn. Hann las hin ólíklegustu tungumál, s.s. hebresku, grísku og latínu og talaði að auki íslensku betur en nokkur íslendingur en hafði ekki hundsvit á peningum. Gáfur og peningavit fara nefnilega ekki alltaf saman! Nú, þessi innflutningur var alveg í kaldakoli hjá honum en þar sem hann vissi af áhuga okkar mömmu á náttúruvörum bauð hann okkur að taka við umboðinu. Ég sló til og var fyrst með þetta á skrifborðinu heima, flutti svolítið inn og seldi í verslanir og þetta gekk alveg ágætlega. Áhugi fyrir þessum vörum varð alltaf meiri og meiri og ég pantaði sífellt meira. Þessar vörur seldi ég aðallega í Náttúru- lækningabúðina en einnig í aðrar verslanir og allir stóðu við sitt. En svo kom nýr verslunar- stjóri í Náttúrulækningabúðina . . ÉG VAR BARA LÍTILL OG AUMUR „Af því ég var bara lítill og aumur og ekki stór bógur fannst honum allt í lagi að draga greiðslur til mín. Þær komu alltaf á endanum en ég var orðinn leiður á þessu eilífa veseni og eins loka- setningu hans í hvert skipti sem við áttum við- skipti: „Þá er bara okkar viðskiptum lokið!" sagt með þjósti í hvert skipti sem ég vildi fá greiðsl- urnar á réttum tíma. Einn daginn fékk ég mig fullsaddan og svaraði því til að það væri líklega best. Gekk út og fór að leita mér að plássi til að opna eigin verslun. Um þær mundir var ég að þvo gluggana hjá Pfaff á Skólavörðustíg, en þeir voru þá að flytja inn í Borgartún og ég spurði Magnús hvort hann væri ekki til í að leigja mér og var það auðsótt mál. Ég opnaði Heilsuhúsið svona einn, tveir og þrír með ágætis úrval af vörum. Um svipað leyti fór ég að selja Gericom- plex." AUGLÝSINGAR HEILLA MIG Hann segist hafa lesið allt sem hann náði í sem viðkom heilsuvörum og óskaði eftir að fá fyrir- lestra af heilsuþingum senda til sín. I einni send- ingunni fékk hann fyrirlestra sem fluttir höfðu verið í Sviss, þar á meðal einn um ginseng: „Nokkru áður höfðu Moonistar á Islandi flutt inn ginseng og skrifað um það opnugrein í Vísi og það varð allt vitlaust hér, allir vildu fá gin- seng. Þeir voru aftur á móti eitthvað seinir við að flytja það inn svo mér fannst kjörið að prófa. I fyrirlestrinum kom m.a. fram að eina ginseng- ið sem vit væri í væri G115 og ég fann út hverjir framleiddu það. Skrifaði út til Sviss og óskaði eft- ir umboði. Þeir svöruðu mér um hæl og sögðu að það væru fleiri hér á landi að óska eftir um- boðinu og hvað ég teldi mig geta selt mikið. Ég skaut á einhverja tölu og sendi svarið út. Þessi snöggu viðbrögð öfluðu mér umboðsins því hinn aðilinn svaraði ekki. Talan sem ég skaut á reyndist fjarri lagi — íslendingar keyptu mun meira af ginseng en ég hafði áætlað! Ég hef alltaf verið heillaður af auglýsingum og ákvað að fyrsta auglýsingin um Gericomplex skyldi verða sterk. Lét mig meira að segja hafa það að bíða vikum saman eftir viðskiptum við þá auglýsingastofu sem ég treysti best. Það tókst og auglýsingin sló í gegn. Eitt af því sem hreif mig í sambandi við auglýsingar var þegar ég las hvernig Wrigleys náði tyggjómarkaðnum. Þeir auglýstu heilsíðu í lit á sama tíma og engum öðr- um kom einu sinni til hugar að prenta í lit. Salan fór fram úr öllum mínum vonum og ég flutti inn Gericomplex í tonnavís næstu mánuðina. Þá var ég einn í þessu og var hreinlega bara í því að keyra töflurnar út í apótekin. Þetta var ævintýri líkast og árið 1983 var slegin metsala á þessari tegund hér á landi, sala sem hvergi í heiminum hefur verið slegin út miðað við fólksfjölda!" ÉG ÓTTAST EKKI SAMKEPPNI „Það verður því að segjast eins og er að það var verslunarstjóri Náttúrulækningabúðarinnar sem kom mér á sporið. Hann hefur ábyggilega ekki ætlast til að svona færi . . . Annars er ég persónulega hrifinn af samkeppni og óttast hana ekki því ég er sannfærður um að aukinn fjöldi heilsubúða eykur neyslu á heilsuvörum, alveg eins og aukinn fjöldi veitingahúsa hefur orðið til þess að fleiri fara út að borða. Það hefur alltaf verið stefnan hjá mér að lækka vöruverð, m.a. með því að flytja inn vörur í lausu og pakka þeim inn sjálfur. Besta varan er auðvitað alltaf dýr en það er óþarfi að hafa hana enn dýrari með því að borga erlendum aðilum fyrir pökkun sem maður getur auðveldlega séð um sjálfur. Það hafa komið upp fleiri svona verslanir hér á landi frá því ég opnaði Heilsuhúsið 1979 og þetta er töff bransi. Það hleypur enginn inn í hann, það er alveg öruggt. Maður verður að vita nákvæmlega hvað maður er að gera. Það er ekki nóg að panta bara B-vítamín, maður þarf að vita nákvæmlega hvað maður er með í hönd- unum, úr hverju varan er unnin, styrkleika hennar að sjálfsögðu, hvaða aukaefni eru í henni og þar fram eftir götunum. Alfa og omega hjá mér er að slaka aldrei á gæðunum." Örn segir verslunina hafa þróast æ meira út í gourmet-verslun eftir að hann hóf að selja te og kryddvörur frá Frakklandi. „Mér fannst töff að vera með kryddjurtir og te í stórum sekkjum og selja það beint. Þannig fær maður ferskt og gott krydd á góðu verði." „ . . . EN HÉR ER ÞETTA BANNAÐ" Við víkjum talinu að blaðadeilum sem Örn stóð í við aðstoðarlandlækni á síðasta ári: „Ef við byrjum á byrjuninni vil ég benda á að alls staðar í heiminum er seit mikið af góðum náttúrumeðulum, s.s. jurtaupplausnum og jurta- teum. Þetta er selt á Norðurlöndunum, í Þýska- landi og Bretlandi og meira að segja í Bandaríkj- unum þar sem þetta hefur fengið náð fyrir Food and Drug Administration, sem er mjög strangt eftirlit — en þetta er bannað hér. Þetta bann kom til vegna breytinga á lyfjalögum og var sett fyrir nokkrum árum. Ég hafði flutt þessar vörur inn í mörg ár og fékk alltaf samþykki „með fyrir- vara" því það átti alltaf að gera eitthvað í málinu. Svo var allt í einu tekið fyrir innflutning á þess- um vörum og auðvitað varð fólk óánægt. Hér hafa margir fengið bót á kvillum sínum með því að nota jurtalyf. Ástæðan fyrir banninu var sögð vera sú að þessi lyf innihaldi „virk efni". Auðvit- að innihalda þau virk efni, annars myndu þau ekki virka!“ segir Örn og glottir. „Önnur eru bönnuð vegna þess að þau eru leyst upp í áfengi en það er nauðsynlegt til þess að virku efnin ná- ist úr jurtunum. Hér má aftur á móti selja köku- dropa í matvöruverslunum þótt þeir innihaldi sama styrkleika af áfengi og þessir heilsudropar. Þetta er fáránlegt. Ég spurðist einu sinni fyrir um þetta hjá Lyfjaeftirlitinu og fékk það svar að það væri sennilega vegna þess að kökudropar væru svo eitraðir að fólk væri löngu komið með eitrun af essensnum áður en áfengið hefði skað- leg áhrif. Að mínu mati er það skýlaust brot á mannrétt- indum og skýlaust brot á stjórnarskránni að meina fólki aðgang að þeim efnum sem geta lin- að þjáningar þess. Þetta er töluvert svæsið spursmál, ég held bara að fáir geri sér grein fyrir því. Hvaða rétt hafa þessir menn til að segja: Það er ég sem ákveð hvað þú notar ... ? Þér til fróð- leiks get ég sagt þér að lœknar voru farnir að vísa mikið á eitt af þessum efnum því það var svo milt en virkaði samt vel.“ „STÓRHÆTTULEG EFNI" „Það var svo í janúar í fyrra að starfsmaður frá Lyfjaeftirlitinu mætti í verslunina — án þess að kynna sig — og spurði hvort eitthvað væri til við hinu og þessu sem hún nefndi. í framhaldi af því fékk ég bréf frá Lyfjaeftirlitinu þar sem ég var beðinn um að afhenda ýmsar vörur til eyðingar hvað ég og gerði. Einhver sagði sjónvarpinu frá þessu og tekið var viðtal við mig og aðstoðar- landlækni þar sem hann fullyrti m.a. að sum þessara efna væru „stórhættuleg". Ég vil auðvit- að ekki sitja undir því að ég sé að selja fólki „stórhættuleg efni“ og svaraði honum í blöðum. Upp úr því hófust blaðaskrif okkar á milli og les- endur létu einnig í sér heyra. Sko, Lyfjaeftirlitið á bara að hafa eftirlit með því að hingað séu ekki flutt inn skaðleg efni. Það er allt og sumt sem það á að gera. En á meðan mér er bannað að flytja inn skaðlausar lækningajurtir er leyfður innflutningur á annarri jurt hingað til lands í tonnatali í hverjum mánuði. Það er jurt sem vit- að er að dregur svo og svo marga til dauða á hverju ári. Tóbak. Sú jurt kostar heilbrigðiskerf- ið tugi ef ekki hundruð milljóna á hverju ári meðan jurtirnar sem ég flyt inn geta stuðlað að lækkun kostnaðar í heilbrigðiskerfinu. Meðan fólk notar náttúrulyf þarf það ekki þessi dýru lyf sem nú er verið að fjalla um á Áiþingi. Þetta kostar heilbrigðiskerfið ekki neitt, þetta sparar því peninga en misvitrir menn geta ákveðið að þetta sé bannað. Takk. Það hefur ekkert breyst í aldanna og árþúsundanna rás. Það er alltaf mis- viturt yfirvald sem getur ákveðið líf og dauða fólks. Þegar Galileó sagði að jörðin væri hnöttótt og snerist átti að taka hann af lífi því sú kenning stríddi í bága við það sem fræðimenn og ráða- menn höfðu ákveðið og héldu fram. Þá átti hinn litli maður bara að þegja. Og þetta er nákvæm- lega eins í dag. Ef hinn litli maður leyfir sér að hafa aðra skoðun en yfirvaldið þá er hann bara kýldur niður, vær sá god! Svona hefur þetta allt- af verið og svona er þetta enn í dag, á tuttugustu öldinni — á íslandi. Við upplýstir íslending- ar..!“ VINNA OG STARF ÓAÐSKILJAN LEGT Örn hefur nú látið móðan mása varðandi vinnumálin og því tilhlýðilegt að skipta um um- ræðuefni svo lesendur fái örlitla innsýn í persón- una Örn Svavarsson. Ég bið hann fyrst að lýsa sjálfum sér: „Ég held það sé best að láta aðra um slíkt!" segir hann og hlær. En hvernig aðskilur svona vinnuforkur einka-

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.