Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 20
ISKOÐANAKÖNNUN HELGÆRPOSTSINS
Tómas Ingi Olrich. Þarf hann að kenna
áfram nyröra — eða kemst hann ( mál-
skrafið suður? Kemur enn til greina.
Sigurbjörn Gunnarsson. Sest hann f stól
afa slns, Steindórs Steindórssonar, sem
sat á þingi ( nokkra mánuði 1959?
Svanfr(ður Jónasdóttir. A litla möguleika
samkvæmt Skáls, en mikla samkvæmt
skoðanakönnun Félagsvlsindastofnunar.
En hvað gerist ( kosningunum?
Málmfríður Sigurðardóttir. Traust og virt
heimaog heiman, — öðruvlsi þingmaður
á leiðinni að norðan...?
Stefán Valgeirsson þarf nokkur prósent (
viðbót. beynast þau í dreifðum byggðum
kjördæmisins og neita að koma fram?
SJÁLFSTÆÐISFLOKK-
URINN STERKASTUR
Stjórnarflokkarnir halda velli í Norðurlandi eystra — Kvennalistinn
kœmi að manni — Allaballar töpuðu fylgi
Framsóknarflokkurirm fer sæmi-
lega út úr skoðanakönnuninni sem
fram fór um sl. helgi í Norðurlandi
eystra ef tekið er mið af hörðu klofn-
ingsframboði Stefáns Valgeirssonar
í kjördæminu. Hins vegar hefur D-
listi Sjálfstœdisflokksins töluverða
yfirburði með yfir 30% fylgi. Stefán
Valgeirsson er nokkuð frá því að
komast inn á þing samkvæmt þess-
ari könnun og Þjódarflokkurinn
víðs fjarri því. Alþýðuflokkurinn
sækir í sig veðrið frá síðustu kosn-
ingum, bætir við sig um 7%, en Al-
þýðubandalagið tapar hiiðstæðu f*á
síðustu kosningum, samkvæmt
þessari könnun. Kvennalistinn mæl-
ist sterkt í könnuninni með tæplega
8% atkvæða.
Norðurlandskjördæmi eystra er
talið verða með flesta lista í fram-
boði við næstu kosningar eða 9 tals-
ins. Hins vegar gerðist það í könnun
HP um helgina að hvorki Bandalag
jafnaðarmanna né Flokkur manns-
ins mældust með atkvæði. Af þeim
300 sem úrtakið náði til gáfu 189
upp afstöðu sína til framboðslist-
anna. Hér er um að ræða fyrstu
könnun sem HP lætur gera sérstak-
lega um fylgi flokka í einu lands-
byggðarkjördæmi fyrir þessar kosn-
ingar.
STJÓRNARFLOKKARNIR
SIGURVEGARAR
Segja má að stjórnarflokkarnir
standi með pálmann í höndunum ef
kosningaúrslitin verða á svipaða
lund og þessi skoðanakönnun gefur
til kynna. Sjálfstæðisflokkurinn
styrkti stöðu sína heldur frá síðustu
kosningum og Framsóknarflokkur-
inn stæði ævintýralega vel af sér
framboð Stefáns Valgeirssonar. Er
Halldór Blöndal að fá á sig ímynd
héraðshöfðingjans nyrðra? Fylgi D-
listans er gífurlegt eða um 30% sam-
kvæmt þessari könnun — og ef úr-
slit fylgja eftir — má segja að líkur
aukist á áframhaldandi ríkisstjórn-
arsamstarfi Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks. Niðurstaða þessarar
könnunar hlýtur þó sérstaklega að
fá brúnina á framsóknarmönnum til
að lyftast ögn, þar sem flokkurinn
hefur legið niðri í flestum könnun-
um að undanförnu. Með þessari vís-
bendingu og fleiri hliðstæðum úr
síðustu skoðanakönnunum verða
framsóknarmenn áfram í ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokknum að
afloknum kosningum.
STEFÁN ÚTI
Samkvæmt þessum niðurstöðum
er Stefán Valgeirsson töluvert frá því
að komast inn á þing. Hann er með
20 HELGARPÓSTURINN
6.3% fylgi þeirra sem taka afstöðu,
en þyrfti að vera með milli 9% og
10% til að komast nærri þingsæti.
Margir telja að fylgi Stefáns sé sér-
staklega svæðisbundið, — en könn-
unin er hins vegar framkvæmd
þannig, að spurt er eftir tölvuskrá
símanúmera. Þetta gæti valdið mis-
vísandi tölum, en að sjálfsögðu ekk-
ert hægt að fullyrða frekar um mál-
ið.
Þjóðarflokkurinn er rétt stofnað-
ur og hefur ekki tilkynnt skipan
framboðslista síns í Norðurlandi
eystra. Hitt er víst að flokkurinn fær
í könnuninni ekki nema 2.6%, sem
er víðs fjarri þingsæti.
GAGNVIRKT FLÆÐI
Að venju var gengið harðar að
þátttakendum í þessari skoðana-
könnup og þeir spurðir hvort þeir
gætu hugsað sér að kjósa aðra
flokka. Það sem virðist koma aftur
og aftur upp á í svörum við þessari
spurningu fyrir komandi kosningar,
er að það gæti verið flæði milli Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks ann-
ars vegar og Kvennalista og Alþýðu-
bandalags hins vegar, Aðrir straum-
ar eru fyrirferðarminni. Sú var einn-
ig raunin í þessari könnun í Norður-
landi eystra og er þá um ámóta styrk
straums að ræða milli áðurnefndra
framboðslista.
TRÚ Á STEFÁNI
Þá voru þátttakendur spurðir
hverju þeir spáðu sjálfir um skipt-
ingu þingsæta í Norðurlandskjör-
dæmi eystra. Ef atkvæði þeirra allra
sem gáfu upp afstöðu sína til flokka
auk þeirra meðal óákveðinna sem
treystu sér til að spá eru dregin sam-
an í stigatöflu þá er niðurstaðan
þessi: A-listi: 87, B-listi: 159, D-listi:
224, G-listi: 97, V-listi: 15, J-listi: 53
stig.
Þessi „tiltrúarstig" endurspegla að
vissu leyti niðurstöðu hinnar al-
mennu könnunar um fylgi fram-
boðslistanna, með þeim frávikum
þó, að meiri trú er í kjördæminu á
því að listi Stefáns Valgeirssonar nái
inn manni heldur en sjálf könnunin
gefur til kynna. Þá ríkir almennari
vantrú á því að Kvennalistinn komi
að manni heldur en raun er á í því
efni. Enn fremur er meiri tiltrú á
gengi G-listans en A-listans heldur
en kemur fram í almennu könnun-
inni. Þar sem G-listinn kemur mikl-
um mun betur út úr könnun Félags-
vísindastofnunar á dögunum, mætti
álykta að hann hafi mælst óeðlilega
illa í þessari könnun.
FRÆÐSLUSTJÓRAMÁLIÐ
VEGUR ÞUNGT
Þá var loks spurt um eitt mesta
hitamál síðustu mánuði í kjördæm-
inu, fræðslustjóramálið svonefnda.
Ljóst er að Norðlendingar láta sig
þetta mál miklu skipta eins og sést
af meðfylgjandi töflu. 66.5% þeirra
sem afstöðu taka eru andvígir
ákvörðun ráðherra en 33.4% styðja
ráðherrann. Væntanlega mun þetta
mál koma mjög til umfjöllunar í
kjördæminu í kosningabaráttunni.
Það gæti sýnt, að í hverju kjördæmi
eru sérstakar aðstæður, sem skipta
miklu í komandi kosningum, — að-
stæður sem valda meiru um fylgi
flokka í kjördæmunum, heldur en
áhrif á landsvísu.
FLÓKNIR
ÚTREIKNINGAR
Við úthlutun þingsæta samkvæmt
nýju kosningalögunum fær D-listinn
að sjálfsögðu fyrsta þingmanninn,
annar þingmaðurinn er af B-lista, sá
þriðji af A-lista, fjórði þingmaður
kjördæmisins verður annar maður
D-lista, fimmti G-listamaðurinn,
sjötti verður annar maður B-lista.
Þingmenn kjördæmisins verða því í
réttri röð: Halldór Blöndal, Guð-
mundur Bjarnason, Árni Gunnars-
son, Björn Dagbjartsson, Steingrím-
ur Sigfússon, Valgerður Sverrisdótt-
ir.
Sjöunda þingsæti kjördæmisins er
jafnframt uppbótarsæti. Eftir áður-
nefnda úthlutun stendur V-listinn
best að vígi, þ.e. með flest atkvæði á
bak við sinn mann. Þess vegna
reiknum við með því að sjöunda
þingsæti falli í skaut Kvennalista,
Málmfríðar Sigurðardóttur. Þetta
veltur auðvitað á því hversu at-
kvæði hafa nýst viðkomandi listum
í öðrum kjördæmum við úthlutun
þingsæta. í okkar könnun standa á
eftir V-listamanninum best að vígi 3.
maður af D-lista, Tómas Ingi Olrich
og annar maður af A-lista, Sigur-
björn Gunnarsson. Þetta er auðvit-
að að vissu leyti sæti sem kallast
mætti happadráttur, því það er ekki
fylgi lista í viðkomandi kjördæmi
sem ræður úrslitum, heldur nýting
atkvæða á bakvið þingmenn í heild-
ina. Þannig lendir t.d. Svanfrtöur
Jónasdóttir af G-lista nær þessu
þingsæti í könnun Félagsvísinda-
stofnunar heldur en hjá Skáís.
Slíkar mismunandi niðurstöður út
úr könnunum undirstrika þá fyrir-
vara sem allir verða að hafa í huga
við lestur skoðanakannana: þær
eru til fróðieiks og skemmtunar og
geta ekki komið í stað hinna alvöru-
þrungnu kosningaúrslita.
GREINARGERÐ SKAÍSl
Þessi skoðanakönnun var gerð
laugardaginn 14. mars. Hringt var í
300 einstaklinga skv. tölvuskrá yfir
símanúmer í Norðurlandskjördœmi
eystra. Spurningunum var beint til
þeirra sem svöruðu og voru 18 ára
eða eldri og var miðað við jafnt hlut-
fall kynja.
Spurt var í þessari röð:
1. Ef kosið væri til Alþingis núna,
hvaða lista myndirðu kjósa?
2. Kæmi til greina að kjósa annan
lista? — Hvaða lista?
3. Hvernig spáir þú að þingsæti
skiptist milli framboðslista í Norður-
landskjördæmi eystra?
4. Styður þú eða styður þú ekki
ákvörðun menntamálaráðherra í
fræðslustjóramálinu?
Ef kosið væri til Alþingis
núna hvaða lista
myndirðu kjósa?
Norðurlandskjördæmi eystra:
fjöldi % af heild % þeirra sem tóku afstöðu
Alþýðuflokkur 34 11,3 18,0
Framsóknarflokkur 45 15,0 23,8
Bandalag jafnaðarmanna . 0 0,0 0,0
Sjálfstæðisflokkur 57 19,0 30,2
Alþýðubandalag 21 7,0 11,1
Kvennalisti 15 5,0 7,9
Flokkur mannsins 0 0,0 0,0
Framb. Stef. Valgeirss. 12 4,0 6,3
Þjóðarflokkur 5 1,7 2,6
Óákveðnir'. 61 20,3 —
Kjósa ekkifekila auðu 21 7,0 —
Neita að svara 29 9,7 —
Listar Kosningar '83 Fél.vís, Dagur Skáís, HP
A 11% 16,9% 18,0%
B 34,7% 20,6% 23,8%
C 4,5% 0,3% 0,0%
D 27,2% 25,3% 30,2%
G 16,8% 18,2% 11,1%
V 5,8% 4,7% 7,9%
J — 8,1% 6,3%
M — 2,4% 0,0%
Þ — 3,4% 2,6%
Til samanburðar birtum við hér úrslit kosninganna
1983 og skoöanakönnun Dags á Akureyri, sem fram-
kvæmd var af Félagsvísindastofnun um sama leyti.
Framboð Stefáns Valgeirssonar er merkt bókstafnum J,
Flokks mannsins bókstafnum M og Þjóðarflokksfram-
boðið er merkt Þ.
Ákvörðun
menntamólaróðherra í
fræðslustjóramólinu
Norðurlandskjördæmi eystra:
Styðjum ákvörðun
menntamálaráðherra
Styðjum ekki ákvörðun
ráðherra ...............
Óákveðnir
Annað svar..............
Neita að svara..........
fjöldi % af heild % þeirra sem tóku afstöðu
73 24,3 33,5
145 48,3 66,5
23 7,7
30 10,0 —
29 9,7 —