Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 28

Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 28
Grétar Reynisson opnar á laugar- daginn sýningu í Gallerí Svart á hvítu. Þar sýnir hann olíumálverk eingöngu en ádur hefur hann aðal- lega gert skálptúra. Hann sýndi síð- ast íNýlistasafninu fyrir einu ári og er sennilega þekktastur meöal al- mennings fyrir leikmyndir sínar, til að mynda þá sem nú prýðir hið nýja skemmuleikhús Leikfélags Reykja- víkur í sýningunni Djöflaeyjunni. — Er þessi sýning að einhverju leyti framhald af þeirri síðustu sem þú hélst? „Já, þetta er svona óbeint fram- hald, þaö er ekki um stórar kúvend- ingar að ræða. Efnið ræður líka svo- lítið ferðinni — síðast var ég mest með akrýl og þá voru þetta grófari myndir, villtari." — Ertu mjög meðvitaður í þinni hugmyndafrœði þegar þú málar? „Pælingarnar eru sáralitlar fyrir- fram, það er eins og myndirnar vinni meira með mann sjálfan, ég gef mér ekkert í upphafi. Maður er að mála og teikna og leita að ein- hverju sem gerist, kannski að því óiiklega og síst gefna. Fílósófían er ekki sjáanleg — ég get ekki definer- að hana. Eg vinn beint í efnið, nota engar skissur eða slíkt, heldur leita að funksjón, að því að myndin virki fyrir mig sem mynd. Þegar það tekst hefur maður náð árangri." — Hvaö með mótíf? „Já, þetta eru einskonar stemmn- ingar og fígúrur sem hafa eitthvað með þær að gera. Eg er líka með litl- ar myndir sem eru hrein formstúd- ía. Mörg mín form hafa komið úr skúlptúrnum, sem ég vann mest með áður, en þessa stundina er mál- verkið að ná yfirhöndinni. Þó ég viti að ég á eftir að vinna meira í skúlpt- úr." — Hvað gerist með málaranum þegar hann sýnir verkin sín? „Ja, ef maður væri ekki nokkuð öruggur á þessu sjálfur þá væri maður ekkert að sýna. Annars er þetta einskonar hringrás, maður íokar sig inni í einhvern tíma og verður síðan að komast út aftur, það gerist með þessum hætti. Þetta er ekki tómleikatilfinning. Til þess að haida áfram verður maður að losa sig við ákveðin tímabil í sinni mynd- sköpun." — Hvað með áhrif frá annarri myndlist? „Maður er aldrei hreinn af áhrif- um en án þess að prófa sjálfan sig verður aldrei neitt úr neinu." KK. Leit að því ólíklega LEIKHUSfólki þykir einsýnt að Kabarett Leikfélags Akureyrar eigi eftir að njóta mikillar velgengni fram að vori. Þessi uppsetning Bríet- ar Héöinsdóttur á söngleiknum fræga þykir einkar snjöll eða eins og þekktur leikhúsmaður úr Reykjavík sagði HP nýkominn af frumsýning- unni fyrir norðan: „Fagmennskuna leggur úr litla kassanum þeirra" og átti þar vitaskuld við sviðið í gamla Samkomuhúsinu. HP heyrir jafn- framt að umræður í starfsmanna- hópum sunnan heiða snúist nú um hvort ekki sé sniðugt að skella sér norður á leikinn (og svo í Sjallann vitaskuld). Þetta stafi ekki síst af þeirri almennu auglýsingu sem Akureyri hefur fengið undanfarnar vikur sem forvitnilegur ferða- mannabær að vetri — og svo af hinu, hvað Kabarett sé einfaldlega svakalega lokkandi stykki... KVIKMYNDIR Át og ólétta Nicholson og Streep í Heartburn Mike Nichols. Regnboginn, Hjartasár — Brjóst- sviði (Heartburn): ★★ Framleiðendur: Robert Greenhut og Mike Nichols. Leikstjórn: Mike Nichols. Handrit: Nora Ephron, eftir eigin sögu. Kvikmyndun: Nestor Almendros. Aðalleikarar: Jack Nicholson, Meryl Streep, Maureen Stapleton og Jeff Daniels. Michael Igor Peschkowsky heit- ir hann reyndar fullu nafni, fædd- ur Þjóðverji og fyrrum skemmti- kraftur á alla vega búllum. Núna hátt á sextugsaldri, löngu farinn vestur í leikstjórn þar sem hann á að baki nokkrar athyglisverðar bíómyndir, allt frá Hver er hrœdd- ur við Virgíníu Woolf? með Taylor, Graduate með Hoffman og nýlega Silkwood með Streep. í nýjustu mynd sinni Heartburn, hefur Mike Nichols — eins og hann hefur heit- ið frá og með Bandaríkjunum í lífi sínu — fengið Streep í lið með sér aftur og reyndar annan hæfileika- mann, ennþá nákunnari þessari sterku leikkonu, snillinginn Nest- or Almendros kvikmyndatöku- mann sem manna gerst þekkir til myndrænna möguleika hennar. Þau unnu saman í Kramer vs. Kramer, Still ofthe Night og þeirri mynd sem Streep hefur líkast til tekist best upp í til þessa, Sophie's Choice. í Heartburn leikur Jack Nichol- son á móti Meryl Streep. Myndin byggir á margfrægu ástarsam- bandi bandaríska blaðamannsins Carls Bernstein og fyrrum konu hans sem fór í hundana fyrir margt löngu. Saga sambúðarinn- ar, skráð af Noru Ephron, vakti firnamikla athygli vestan hafs og hefur bókin reyndar verið á met- sölulista um alllanga tíð. Svart á hvítu hefur þegar látið þýða verk- ið sem Brjóstsviða og býður það nú kúnnum í rekkum bensín- stöðva og víðar. í þessu sambandi er rétt að taka fram að ég hef hvorki lesið íslenska þýðingu bók- arinnar ennþá né gluggað í ensku útgáfuna. Heartburn er því fyrir mér einasta kvikmynd án bók- menntalegrar og tilfinningalegrar fortíðar. Hún lýsir að mínu viti heldur hversdagslegum hjóna- skilnaði — ef nokkur möguleiki er að komast svo að orði — þar sem persónurnar sem koma við sögu, eru hvorki merkilegri, skemmti- legri eða á nokkurn hátt eftir- tektarverðari en hver annar mað- ur. Semsé hversdagssaga. En Mike Nichols tekst að gera hana svo flata og snauða af allri einlægni, innri spennu og áhugaverðri fléttu að undrum sætir, þar eð efnið er sólt í meinta metsölubók. Persón- urnar vekja ekki hughrif áhorf- enda, hvað þá að þær nái sam- bandi við þá. Fléttan er ekki frum- leg — og fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að snobba fyrir frægunv blaðamönnum (Bernstein) er hún hvorki fugl né fiskur. Þó er margt reynt; Streep er ólétt lungann úr myndinni, Nicholson með pizzu- fullan gúlann og aðrir ýmist ét- andi ellegar að segja mergjaðar kjaftasögur um náungann. Furðu- legt rán kemur svo fyrir inn á milli þessa alls, svona rétt til að vekja spennu eða samúð sögupersóna, ég veit ekki hvort. Leikstjórn Nichols í þessari mynd er mestan part óskiljanlegt hik og vandræðagangur. Hann gerir sig víða sekan um að apa upp senur úr síðustu myndum manna á borð við Woody Allen, en gjarn- an árangurslaust, þar eð söguna vantar allan innri þrótt og áreið- anleika. Ef ekki væri fyrir góða spretti Streep og Nicholson á stöku stað, mjúka og notalega töku Nestors og fallega tónlist, væri þetta afar ómerkileg mynd. Hún ber ekki með sér þá stemmn- ingu sem gamli kabarett-dansar- inn hefur sjálfsagt ætlast til af henni, ekki þann sæta blæ vináttu og hrifa sem fólk er svo gjarnan svag fyrir í bland við undiröldu. -SER. Kjaftœöi Bíóhöllin, Heartbreak Ridge: ★ Bandarísk, árgerð 1986. Framleiðandi og leikstjóri: Clint Eastwood. Handrit: James Carabatsos. Kvikmyndun: Jack H. Reen. Tónlist: Lennie Niehaus. eftir Sigmund Erni Rúnarsson Aðalleikarar: Clint Eastwood, Marsha Mason, Everett McGill, Moses Cunn og Boy Gaines. Það er svo gott sem tilgangs- laust að horfa á þessa nýjustu kvikmynd Clint Eastwood, nema ef vera kynni að maður sé gírugur inn á troðfulla gúla af klámi, mannfyrirlitningu og innihalds- lausan æsing. Heartbreak Ridge hefur ekki neitt fram að færa sem kvikmynd getur státað af. Hún er kjaftæði um kynfæri og afturenda. Ráma hetjan úr vestri pírir í þetta skipti augun á herflokk sem hingað til hefur ekki verið þekktur fyrir samæfingu, dugnað og áræðni. En gamli maðurinn er harkan uppmáluð, skorinn og brenndur í fési með marga hildina að baki, and here we go, one-two- three-four. Sem liðsforingja tekst honum að gera hermannanefnur sínar hæfar á hreint undraverðum tíma. Hugmynd og handrit þessa verks er aumlegt. Enn einu sinni er kvikmynd drifin áfram af aga hermennskunnar og sniðin að þeirri einföldu — en gjarnan áhrifamiklu — uppbyggingu sem að þjálfun stríðsmanna lýtur. Sögu- hetjan er bitur og fráskilin og æf út í yfirmanninn sem er bleyða og sjálfsagt hommi. Núna er lokaat- riðið Grenada, nánast skemmtiferð útskriftarhóps úr USA-Army á strendur eyju í Karabíska hafinu að heimta landa úr höndum komma. Þetta er í fyllsta máta ósannfær- andi bíó, þar sem tíðum er gripið til örþrifaráða til að skyggja á veika og fálmandi leikstjórn bæj- arstjórans. Heartbreak Ridge bæt- ir engu við þar sem skástu her- skólamyndunum lýkur, en fer þess í stað á valhoppi í kringum kræf- ustu klámbrandara líðandi stund- ar. Þetta er karlamynd, konur góð- ar, hundleiðinleg karlamynd... BRÍET Héðinsdóttir 'eik- stjóri hefur áður sett upp leikverk nyrðra, fyrst fyrir sex árum Jómfrú Ragnheiöi eftir Guðmund Kamban og ári síðar Atómstöðina Halldórs Laxness. Hún var því kunn staðhátt- um undir brekkubrúninni nyrðra þegar hún skellti sér þangað eftir Aidu Verdis í Gamla bíói, sem var síðasta uppfærsla hennar fyrir Kabarett. „Alltaf gott að starfa á Akureyri," segir Bríet og síðan spurð um viðbrigðin að taka við gleðisöngleik eftir stærsta óperu- verk sögunnar: „Það eru engin tvö verk eins." ÞEYR kemur við sögu framar í þessu tölublaði HR Við getum sagt þær fréttir af þessari þekktu grúppu sem gerði það gott fyrir fimm árum að £n/'gma-fyrirtækið í Bandaríkj- unum hefur nú afráðið að gefa út safnplötu með nokkrum bestu verk- um hljómsveitarinnar, sem hafði m.a. innanborðs Sigtrygg Baldurs- son trommara, Magnús Guðmunds- son söngvara, Birgi Morthensen bassa og Guðlaug Jónsson gítarleik- ara. Það er umboðsmaður Smither- eens vestra sem hefur haft milli- göngu um útgáfu skífunnar, sem er líkast til væntanleg með vorinu... DAÐI Guðbjörnsson opnar í dag, fimmtudag, sýnipgu í Gallerí Borg við Austurvöll. A sýningunni ætlar Daði að sýna 35 verk sem hann hef- ur unnið á tveimur næstliðnum ár- um. Um er að ræða ferns konar tækni; olíumálverk, vatnslitamynd- ir, pastelmyndir og grafík. Þetta er sjöunda einkasýning Daða en að auki hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.