Helgarpósturinn - 19.03.1987, Síða 31
Kórinn er hljóðfæri
Sérstaða Háskólakórsins felst m.a. í því að hann leggur
áherslu á frumflutning íslenskra verka. Árni Harðarson
hefur unnið gott starf sem stjórnandi hans undanfarin
misseri og hér ræðir HP við hann
Háskólakórinn leggur land undir
fót í dag fimmtudag, og heldur til
Italíu. Kórinn hefur á undanförnum
árum uakið athygli manna fyrir
rœktsína vid nýja íslenska tónlist og
tónskáld. HP hitti kórstjórann, Árna
Hardarson, ad máli í Tónlistarskóla
Kópavogs þar sem hann kennir
píanóleik og spurdi hann útí eigin
feril og kórstarfid, fyrst hvar hann
lœrði eftir að hann lauk námi hér
heima.
„Ég lærði í London frá 1977-L83,
við Royal College of Music. Var þar
í píanóleik og tónsmíðum."
— Hvernig kom það til að þú fórst
að stjórna kór?
„Ja, ég veit það eiginlega ekki, ég
fékk bréf út þar sem mér var boðið
að koma og taka við stjórn Háskóla-
kórsins, þegar fyrrverandi stjórn-
andi, Hjálmar H. Ragnarsson,
hætti.“
— Hafðirðu komið eitthvað ná-
lœgt kórstarfi áður?
„Ég hafði aldrei stjórnað kór áður,
hafði að vísu verið aðstoðarstjórn-
andi kórs Menntaskólans í Kópavogi
þegar ég var þar og svo söng ég í
kór skólans í London. Þetta kom
mér mjög á óvart þessvegna."
— Var þetta ekki mikið öðruvísi
en þú bjóst við?
„Jú, ég get ekki neitað því. Þarna
voru alveg nýir hlutir að fást við.
Það að eiga við nóturnar á pappír er
allt annað en að vera stjórnandi
stórs hóps og þurfa að blása lífi í tón-
listina fyrir aðra. Ekki bara að hugsa
um sjálfan sig en gera líka upp við
aðra hvernig maður kemur músík-
inni á framfæri."
— Hvernig verkar kór á þig sem
hljóðfœri?
„Já, kór er auðvitað hljóðfæri í
vissri merkingu en ég vil ekki bera
það saman við önnur hljóðfæri,
hvert þeirra hefur sín einkenni. Kór
er samt alveg stórkostlegt hljóðfæri,
þó ekki væri nema fyrir söngrödd-
ina — fjöldinn gefur líka svo mikla
möguleika í túlkun og framsetn-
ingu. Það eru líka miklir möguleikar
í kór vegna þess að hann er lifandi
og getur verið hreyfanlegur. Mörg
tónskáld hafa glímt við það að nota
fólkið sjónrænt og ég hef alltaf verið
mjög spenntur fyrir því. Hef reynd-
ar hugsað mér að gera eitthvað siíkt
með kórnum, þar sem hann er í
fleiri hlutverkum en bara söngnum.
Við höfum líka gert þetta í Háskóla-
kórnum, haustið ’84 settum við upp
Sóleyjarkvæði sem gekk mjög vel
og var mjög skemmtilegt."
— Þú hefur fengist töluvert við að
semja leikhúsmúsík, er ekki svo?
„Jú, það hefur aukist mikið, sér-
staklega núna síðasta árið. Ég hef
bæði samið tónlistina, t.d. í Draum-
leik eftir Strindberg hjá Stúdenta-
leikhúsinu og Ómunatíð eftir Þórar-
in Eldjárn hjá Nemendaleikhúsinu.
Að auki hef ég valið og æft tónlist í
aðrar sýningar og verið með tónlist
í útvarpsleikritum."
— Víkjum aftur að Háskólakórn-
um. Hann hefur markað sér nokkra
sérstöðu með frumflutningi á nýjum
íslenskum tónverkum.
„Ja, ég veit ekki hvort það er rétt,
hinsvegar er það í lögum kórsins að
hann skuli frumflytja a.m.k. eitt nýtt
íslenskt tónverk á ári. Auðvitað
gefur þetta kórstarfinu ferskan svip,
undanfarin ár hafa þetta verið mest
verk eftir yngstu tónskáldin. Verk
sem hafa verið sérstaklega samin
fyrir kórinn."
— Þú hefur sjálfur verið að skrifa
fyrir kórinn, er það ekki?
„Jú, ég hef gert það. Hann hefur
frumflutt eftir mig bæði stærri og
smærri verk. Ég hef oft haft þann
háttinn á að nota æfingar til að end-
urskapa verkin og þannig látið kór-
inn eiga sinn þátt í sköpuninni."
— En píanóleikurinn, hefur hann
orðið að víkja?
„Já, hann hefur að mestu legið
niðri eftir að ég kom frá námi. Það
má segja að kórstarfið hafi tekið
þann tíma sem ég hefði þurft í
píanóleikinn og svo hafa tónsmíð-
arnar líka stöðugt leitað meira og
meira á hugann. Ég hef reyndar átt
í erfiðleikum með að skilgreina mig
sem tónlistarmann, þó er ég kannski
frekast tónsmiður núorðið."
— Og nú ertu að fara með kórinn
til Ítalíu.
„Já, við erum að fara núna 19.
mars og ætlum að syngja í fimm
borgum á Ítalíu, reynum að kynna
okkur sjálf, íslenska tónlist og land-
ið í leiðinni. Það má kannski koma
fram að við verðum með nýtt verk
eftir Hauk Tómasson, ungt tón-
skáld, í farteskinu, en það samdi
hann fyrir okkur. Þetta ferðalag er
okkur hvatning til að gera vel og
leggja hart að okkur.“
KK
KVIKMYNDAHÚSIN
ALLAN QUATERMAIN OG
TÝNDA GULLBORGIN
(Allan Quatermain and the Lost City of
Gold)
NÝ
Spennu- og ævintýramynd með
Richard Chamberlain. Sýnd kl. 5, 7, 9
og 11.
ÉG ER MESTUR
(Aladin)
★
Gamanmynd með Bud Spencer. Sýnd
kl. 5.
BROSTINN STRENGUR
(Duet for One)
★★★
Afskaplega hreint hrífandi mynd.
Konchalovsky leikstýrir úrvalsleikurum.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
I NAUTSMERKINU
(I tyrens tegn)
★
Ein af þessum dönsku léttdjörfu og
pínu fyndnu. Bönnuð yngri en 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
LIÐÞJÁLFINN
(Heartbreak Ridge)
★
Nýjasta mynd borgarstjórans Clint East-
wood. Hann leikur liðþjálfa sem þjálfar
njósna- og könnunarsveit innan hers-
ins. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15.
NJÓSNARINN
(Jumpin Jack Flash)
★★
Gamanmynd með Whoopi Goldberg,
stjörnunni úr Color Purple. Sýnd kl. 5,
7.05, 9.05 og 11.15.
GÓÐIR GÆJAR
(Tough Guys)
★★★
Tveir gamlir kallar uppgötva að tíminn
stendur ekki kyrr. Sýnd kl. 5 og 9.05
FLUGAN
(The Fly)
★★
Jeff Goldblume breytist íflugu. Galdrar
og hrollur fyrir það sem þess er virði.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýnd kl. 7.05 og 11.
ABENDING
PENINGALITURINN
(The Color of Money)
★★★
Tekur við þar sem The Hustler hætti.
Nú er Newman kominn í hlutverk hins
ráðsetta og reynda.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05, 11.15.
KRÓKÓDÍLA DUNDEE
(Crocodile Dundee)
★★★
Mick Dundee, Ástralíubúi kemur til
New York. Sýnd kl. 3, 5 og 9.05.
SJÓRÆNINGJAR
(Pirates)
★★★
Mikil mynd að vöxtum eftir þann fræga
Rolanski. Matthau fer að vísu á kostum
en það er ekki mikið meira. Sýnd kl.
7.05 og 11.15.
Ráðagóði róbótinn, Hundalff,
öskubuska og Hefðarkettir sýndar
kl. 3 um helgina.
BÍÓHÚSIÐ
THE ROCKY HORROR PICTURE
SHOW
★★
Eftirminnileg mynd frá áttunda ára-
tugnum. Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ífrlj^WjlASKOLABIO
'ii
TRÚBOÐSSTÖÐIN
(Mission)
★★★
Vönduð stórmynd eftir Bretann Roland
Joffé með þeim Robert de Niro og
Jeremy Irons í aðalhlutverkunum.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
LAUGARÁS
BIO
FURÐUVERÖLD JÓA
(Making Contact)
★★
Ævintýramynd um dulræna atburði.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
EFTIRLÝSTUR L(FS EÐA LIÐINN
(Wanted Dead or Alive)
★★★
Hörku spennumynd með Rutger Hauer
og Gene Simmons. Bönnuð yngri en
16. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
EINVlGIÐ
(Race of Honour)
★
Ninja mynd með Sho Kosugi. Bönnuð
yngri en 16 ára. Sýnd kl. 5, 9 og 11.
LAGAREFIR
(Legal Eagles)
★★★
Mjúkt lögfræðingadrama. Sýnd kl. 7.
HJARTASÁR
(Heartburn)
NÝ
Karlremban Jack Nicholson og hinn
frjálsi sterki kvenmaður Meryl Streep
saman í mynd. Það hlaut að koma að
því. Sýnd 3, 5.30, 9 og 11.15.
SKYTTURNAR
★★★
Ný íslensk mynd eftir Friðrik Þór. Fer
hægt af stað en sterkur endir. Sýnd kl.
3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
HEPPINN HRAKFALLABÁLKUR
(Foreign Body)
★
Gamanmynd með Victor Benerjee. Inn-
flytjandi frá Indlandi gerist læknir á
fölskum forsendum. Sýnd kl. 3 og 5.
FERRIS BUELLER
★★
Gamanmynd um skróp og Ferrari bíl.
Sýnd kl. 3.05,5.05,7.05,9.05 og 11.05.
ÞEIR BESTU
(Top Gun)
Sætur strákur (flugvél að skjóta niður
Rússana. Sýnd kl. 3, 5 og 7.
NAFN RÓSARINNAR
(The Name of the Rose)
★★★
Var Kristur kátur? Sterk mynd. Sýnd kl.
9.
TARTUFFE
NÝ
Frönsk, gerð eftir leikriti Molíéres.
Mánudagsmynd, sýnd kl. 7 og 9.30.
STATTU MEÐ MÉR
(Stand by Me)
★★
Unglingar sem ákveða að finna lík sem
ekki finnst. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
ÖFGAR
(Extremities)
★★★
Farrah Fawcett kemur öllum á óvart.
Bönnuð yngri en 16. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
SUBWAY
★★★
La bella Isabella. Sýnd kl. 11.
Kærleiksbirnir og Völundarhús kl.
3 um helgina.
VÍTISBÚÐIR
(Hell Camp)
★
Um ameríska hermenn sem lenda í
ýmsu misjöfnu. Bönnuð yngri en 16.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ mjög góð
★ ★ miðlungs
★ þolanleg
O mjög vond
Tlmi er til kominn að rifja upp kynnin af
Rocky Horror sem nú er endursýnd f
Bíóhúsinu. Tveir af frægustu leikurum
samtíðarinnar eru saman f myndinni
Heartburn ( Regnboganum, en gengur
vfst ekki alveg jafn vel og til var ætlast.
MYNDBÖND
CANNERY ROW ★★★
77/ leigu hjá ToppMyndum,
Álfheimum
Bandarísk, árgerð 1982.
Leikstjóri: David Ward. Leikarar:
Nick Nolte, Debra Winger, M.
Emmert Walsh og Audra Lindley.
Sögumaður: John Huston. Mynda-
taka: Sven Nykvist.
Við „Dollugötu" býr mjög sér-
stætt gallerí af fólki, vændiskonur
og drykkjumenn og fleiri, sem hjúp-
að er sérkennilegum ljóma í sam-
ræmi við sögurnar Cannery Row og
Sweet Thursday eftir meistara John
Steinbeck. Aðalpersónur myndar-
innar eru ung og ákveðin kona, sem
Winger leikur, og einstæðingur, sem
er sjávarlíffræðingur, leikinn af
Nolte. Myndin fjallar um fólkið við
Dollugötu og seintekið ástarsam-
band aðalpersónanna. Þetta er
úrvalsmynd og ætti m.a. að höfða
sérstaklega til þeirra, sem unna góð-
um bókmenntum og leikverkum. Á
köflum dregur myndin mjög dám af
hreinu leikhúsverki.
HH.
WHOSE LIFEISIT ANYWAY?
★★★
77/ leigu hjá ToppMyndum og
Vídeóspólunni m.a.
Bandarísk, árgerð 1981.
Leikstjóri: John Badham. Leikarar:
Richard Dreyfuss, John Cassa-
vetes, Christine Lahti, Bob
Balaban, Kenneth McMillan og
Kaki Hunter.
Hér er upphaflega um að ræða
leikhúsverk (sem sýnt var hérlendis
fyrir fáum árum) er fjallar um ungan
skúlptúrista, Ken Harrison, sem
lendir í bílslysi og lamast upp að
hálsi. Hann berst fyrir rétti sínum til
að deyja vegna þess að hann getur
ekki ímyndað sér tilveruna án þess
að geta hreyft hvorki legg né lið.
Richard Dreyfuss fer á kostum í hlut-
verki listamannsins, sem býr yfir
einstakri kímnigáfu og hugrekki.
Þessi mynd er hvort tveggja í senn
harmleikur og gamanleikur. Hinn
lamaði listamaður er bráðfyndinn
og skemmtilegur um leið og hann á
í innra stríði vegna hörmulegra ör-
laga sinna. Hann vill deyja, en allir
í kringum hann vilja að hann lifi. í
enskri umsögn um þessa mynd seg-
ir eitthvað á þá leið, að áhorfandinn
sitji að lokum grátandi en brosandi
út í bæði.
HH
HELGARPÖSTURINN 31