Helgarpósturinn - 19.03.1987, Page 44
| blaðinu í dag er viðtal við ein-
stæða móður sem hefur þurft að
leita til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar eftir aðstoð.
í síðasta HP var grein um þá hópa
sem fá fjárhagsaðstoð hjá stofnun-
inni. Þar kom fram að 25% ein-
stæðra foreldra í Reykjavík leituðu
eftir henni á síðasta ári, 1.400 ellilíf-
eyrisþegar og mikill fjöldi öryrkja.
Til þess að fá aðstoð þarf fólk í raun
að segja sig til sveitar og reynist
mörgum það erfitt. Fólk vill síður
verða byrði á samborgurum sínum,
en borgarsjóður varði um 70—80
milljónum króna í fyrra til þessarar
fátækrahjálpar. Hins vegar fer því
fjarri að einstæðar mæður, ellilífeyr-
isþegar eða öryrkjar séu helstu bón-
bjargamennirnir á borgarsjóði. Met-
hafarnir í þeim hópi eru sjálfsagt
beir ísbjarnarbræður, Vilhjálmur
og Jón Ingvarssynir. Á árinu 1985
tók Davíð Oddsson 200 milljónir
króna af skuldum Bæjarútgerðar-
innar á borgarsjóð til þess að hægt
yrði að sameina hana Isbirninum.
Ef það hefði ekki verið gert hefði
Grandi h/f orðið gjaldþrota á fæð-
ingardegi sínum, því þó Bæjarút-
gerðin hafi átt fyrir skuldum áður
en Davíð tók 200 milljónirnar af
henni, þá var staða ísbjarnarins svo
slæm að nægt hefði til að draga Bæj-
arútgerðina í svaðið. Sama ár, 1985,
námu framfærslustyrkir borgarinn-
ar til skjólstæðinga Félagsmála-
stofnunar um 65 milljónum króna.
Það má því segja að hvor bróðir-
inn um sig þiggi stærri ölmusu úr
borgarsjóði en allir einstæðir for-
eldrar.ellilífeyrisþegar, öryrkjar og
aðrir sem orðið hafa undir í þjóðfé-
laginu, til samans. Misskipt er
mannanna auði.. .
s
^^■tjórnmálaflokkarnir eru að
vissu marki að breytast til batnaðar
á íslandi. Þannig hlýtur það að telj-
ast jákvæð breyting, að þeir eru
farnir að rífa sig upp úr hólfunum,
sem málgögnin þeirra á stundum
eru. Dæmi um þetta eru fjölmörg nú
fyrir kosningarnar. D-listi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjaneskjördæmi átti
góðan leik í auglýsingastríðinu við
Olaf Ragnar, sem átt hefur frum-
kvæði fram að þessu í þeim slag.
Sjálfstæðisflokkurinn kynnti lista
sinn með auglýsingum um sl. helgi
bæði í Þjóðviljanum ogTímanum.
Með þessu er líklega rofinn múr
þröngsýnna flokkssjónarmiða auk
þess sem slíkar auglýsingar eru
skemmtileg tilbreyting frá öðru efni
blaðanna. Þá eru stjórnmálaflokk-
arnir farnir að standa fyrir alls kon-
ar ráðstefnum um málefni og það
er einnig ánægjuleg breyting við
slíkt ráðstefnuhald, að það er ekki
halelújakór viðkomandi stjórn-
málaflokks, sem talar eða situr fyrir
svörum, heldur færist í vöxt að fag-
Viö erum með hagstœðu
verðin og úrvalið líka!
fl^Alternatorar
2L Startarar
ötal og ttfftaytondt varahMk.
Kúplingsdiskar
og pressur .
I eftirtaWa tólksbila og |eppa
Amoriska — Enska
Franska — italaka '
Saonska — Þyzka
Enntremur kúpkngadiska I
BENZ - MAN - SCANIA - VOLVO
„fljðtandl glfl
Bílabón í
sérflokki
J.jl !! : í| rj
B m j IIIIIII r
FIAT van ahlut
Bremsuklossar
í úrvali
LLL
• Auðvelt í notkun
• Auðvelt að þrífa
e Margtöld endlng
Bónoóu td. brettl og geróu
lomanburó vtö oöror
bóntegundlr. Þú tekgr enga
öhcBttu þvt
vlð ondurgrolöum
önotaöor etttrjtöövar ef þú erl
ekkl tytiiiega önœgö/ur meö
örongurlnn
QHaMHilx
ri I
Betri
bíll
fyrir
lítinn pening
Varahlutir i
kveikjukerfið
|1| Einnlg úrval kveikjuloka,
■i hamra..Hlgh Energy"
■HJi hóspennukefla
■ og transistorkveikjuhluta
fNtan I amerfska
al bfla, fró 1976 og yngrl.
KERTAÞRÆÐIR,;
Kdpg ■« deyflt Injflondl torbytglur.
Glóðarkerti
í úrvali fyrir
TOYOTA
ISUZU
DATSUN
MERCEDES BENZ
OFL.
Olíusíur
Spíssadísur
Fœðidœlur
Auk þess
meðai annarc
Stýrisendar
Spindlikúlur
Vatnsdœlur
Miðstððvar og mótorar
LJðs og perur
HABERG r HÁBERG ” HABERG !
SKEIFUNNI 5A. SIMI 91-8 47 8
SKEIFUNNI 5A SIMI 91-8 47 8
SKEIFUNNI 5A. SIMI 91-8 47 8
menn og pólitískir andstæðingar
séu fengnir til að flytja mái og skoð-
anir á siíkum ráðstefnum. A-listinn
hefur nýlega haldið stjórnmája-
skóla, þar sem flokksfjendur krat-
anna kenndu vísindin og um næstu
helgi verður haldin sérstök ráð-
stefna um menningarmál á Hótel
Sögu á vegum Alþýðubandalagsins,
þar sem málflytjendur eru m.a.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri...
^^^gstöðvarbyggingin nýja á
Keflavíkurflugvelli verður tekin í
notkun með pompi og prakt 14.
apríl n.k., en hætt er við að ekki
verði mikil kátína ríkjandi meðal
þeirra sem vinna eiga í bygging-
unni, a.m.k. ekki fyrst í stað. Flug-
stöðin er langt frá því að vera fullbú-
in og reyndar er flest sem viðkemur
starfsfólki hálfkarað. Meðal þess
sem enn er hálffrágengið er frí-
hafnarverslunin fyrir aðkomufar-
þega. Hún verður fyrst opnuð í lok
júní. Verslun fyrir „transit" farþega
og þá sem eru að fara úr landi verð-
ur þó opnuð fyrr, en ekki hefur ver-
ið sótt um leyfi til að komufarþegar
geti verslað þar, enda ólíklegt að
slíkt leyfi fengist. Ljóst þykir að Frí-
höfnin verður fyrir umtalsverðu
tekjutapi af þessum sökum. . .
áverður,,transit“svæðiflug-
vallarins opið fyrir alla í fyrstu,
enda ekki fullfrágengið við opnun.
Hluta af gegnumlýsingarbúnaði á að
setja upp fyrir opnunina, en óvís.t er
taiið að takist að setja upp nema lít-
inn hluta öryggistækja þessara
fyrir 14. apríl. . .
D
ómur Hæstaréttar yfir
Kristjáni Torfasyni, bæjarfógeta í
Vestmannaeyjum er til umfjöllunar
hér í blaðinu. Þar kemur fram að
mörgum þykir Kristján hafa sloppið
vel með 80 þúsund króna sekt
vegna brota í opinberu starfi. Dóm-
ur Kristjáns er þriðji dómurinn sem
Hæstiréttur kveður upp vegna brota
í opinberu starfi á undanförnum
tveimur árum. Kristján Rafn Guð-
mundsson, lögregluvarðstjóri á
ísafirði, var dæmdur í tveggja mán-
aða varðhald í desember 1985 og
Sigurður K. G. Sigurðsson,
fræðslustjóri á ísafirði, var nýlega
dæmdur í sex mánaða fangelsi, báð-
ir fyrir brot í opinberu starfi...
O...................
ina. Samgangur á milli „transit" far-
þega og þeirra sem bíða í veitinga-
skála á neðri hæð hússins verður
einfaldur, enda skilur tveggja til
þriggja metra hár glerveggur þessi
tvö svæði af. Víðast hvar erlendis
eru „transit“ svæðin girt af með loft-
föstum glerveggjum. Hér gætu
menn því verið að bjóða þeirri
hættu heim, að „transit" farþegar
gætu komið undan óæskilegum
varningi, s.s. fíkniefnum eða vopn-
um, t.d. með því að kasta í veitinga-
sal varningi þar sem engin leit er
gerð. . .
\
KOSNINGASKRIFSTOFA B.J. M"“IíSS
TEMPLARASUNDI 3 62323
44 HELGARPOSTURINN